Víkurfréttir - 27.05.1999, Blaðsíða 11
Staðardagskrá 21 - Ónnur grein:
Leitum leiða til þess að skila
jörðinni af sér jafngóðri, helst
betri, til komandi kynslóða
Ifyrstu grein minni um
Staðardagskrá 21, sem birtist
í síðasta tölublaði Víkur-
frétta, fjallaði ég um þátttöku
Reykjanesbæjar í Staðar-
dagskrárverkefninu. En hvað
varð til þess að menn fóru að
huga að gerð Staðardagskrár
21? Ástæðan var einfaldlega sú
að á síðustu áratugum hafa
orðið ýmsir þeir atburðir í
umhverfismálum heimsbyggð-
arinnar sem leitt hafa hugann
óþægilega eindregið að
afleiðingum þess að aðhafast
ekki á þessu sviði. Má þar nefna
sprengingu í efnaverksmiðju
Union Carbide f Bhopal á
Indlandi, 3. desember 1984,
brunann í kjarnorkuverinu í
Chernobyl í Úkraínu 25. aprfl
1996 og strand Exxon Valdez
olíuskipsins við strendur Alaska
24. mars 1989. Þessir atburðir
hafa enn fremur minnt á þá
staðreynd að mengun virðir
engin landamæri.
Á heimsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna um umhverfi og
þróun í Ríó 1992 samþykktu
fulltrúar 179 þjóða ályktun sem
nefnd var Dagskrá 21 (Agenda
21). Þar er kveðið á um að
sérhveit ríki skuli gera áætlun
um þróun samfélagsins fram á
næstu öld. Áætlunin á að taka
tillit til vistfræðilegra, efna-
hagslegra og félagslegra þátta
og hafi markmiðið uni sjálf-
bæra þróun að leiðarljósi. En
hvað er sjálfbær þróun? Nefnd
á vegum Sameinuðu þjóðanna
skilgreindi hugtakið þannig
„Sjálfbær þróun er þróun sem
gerir okkur kleift að mæta þörf-
r Heilsuhlaup
Krabbameins-
félagsins
Hið íirlega Heilsuhlaup
Krabbameinsfélags-
ins verður fimmtu-
daginn 3. júní nk.
Hlaupið hefst að venju við
Sundmiðstöðina við Sunnu-
braut. Keppt verður í 3,5
km. hlaupi og 7,0 km.
hlaupi. Þátttökugjald er kr.
600 fyrir 15 ára og eldri og
kr. 400 fyrir 14 ára og yngri.
Innifalið í gjaldinu eru
merktur bolur og viður-
kenningarpeningur. Islands-
bankinn í Keflavík styrkir
hlaupið ma.a. með happ-
drættisvinningum sem
dregnir verða út að hlaupi
loknu auk verðlauna fyrir
þrjú efstu sætin í karla- og
kvennaflokki. Skráning í
hlaupið hefst við Sundmið-
stöðina kl. 17 og hlaupið
sjálft hefst kl. 19.
LÍ_____________________I
um okkar án þess að stefna í
voða möguleikum komandi
kynslóða á að mæta þörfum
sínum“. Þetta þýðir einfaldlega
að menn eiga að leita leiða til
þess að skila jörðinni af sér
jafngóðri, helst betri, til kom-
andi kynslóða.
I 28. kafla áætlunarinnar er
fjallað um hlutverk sveitar-
stjóma sem það stjómvald sem
næst stendur fólkinu. Sem slíkar
gegna þær þýðingarmiklu
hlutverki við að mennta og
hvetja almenning á leið til sjálf-
bærrar þróunar. I texta Dagskrár
21 er sérstaklega tekið fram að
sveitarstjórnir skuli búa til
Staðardagskrá 21 í samráði við
íbúana á hveijum stað. Þetta er
með öðrum orðum ekki
einkamál sveitarstjórna. Þar
segir ennfremur að á árinu 1996
ættu allar sveitarstjómir, í sam-
ráði við íbúana á hverjum stað,
að hafa komið sér upp Stað-
ardagskrá 21 fyrir samfélagið.
Eins og sjá má af þessu eru
íslensk sveitarfélög heldur á
eftir áætlun en segir ekki ein-
hvers staðar að seint sé betra en
aldrei ?
Hugmyndafræðin gengur út á
að hver hugi að sínu nánasta
umhverfi og taki til í eigin
ranni. Aðeins þannig muni
takast að ná til alls heimsins.
Slagorð verkefnins er „Think
Globally, act Locally" sem
mætti þýða .Jiugsaðu hnattrænt,
aðhafstu heima“.
I næsta pistli mun ég gera
nánari grein fyrir hvað búið er
að gera í Staðardagskrár-
verkefninu hér hjá okkur í
Reykjanesbæ. Áhugasömum er
bent á heimasíðu verkeíhins en
hún er www.samband.is/
dagskrá21
f.h. stýrihóps Staðardagskrár
21 í Reykjanesbæ
Kjartan Már Kjartansson,
formaður
Atvinna
Starfskraftur óskast til
sumarafleysinga í verslun okkar.
Vinnutími er frá 9-13.
Upplýsingar á staðnum. ^
RAFBUÐ
HafnargÖtu 52 • Keflavik - SIMI 421 3337
‘K.&.
Auglýsingasíminn er 421 4717
Hitaveita
Suðurnesja
Brekkustíg 36 - Sími 422 5200
Utboð
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í verkið
„Spennistöð á varnarsvædi, Grindavík"
Verkið felst í að byggja 80m2 viðbyggingu við
núverandi rafstöð fyrir varnarsvæðið við Grindavík.
Verkinu skal að fullu lokið 20. ágúst n.k.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Hitaveitu
Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík, frá og með
mánudeginum 31. maí 1999 á kr. 2.000.- m/vsk.
Tilboð verða opnuð á sama stað fimmtudaginn
10. júní 1999 kl. 13:00.
Hitaveita Suðurnesja.
HELAG KEFLAVM
Vegna,
verb i
Inikillar eftirspurnar
aukasýningar ó f //
Allra sioustu synmgar
lau
sun
Miðnætursýning
*iard. 29 maí kl. 23
1
nud. 30. maí kl. 21
Þýbing: Leikstjóri: Höfundar:
Júlíus Cuðmundsson Andrés Sigurvinsson Anthony McCarten
Omar Olafsson Stephen Sinclair
Sýnt er í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17
Mibapantanir í síma 421-2540 - Mibaverb kr. 1.200
^Mibasalajo£narJveimurJimurnf^rirjjnin^i^
Víkurfréttir
11