Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 26.01.1999, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 26.01.1999, Qupperneq 11
Sameiginlegt prófkjör - lýðræðisleg hugsun Nú eru aðeins tæpar tvær vikur eru í prófkjör Samfylkingarinn- ar í Reykjanesi og er þegar orðið ljóst að hart verð- ur barist eins og tíðkast í próf- kjömm. Staða mín í þessu próf- kjöri er nokkuð flókin. Eg hefi setið á þingi í um það bil 3 ár eftir að Olafur Ragnar Gríms- son varð forseti Islands og hefi ég lagt mig fram um að inna þingstörfmín velafhendi. Það vill samt svo til 7 að frambjóð- endur eru í þingsæti Alþýðu- bandalagsins hér í kjördæminu þannig að vissulega er hætta á því ef fólk uggir ekki að sér að dreifingin á frambjóðendur verði mikil og ekkert okkar fái góða kosningu. Það verður nú væntanlega ekki listanum í heild til góðs ef Alþýðubanda- lagið er ekki presenterað þar í efstu sætum með sannfærandi hætti. Eg hefi áður lýst því yfir að ég tel að Alþýðuflokkurinn eigi að eiga efsta mann á Reykja- neslistanum en Reykjanesskjör- dæmi hefur lengi verið þeirra sterkasta kjördæmi. A sama hátt finnst mér eðlilegt að fulltrúi Alþýðubandalagsins skipi 2.sæti listans. Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður ■ meira á netinu. www.vf.is Komum Jóni á þing Jón Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Samfylkingar í prófkjöri sem fram fer 5-6 febr- úar nk.. Það er fagnaðarefni fyrir Suðumesjamenn þegar menn sem gjörþekkja málefni sveitarfélaganna og hafa einnig mikla reynslu úr atvinnulífmu gefa kost á sér til setu á hinu háa Alþingi. Jón hefur unnið mikið starf á samstarfsvettvangi sveitarfélaganna og nægir þar að nefna þátt hans í að koma byggingu D-álmu við sjúkra- húsið í höfn. Jón var einn af fulltrúum Suðumesja í samn- inganefndinni við ríkið um þessa byggingu og átti veruleg- an þátt í að ásættanleg lausn fannst á málinu. Eg vil hvetja þátttakendur í prófkjörinu til að kjósa Jón Gunnarsson því með tilkomu hans á Alþingi munu Suður- nesjamenn eiga rödd á Alþingi sem eftir verður tekið. Kristmundur Asmundsson yfirlæknir og bæjarfulltrúi Þórunni á þing Þórunn Svein- bjarnardóttir hefur víðtæka reynslu af stjórnmálum m.a. sem kosningastjóri Reykjavíkurlistans og varaþingkona Kvenna- listans. Hún hefur einnig sinnt hjálparstörfum erlendis fyrir Rauða Krossinn og samþætt reynsla af stjóm- málum og mannúðarstörfum gerir Þórunni að verðugum fulltrúa á Alþíngi. Það skiptir máli að fram- boðslisti Samfylkingarinnar á Reykjanesi endurspegli reynslu og endumýjun. Eg vil því hvetja sem flesta Reyknesinga til að taka þátt í að velja sigurstranglegan lista fyrir næstu Alþingis- kosningar og setja Þórunni í 3. - 4. sætið. Steinunn Valdís Óskars- dóttir, borgarfulltrúi Kirkja Keflavíkurkirkja Fimmtud. 28.jan Kirkjan opin kl. 16:00-18:00. Kyrrðar, fyrirbæna- og fræðslustund í kirkjunni kl. 17:30-18:00. Lilja G. Hallgrímsdóttir kynnir djáknastarfið. Föstudagur 29. janúar Jarðarför Steinunnar Karlsdóttur Vatnsholti 8d, Keflavík, fer fram kl. 14. Laugard. 30. jan Samvera fermingarbama frá kl. 10:00- 13:30 í Kirkjulundi, kirkjunni og nýja safnaðarheimilinu. Sunnud. 31.jan Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl.14. Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Ingunn Sigurðardóttir og Margrét Hreggviðsdóttir syngja tvísöng. Organisti Einar Öm Einarsson. Miðvikud. 