Morgunblaðið - 25.04.2016, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. APRÍL 2016
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Dominos-deild kvenna
Fjórði úrslitaleikur:
Snæfell – Haukar................................. 75:55
Staðan er 2:2 og liðin mætast í oddaleik
annað kvöld að Ásvöllum.
Umspil karla
Fjórði úrslitaleikur:
Skallagrímur – Fjölnir ........................ 93:71
Staðan er 2:2 og liðin mætast í oddaleik
í Grafarvogi annað kvöld.
Spánn
Valencia – Tenerife............................ 93:75
Jón Arnór Stefánsson skoraði 2 stig fyr-
ir Valencia.
Umspil, 8 liða úrslit, 2. leikur:
Oviedo – Huesca ................................. 67:72
Ægir Þór Steinarsson skoraði 5 stig
fyrir Huesca, átti 3 stoðsendingar og tók
eitt frákast á þeim 24 mínútum sem hann
lék.
Staðan er 2:0 fyrir Huesca
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, 8 liða úrslit:
Detroit – Cleveland ........................... 91:101
Staðan var 3:0 fyrir Cleveland fyrir
fjórða leikinn sem fór fram í Detroit í nótt.
Sjá mbl.is.
Boston – Atlanta .............................. 111:103
Staðan var 2:1 fyrir Atlanta fyrir fjórða
leikinn sem fór fram í Boston í nótt. Sjá
mbl.is.
Indiana – Toronto.............................. 100:83
Staðan er 2:2.
Charlotte – Miami ............................... 96:80
Staðan er 2:1 fyrir Miami.
Vesturdeild, 8 liða úrslit:
Memphis – San Antonio...................... 87:96
Memphis – San Antono..................... 95:116
Staðan er 3:0 fyrir San Antonio.
Dallas – Oklahoma City .................. 109:119
Staðan er 3:0 fyrir Oklahoma.
Portland – LA Clippers ...................... 96:88
Staðan er 2:1 fyrir Clippers.
Houston – Golden State.................... 94:121
Staðan er 3:1 fyrir Golden State.
KÖRFUBOLTI
Í HÓLMINUM
Ríkharður Hrafnkelsson
sport@mbl.is
Snæfell fékk Hauka í heimsókn í
Stykkishólm í fjórða leik liðanna í
úrslitakeppni Dominos-deild
kvenna í gærkvöldi og hafði 75:55
sigur. Þar með er ljóst að oddaleik
þarf um Íslandsmeistaratitilinn hjá
konunum og verður hann annað
kvöld að Ásvöllum í Hafnarfirði.
Það var mögnuð stemming í
íþróttahúsinu í Stykkishólmi í
fjórða leik liðanna í úrslitakeppn-
inni; stuðningsmenn Hauka fjöl-
menntu og mynduðu skemmtilega
umgjörð um leikinn með heima-
mönnum.
Heimastúlkur komu vel stemmd-
ar til leiks og skoruðu strax fyrstu
körfuna, næstu fjögur stig voru
gestanna en þá kom ellefu-núll kafli
Snæfells og eftir það höfðu heima-
stúlkur undirtökin út allan leikinn.
Ingi Þór, þjálfari Snæfells,
breytti um varnaraðferð og lét Hai-
den D. Palmer dekka Helenu
Sverrisdóttur. Þetta gekk full-
komlega upp, því Helena skoraði
einungis tvö stig í fyrsta fjórðungi
og önnur tvö stig í öðrum. Hauka-
stúlkum gekk illa að eiga við afar
sterka vörn Snæfells og voru að-
eins með 24 stig alls í fyrri hálfleik,
en heimaliðið var yfir í hálfleik
30:24.
Heimastúlkur lögðu mikla
áherslu á að stöðva Helenu og Pál-
ínu Gunnlaugsdóttur og gekk það
eftir lengi vel. María Lind
Sigurðardóttir hélt gestunum inni í
leiknum í fyrri hálfleik með frá-
bærri skotnýtingu.
