Víkurfréttir - 22.07.1999, Page 11
Fyrstu vidskiptavinir Bílasölunnar Brófinni voru leystir út með
blómum. Þeir voru Erla Fanney Sigurbergsdóttir, sem eignaðist
rauðan Chryster Stratus og Kolbrún Björgvinsdóttir sem keypti sér
gráan Peugeot 206 og eru hér i félagsskap Magnúsar Jóhannes-
sonar. eiganda bílasölunnar.
Nýr bílasali
í Grófina
Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastóri Softa og Þórður Guðmunds-
son, framkv.stj. rekstrarsviðs Landsvirkjunar.
Landsvirkjun kaupir
af Softa eltf.
Nýr rekstraraðili, Magnús Jó-
hannesson, hefur tekið við
rekstri BG-bílasölunnar í
Grófinni og nefnist hún nú
Bílasalan Grófinni og var
opnuð föstudaginn 16. júlí
síðastliðinn. „Eg hef fylgst
með bflasölugeiranum undan-
farin ár og tel rétta tfmann
vera kontinn til að leggja fjár-
magn og tíma í hann. Bflasal-
an Grófinni er með umboð
fyrir gæðabifreiðamar Musso,
Korando, Porche, Alfa
Romeo, Ferrari,Chrysler,
Dodge, Jeep, Peugeot, Fiat,
Suzuki, Iveco, Kia og Da-
ewoo auk þess sem við bjóð-
um upp á sölu notaðra bif-
reiða. Eg neita því ekki að ég
er spenntur fyrir verkefninu
og hlakka til að takast á við
samkeppnisaðilana hér á Suð-
umesjum.
Grindvík-
ingar ráða
menningar-
fulltrúa
Dr. Guðmundur Emilsson var
í gær ráðinn menningarfulltrúi
Grindvíkinga en hann mun
jafnframt verða skólastjóri
Tónlistarskóla Grindavíkur og
annast yfirstjóm kirkjutónlist-
ar og störf kantórs. Guðmund-
ur er fjölmenntaður listamað-
ur með víðtæka reynslu af
stjómunarstörfum og þekktur
fyrir störf sín bæði hérlendis
og erlendis. Ráðning menn-
ingarfulltrúa nú og ráðning
ferðamála- og markaðsfulltrúa
fyrir skömrnu er hluti af
markvissri stefnu bæjaryfir-
valda að gera Grindavfk að
fjölskylduvænum bæ sem
byggir á sjávarútvegi, ferða-
þjónustu og víðtækum upp-
byggingarmöguleikum mann-
lífsins í tengslum við jarðhita-
svæðin.
Lúðuþjófnaðar-
faraldur?
í kjölfar skrifa VF um lúðu-
fundinní Grindavík hafði Sigur-
laug Tryggvadóttir, umsjónar-
maður kirkjugarðsins á Stað
samband og sagði staðsetningu
fundarms í fréttinni alls ekki
rétta. ,Jig fann lúðumar í rusla-
tunnu við kirkjugarðinn á Stað.
Það er eiginlega ekki hægt að
lýsa aðkomunni. Þær voru
þama fjórar bundnar saman og
svo illa útlítandi að ég sá ekki
einu sinni hvaða fiskur þetta
var. Maðurinn minn kippti af
þeim einu merkinu og þannig
þekktust þær. Mér finnst alvar-
legt að henda þessu við kirkju-
garðinn enda heilagur reitur í
augum flestra." Vekur staðsetn-
ing fundarins upp þá spumingu
hjá VF hvort fleiri hafi verið að
verki við lúðuþjófnaðinn eða
óskyldir aðilar þama á ferð.
Softa ehf. í Keflavík og
Landsvirkjun undirrituðu í
síðustu viku samning unt um
kaup Landsvirkjunar á við-
halds- og verkstjórnarkerfi
Softa ehf., DMM. Kerfið
verður sett upp í Blönduvirkj-
un, Kröflu og Laxárvirkjun og
tekið í notkun fyrir 1. ágúst
1999.
Hjá Softa ehf. starfa 8 manns
við að þróa og markaðssetja
hugbúnaðarlausnir og meðal
verka fyrirtækisins eru við-
haldskerfið DMM sem þróað
var fyrir Hitaveitu Suðumesja
og áætlanakerfið Keilir sem
þróað var í samvinnu við Raf-
magnsveitur ríkisins.
FLUGMALASTJORNIN
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
Atvinna
Skrifstofustarf til næstu 6-12 mánaða er
laust til umsóknar. Góð tölvukunnótta er
nauðsynleg. Æskilegt er að umsækjandi
geti hafið störf um miðjan ógúst mónuð.
Laun samkvæmt, kjarasamningi
Félags flugmólastarfsmanna ríkisins.
Nónari upplýsingar um starfið eru
veittar óskrifstofu Flugmólastjórnar
i Flugstöð Leifs Eiríkssonar
og i síma 425 0600
Flugvallarstjórinn ó Keflavíkurflugvelli
Björn Ingi Knútsson
Astkær eiginkona mín, módir
okkar, tengdamódir og amma
Heidur Gudmundsdóttir
Fagragardi 8,
Keflavík
lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur iaugardaginn
10. júlí. Útförin hefur farid fram í kyrrþey
Skjöldur Þorláksson,
Sólveig Skjaldardóttir, Rúnar ingibergsson,
Arnar Skjaldarson, Sigrídur Þormar Vigfúsdóttir,
Gudbjörg Skjaldardóttir
og barnabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra,
sem sýndu okkur samúð og
vináttu vid andlát og útför
drengsins okkar
Jóns Freys Óskarssonar
Valborg Jónsdóttir, Högni Jensson,
systkin, mágar, mágkonur og systkinabörn
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við útför eiginmanns
míns, föður og afa.
Gudjóns Jósefs Borgarssonar
Sérstakar þakkir til bræðranna í Nirði,
KKKK, Karlakórs Keflavíkur, starfsfólks
Hitaveitu Suðurnesja, einnig
undirleikurum og stjórnanda.
Guð blessi ykkur öll,
Lúlla Kristín og börnin
Víkurfréttir
11