Víkurfréttir - 04.02.1999, Side 17
Kristbjörn Albertsson, formaður UMFN:
NJARÐVÍK VINNUR
„Leikir þessara nágranna hafa alltaf verið mjög jafnir og skemmti-
legir.
Keflavík hefur verið á mikilli siglingu í síðustu leikjum, skorað
grimmt og leikið ágæta vöm. Njarðvík aftur á móti hefur leikið
frekar ílla, sérstaklega síðari hálfleik í hverjum leik. Eg held að mitt
lið verði komið yfir þessa erfiðleika fyrir laugardaginn. Leikur
liðsins mun smelía saman og UMFN mun standa upp sem sigur-
vegarar. Eg vil ekki spá fyrir um tölur en
vil nota tækifærið og kvetja alla Njarðvíkinga til að mæta á leikinn.
Stuðningur áhorfenda getur ráðið úrslitum.
ÁFRAM NJARÐVÍK.”
Stefán Bjarkason,
íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar:
DRAUMASTAÐA
„Ég hlakka rosalega til laugardagsins. Þetta hlýtur að vera drauma-
aðstaða hvers íþróttafulltrúa, ég fer rólegur í leikinn og ánægður
heim því bikarinnn kemur þangað sem hann á heima í leikslok, til
Reykjanesbæjar. Ég hef sterkar taugar til beggja liða enda orðið
þess heiðurs aðnjótandi að hafa leikið með báðum liðum.
Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur:
KEFLVÍKINGAR í GDÐU FORMI
„Leikir Keflavíkur og Njarðvíkur í körfuknattleik hafa alltaf verið
mjög skemmtilegir og spennandi. Ekki er hægt að hugsa sér betri
bikarúrslitaleik fyrir körfuboltann en á milli þessara tveggja félaga.
Leikurinn verður án efa mjög spennandi og mun dagsformið ráða
þar miklu um. I liði Keflavíkur er valinn maður í hverri stöðu og
liðið býr yfir mörgum þriggja stiga skyttum sem erfitt er að stoppa.
Ég hef þá trú að sigurinn verði Keftvíkinga því þeir eru í feikna
góðu formi og hafa verið að spila góðan körfubolta í vetur með
Damon Johnson í fararbroddi.
Ég vil hvetja alla Keflvíkinga, Njarðvíkinga og aðra körfu-
boltaáhugamenn að fjölmenna nú í höllina og hvetja sitt lið til sig-
urs. ÁFRAM KEFLAVÍK.”
Gamlir og góðir
Þessi er gömul og góð og báðir kappamir eldri körfuboltamenn
(ekki gamlir) og voru góðir. Isak Tómasson og Gunnar
Þorvarðarson sjást hér fagna sigri í deildinni árið 1986. Flottir!
Þriggja
sliga
þrumulið
Keflvíkingar hafa skorað flest
stig í DHL-deildinni, 1519
(94.9) , en Njarðvíkingar
fengið fæst stig á sig, 1199
(74.9) .
Þessar 11,8 þriggja stiga körf-
ur Keflvíkinga á leik skila
þeim í fyrsta sæti á þeim
vettvangnum og munu þeir
setja nýtt Islandsmet takist
þeim að halda þessu meðaltali
út tímabilið.
Foster tryggði
fyrsta bikarinn
Keflvíkingar urðu bikarmeistarar í fyrsta skipti árið 1994 og
sigmðu nágranna sína úr Njarðvík í frábæmm leik í Höllinni.
Bandaríkjmaðurinn Raymond Foster fór á kostum í lokin og
tryggði öðmm fremur Keflavík sigur.
Ekki forsala
Engin forsala verður fyrir leikinn á laugardag. Miðaverð er
eftirfarandi: Fullorðnir kr. 800, börn (8-12 ára) kr. 400,
ókeypis aðgangur fyrir börn undir 8 ára.
Hafist verður handa við að mála stuðningsmenn liðanna í
íþróttahúsunum liðanna kl. 14:00.
Stuðningsmenn Keflvíkinga hittast í Skothúsinu kl. 14:00.
Þar verða seldir bolir í litum liðsins á kr. 1.000.
Stuðningsmenn Njarðvíkinga hittast á Þristinum kl. 14:00.
Þar verða seldir bolir í litum liðsins á kr. 800.
Reykjanesbær og SBK hf. bjóða upp á sætaferðir á leikinn
og verður lagt af stað frá báðum íþróttahúsum kl. 15:30.
Hitaveita
Suðurnesja
er þjónustufyrirtæki í eigu sveitarfélaga
á Suðurnejsum og ríkisins
Hvetjum
Suðurnesjamenn
til aó fjölmenna á
bikarúrslitaleikinn í
höllinni á laugardaginn
MEGIBETRA LIÐIÐ VINNA
EZ ÓfltfS 3
Sími skiptiborös 422 5200
beinir símar eft/'r lokun skiptiborðs
Skrifstofa: 422 5220
Hitaveitudeild: 422 5230
Rafmagnsdeiid: 422 5240
Orkuver Svartsengi: 426 8611
Sími bakvaktar: 421 3536
Hitaveita
Suðurnesja
Brekkustíg 36 - Sími 422 5200
RENAULTBIKARINN - www.vf.is