„Mitt lið mætti ekki tilbúið til
leiks hér í kvöld, það vantaði eitt-
hvað upp á hugarfarið hjá mörgum
af leikmönnum mínum,“ sagði Ingv-
ar Þór Guðjónsson, þjálfari Hauka,
í leikslok.
Fljótlega í lokafjórðungnum
skiptu gestirnir yfir í svæðisvörn til
að reyna að brjóta upp sóknarleik
heimastúlkna en það gekk lítt eftir.
Um miðjan lokaleikhluta var Snæ-
fell komið með sextán stiga forskot
og nokkuð ljóst í hvað stefndi. „Því-
líkur kraftur í mínum stelpum í
kvöld, Haiden var stórkostleg á
báðum endum vallarins, hún ætlaði
sér ekki að tapa þessum leik. Þrátt
fyrir frábæran leik hjá Haiden á
allt liðið mitt hrós skilið, þær skil-
uðu allar því sem til var ætlast af
þeim. Stuðningsmennirnir hér í
kvöld, vá, stelpurnar tóku stemm-
inguna og kraftinn inn í sig og skil-
uðu því beint í leikinn,“ sagði bros-
mildur þjálfari Snæfells, Ingi Þór
Steinþórsson, í leikslok.
Haiden Denise Palmer var hreint
út sagt frábær í leiknum, varnar-
leikur hennar magnaður, skoraði
grimmt með 52% nýtingu og
stjórnaði sóknarleik Snæfells af
stakri snilld. Liðsheildin og breidd-
in skilaði miklu í leiknum og á
Snæfellsliðið allt hrós skilið fyrir að
bjóða körfuboltaáhugafólki upp á
áframhaldandi körfuboltaveislu. Í
liði Hauka stóð María Lind Sigurð-
ardóttir upp úr í sóknarleiknum
með 22 stig og 71% skotnýtingu,
sem er alveg magnað. Þrátt fyrir
slaka skotnýtingu var Helena
Sverrisdóttir með 16 fráköst í
leiknum og var öflug í vörninni.
Ljósmynd/Eyþór Benediktsson
Frábær Haiden Palmer var frábær í gær og er hér komin framhjá Shanna Dacanay.
Snæfell náði í oddaleik
Lagði Hauka með 20 stiga mun Haiden frábær bæði í vörn og sókn
Stykkishólmur, Dominos-deild
kvenna, úrslit, 4. leikur, sunudag-
inn 24. apríl 2016.
Gangur leiksins: 5:4, 13:4, 15:9,
17:13, 19:15, 21:19, 25:20, 30:24,
35:26, 39:31, 43:34, 50:39, 52:41,
57:45, 63:50, 75:55.
Snæfell: Haiden Denise Palmer
35/6 fráköst/7 stoðsendingar,
Bryndís Guðmundsdóttir 12/11 frá-
köst, Berglind Gunnarsdóttir 11,
Gunnhildur Gunnarsdóttir 9, María
Björnsdóttir 4/4 fráköst, Alda Leif
Jónsdóttir 2/4 fráköst, Andrea
Björt Ólafsdóttir 2.
Fráköst: 23 í vörn, 6 í sókn.
Haukar: María Lind Sigurðardóttir
22/5 fráköst, Helena Sverrisdóttir
19/16 fráköst, Auður Íris Ólafs-
dóttir 5/7 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Pálína María Gunnlaugs-
dóttir 3/7 fráköst, Jóhanna Björk
Sveinsdóttir 2, Dýrfinna Arn-
ardóttir 2, Shanna Dacanay 2.
Fráköst: 25 í vörn, 15 í sókn.
Staðan er 2:2 og liðin mætast
annað kvöld í oddaleik að Ásvöll-
um.
Snæfell – Haukar 75:55
KÖRFUKNATTLEIKUR
Þriðji úrslitaleikur karla:
DHL-höllin: KR – Haukar .......... (2:0) 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Undanúrslit karla, 2. leikur:
Vestm.eyjar: ÍBV – Haukar........ (0:1) 18.30
N1-höllin: Afturelding – Valur ... (1:0) 19.30
KNATTSPYRNA
Meistarakeppni KSÍ, karlar:
Valsvöllur: Valur – FH......................... 19.15
Í KVÖLD!