3. febr Kirkjan opnuðkl. 12:00. Kyrrðar-og bænastund í kirkjunni kl.12:10. Samvera í Kirkju- lundi kl. 12:25 djáknasúpa, salat og brauð á vægu verði - allir aldurshópar. Alfa- námskeið í Kirkjulundi kl. 19. Starfsfólk Keflavíkurkirkju. Ytri-Njarðvíkurkirkja Fimmtud: 28. jan Spilakvöld aldraðra kl.20. Sunnud. 31. janúar Sunnudagaskóli kl. 11. Foreldrar hvattir til að mæta með bömum sínum. Asta, Sara og Steinar aðstoða ásamt fermingarbömum. Guðsþjónusta kl. 14. Kirkjukór Njarðvíkur syngur undir stjóm Steinars Guðmundssonar organista Miðvikud. 3. febr Unglingastarfið kl. 17. Ath. Ytri-Njarðvíkurkirkja verðurlokuð vegna málningarvinnu 1-16. febrúar. Kirkjustarfið verður í Njarðvíkurkirkju á meðan. Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík) Sunnud. 31. janúar Helgistund á Hlévangi kl. 15. Miðvikud. 3. febrúar Foreldramorgunn kl. 10.30. Kálfatjarnakirkja Sunnud. 31. janúar: Guðs- þjónusta kl.l4. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjóm Frank Herlufssen. Bam borið til skímar. Prestur Sr. Hans Markús Hafsteinsson. Sóknarnefnd. Safnaðarheimilið í Sandgerði Sunnud 31.janúar 1. sunnud. í níuviknaföstu Messa kl. 11. Fermdur verður Þórhallur Gíslason Brekkustíg 1 Sandgerði. Barn borið til skímar.Kór Hvalsneskirkju syngur kórstjóri Ester Olafsdóttir. sóknarprestur Utskálakirkja Sunnud 31.janúar 1. sunnud. í níuviknaföstu guðþjónusta kl. 14. Böm borin til skímar. Kór Utskálakirkju syngur kórstjóri Ester Olafsdóttir. Sóknarprcstur NTT- Níu til tólf ára starf er hvem þriðjudag kl. 17:00 í Gerðaskóla og á fimmtu- dögum kl. 16:00 í grunnskólanum í Sandgerði. Grindavíkurkirkja Sunnud. 31. janúar Sunnudagaskóli kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. með þátt- töku fermingarbama. Prestur sr. Hjörtur Hjartarson. Sóknarprestur Kirkja MlÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR Á SUÐURNESJUM Námskeið á næstunni Skattaskýrslugerð (201) Kennari: Jón Jóhannsson 3 kennslustundir mánudagur 1. febrúarki. 18-21 Verð kr. 2.500 Lög um fjöleignarhús (209) Kennari: Sandra Baldvinsdóttir 8 kennslustundir 2. og 3. febrúar kl. 18-21 Verð kr. 5.000 Viðbótarlífeyrissparnaður (211) Kennari: Edda Rós Karlsdóttir 3 kennslustundir 2. febrúar kl. 20-22 Verð kr. 2.500 Námstækni og árangursrík samskipti (207) Kennarar: Jóhann Geirdal og Sæmundur Hafsteinsson 12 kennslustundir Hefst mánudagskvöldið 1. febrúar Verð kr. 7.000 Félagsmenn í Verslunarmannafélagi Suðurnesja og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur fá 10% afslátt og geta fengið styrk frá félögunum kr. 3.300 upp í námskeiðsgjaldið. íslensk listasaga (101) Kennari: Sigrid Ósterby 12 kennslustundir Breyttur tími: Hefst mánudagskvöldið 1. febrúar kl. 20 Hraðlestrarnámskeið (204) Kennari: Ólafur Johnsen 20 kennslustundir Breyttur tími: Hefst miðvikudags- kvöldið 3. febrúar kl. 18 Ætlað þeim sem þurfa að komast yfir mikið lesefni á stuttum tíma. Hentar vel framhalds- og háskóla- nemum auk þeirra sem vegna starfa sinna þurfa að lesa mikið. Skráning fer fram í síma 421-7500. Athygli er vakin á því að mörg fyrirtæki og stéttarfélög styrkja starfsmenn til endurmenntunar. Fólki er bent á að kynna sér málið. Víkurfréttir 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.