Víkurfréttir - 22.07.1999, Blaðsíða 3
Enn ekið of hratt á Sandgerðisvegi
Lögreglan í Keflavík mætti ökumanni á 150 krn hraða á Sand-
gerðisvegi kl. 04:49 aðfaramótt sl. sunnudags. Ökumaðurinn,
sem var einn í bifreið sinni, er 21 árs og má eiga vona á að öku-
skírteinið fari í mánaðarhvíld auk þess að þurfa að greiða nokk-
urs konar orlofsuppbót með því.
Fimm teknir í vikunni
Eftirlitssveitir lögreglunnar í Keflavík stöðvuðu 5 ökumenn í
liðinni viku sem reyndust lykta af áfengi og voru kærðir fyrir
| meinta ölvun við akstur. Tveir voru hirtir á laugardagskvöldi,
einn á sunnudag, einn á mánudegi og sá síðasti í gær. Var þar á
ferðinni hollenskur karlmaður, tengdur vamarliðinu, sem lög-
reglumenn stöðvuðu fyrir að aka á 137 km. hraða á Reykjanes-
braut við Vogastapa kl. 04:13 aðfaramótt miðvikudagsins.
Útsalan í fullum gangi
Tjalddýnur frá kr. 499.-
Regnslár frá kr. 199.-
Kælibox frá kr. 1.995.-
Gítar verð kr. 2.995.-
Tjöld 2ja manna kr. 4.995.-
Bakpoki og stóll kr. 995. -
ÚTIVISTARFÖT í ÚRVALI
Skór á útsölu
50% a fsláttur
HAGKAUP
• Njarðvík •
• IMjarðvík •
Víkurfréttir
3