Lengjubikar kvenna
Undanúrslit:
Breiðablik – Þór/KA............................... 2:0
Fanndís Friðiksdóttir 47., 83.
Lengjubikar karla
Úrslitaleikur B-deildar:
Magni – Grótta ......................................... 4:4
Grótta hafði betur í vítaspyrnukeppni,
3:1.
Úrslitaleikur C-deildar:
KFG – Hamar........................................... 3:3
Hamar vann í vítakeppni, 3:2.
Bandaríkin
Kansas City – Portland Thorns ............ 1:1
Dagný Brynjarsdóttir lék fyrstu 75 mín-
úturnar í liði Portland.
Kína
B-deild:
Shanghai Shenxin – Wuhan Zall ........... 0:0
Sölvi Geir Ottesen lék með Wuhan Zall.
Meistaradeild kvenna
Undanúrslit, fyrri leikir:
Lyon – París SG........................................ 7:0
Wolfsburg – Frankfurt ............................ 4:0
Belgía
Umspilsriðill um Evrópusæti:
St. Truiden – Lokeren ............................ 2:2
Sverrir Ingi Ingason lék allan tímann
með Lokeren.
Sviss
Vaduz – Basel........................................... 0:0
Birkir Bjarnason lék allan tímann með
Basel.
Rússland
Krasnodar – Ufa ...................................... 4:0
Ragnar Sigurðsson lék allan tímann í
vörn Krasnodar.
KNATTSPYRNA
Á VARMÁ
Skúli Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
Bikar- og deildarmeistarar Aftur-
eldingar eru komnir í vænlega stöðu
í úrslitum um Íslandsmeistaratitil-
inn í blaki kvenna eftir 3:0 sigur á
HK í þriðja leik liðanna að Varmá á
laugardaginn. Afturelding er 2:1 yfir
í einvíginu og getur með sigri í
Fagralundi á þriðjudaginn full-
komnað veturinn hjá sér.
Það er kannski ekki margt um
leikinn að segja, yfirburðir Aftureld-
ingar voru allt of miklir til að ein-
hver spenna skapaðist að Varmá.
Eitt af því fáa sem var jákvætt hjá
Kópavogsbúum á laugardaginn var
stuðningsmenn HK, þeir létu ekki
deigan síga þrátt fyrir slakan leik
liðsins og börðu drumbur og sungu
og trölluðu alveg til loka. Vel gert
hjá þeim og alveg öruggt að slíkur
stuðningur mun skila einhverjum
stigum í Fagralundi á þriðjdaginn.
Mótttakan hjá liðunum var slök,
sérstaklega hjá HK. Afturelding
fékk 15 ása í leiknum og HK 10 og
það er auðvitað allt of mikið að lið
sendi boltann 15 sinnum rakleiðis í
gólf mótherjanna í þremur hrinum.
Mosfellingar unnu fyrstu hrinuna
25:15, þá næstu 25:11 og lokahrin-
una 25:19 en leikurinn stóð í klukku-
stund og þremur mínútum betur.
Thelma Dögg Grétarsdóttir var
sterkust heimakvenna, gríðarlega
grimm í sókn og hávörn. Eins er
gaman að fylgjast með Filipovu, hún
staðsetur sig svo vel á vellinum og
allt virðist svo auðvelt hjá henni.
Fjóla Rut Svavarsdóttir átti líka fín-
an leik og rosalegar uppgjafir, sem
og Karen Björk Gunnarsdóttir og
Sigdís Lind Sigurðardóttir. Kristina
Apostolova var líka virkilega dugleg
og góð í móttökunni.
Hjá HK var Elísabet Einarsdóttir
einna skást.
Morgunblaðið/Golli
Sterk Thelma Dögg var öflug.
Ásarnir urðu 25
Léleg móttaka að Varmá Afturelding ekki í vandræð-
um með HK Mosfellingar ætla sér alla titlana í vetur