Víkurfréttir - 16.09.1999, Blaðsíða 2
★ ★★★★★★★ ★★"★★"★★ ★ ★★ ★ ★-★ ★ ★
★ f-------------------^ ★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
Sendibílaþjónusta
Suðurnesja
SÍMI 896 9337
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
Faxabraut 34a, Ketlavík.
4ra herb. íbúð n.h. Sameiginl.
inngangur með e.h. Hagstæð
lán áhvílandi. 4.800.000.-
Norðurvellir 54, Ketlavík.
140m; parhús með 4 svefnh.
og 30m! bílskúr. Vinsæll
staður. 11.700.000.-
Heiðarbraut 11, Garði.
188m3 einbýli á 2 hæðum
með 35m! bílskúr. Glæsilegt
hús á besta stað með 5 herb.
12.900.000.-
Ásabraut 27, Sandgerði.
76m! raðhús með 2 svefn-
herbergjum í góðu ástandi á
góðum stað.
5.700.000,-
*v:ÍSÉÉ* 1!§
Gónhóll 24, Njarðvík.
139m! parhús með 3 svefnh.
og 23m! bílskúr. Eign í góðu
ástandi, skipti möguleg.
13.000.000,-
^ IHÍ* iS ílí^
ili r? ra
Kirkjuvegur 34, Keflavík.
3ja herb. íbúð á e. h. í fjór-
býli. Ýmsirgreiðslumögu-
leikar Laus strax, nýtekin í
gegn að innan. Tilboð.
Brekkustígur 12, Njarðvík.
271m! einbýli með bílskúr.
Eign með 4 herb. og hægt að
gera íbúð á 1. hæð. Skipti á
minni eign. 12.800.000.-
Suðurgata 48, Keflavík.
125m! endaparhús á 2 hæð-
um með 4 svefnh. Skipti á
raðhúsi eða einbýli möguleg.
’ 8.000.000,-
Miðgarður 7, Keflavík.
141m! einbýli með 35m! bíl-
skúr. Geymsla og gryfja
undir bílskúr. 4 svefnh. og
25m: sólhús. 14.800.000.-
Suðurgata 43, Keflavík.
79m! hæð í tvíbýli með 33m!
bílskúr og sérherb. á n.h.
með baðherbergi og sér inn-
gangi. 7.200.000.-
Vínveitingaleyfisumsókn Casino:
Fjölskyldu-
málaráð
Fjölskyldu- og félagsmála-
ráð Reykjanesbæjar er á
móti því að Jóni Magn-
úsi Harðarsyni verði
veitt áfengisveitingaleyfi fvrir
skemmtistaðinn Club Casino
í Gróftnni í Keflavík.
Ráðið tók umsókn Jóns M.
Harðarsonar fyrir á síðasta
fundi sínum sl.mánudag, en
ráðið er aðeins umsagnaraðili
því endanleg ákvörðun verður
tekinn á bæjarstjómarfundi nk.
þriðjudag. Jón uppfyllir öll skil-
yrði sem þarf til útgáfu áfengis-
veitingaleyfis skv. áfengislög-
um en í greinagerð ráðsins seg-
ir: „Fjölskyldu- og félagsmála-
ráð getur þrátt fyrir það ekki
mælt með útgáfu áfengisveit-
ingaleyfts til hlutaðeigandi veit-
ingastaðar vegna eðlis þeirrar
starfsemi sem þar er ætlað að
fari fram skv. yfirlýsingum
rekstraraðila í fjölmiðlum og
víðar. Það er álit fjölskyldu- og
félagsmálaráðs að sá rekstur
sem ætlaður er á umræddum
veitingastað sé ekki til þess fall-
og félags-
andvígt
inn að styrkja þá málaflokka
sem ráðinu er ætlað að styðja.
Þvert á móti telur ráðið miklar
líkur á að slíkur staður muni
auka á þann vímuefnavanda
sem fyrir er og skerða siðgæð-
isvitund íbúa Reykjanesbæjar
og vísar máli sínu til stuðnings
til þeirrar opinberu umræðu
sem verið hefur í tengslum við
rekstur áþekkra veitingastaða t'
Reykjavík. Fjölskyldu- og fé-
lagsmálaráð er stolt af þeim
mörgu forvarnarverkefnum
sem unnið hefur verið að í
Reykjanesbæ á undanförnum
ámm og þeim undirtektum sem
sú vinna hefur hlotið meðal al-
mennings. Ráðið telur að hlúa
þurfi frekar að slíku starfi og
leita allra tiltækra leiða í for-
vörnum, með bæjaryfirvöld í
broddi fylkingar. Fjölskyldu- og
félagsmálaráð beinir þvf jafn-
framt til bæjarstjómar að sam-
hliða reglugerð um áfengisveit-
ingaleyfi í sveitarfélaginu, verði
settar reglur varðandi rekstur
skemmtistaða í Reykjanesbæ."
y V
hægt að
neita
Casino
um leyfi?
Samkvæmt heimildum
Víkurfrétta er bæjar-
stjórninni óheintilt að
hafna Jóni M. Harðar-
syni eiganda Club Casino um
áfengisleyfi á þeim forsend-
um að þar sé sýndur nektar-
dans. Hins vegar er bæjar-
stjórn heimilt að neita staðn-
um uin áfengisleyfi ef meiri-
hluti hlutafjáreigenda hefur
komist í kast við lögin eða
skuldar opinber gjöld. Þetta er
sama niðurstaða og Reykja-
víkurborg lékk eftir að borg-
arstjórn lét gera ítarlega at-
hugun á lögmæti slíkra
skemmtistaða.
■ Skipstjóri og stýrimaður Hauks GK sýknaðir:
Mlstök Landhelgisgæslunnar
Olafur Þórðarson, skip-
stjóri Hauks GK 25, og
Sverrir Andrésson stýri-
maður voru þann 9. sept-
ember síðastliðinn sýknaðir fyr-
ir Héraðsdómi Reykjaness af
ákæru um veiðar með ólögleg
veiðarfæri. Þann 10. maí síðast-
liðinn stöðvaði varðskipið Oð-
inn veiðar Hauks GK á Eldeyj-
arbanka (GPS 63°49, 65'N -
023° 52,72’) og að loknum
botnvörpumælingum Land-
helgisgæslumanna var Haukur
færður til hafnar t' Sandgerði
þar sem skipið var sett í hafn-
bann.
Gamli, þvældi, pokinn
margmældur
Umrætt meint ólölegt veiðar-
færi var gömul botnvarpa sem
samkvæmt framburði Olafs
skipstjóra, fyrir rétti, hafði
staðið til að kasta sökum þess
hve gamall hann var en verið
haldið um borð sem vara- eða
neyðarpoka og er hann skoðaði
pokann fyrir notkun hafi hann
talið að möskvar pokans væru
líklegast of stórir. Gamli pokinn
var fyrst mældur af 2. stýri-
manni og háseta Oðins og síðan
af 3. stýrimanni varðskipsins. I
Sandgerðishöfn mældi starfs-
maður Netaverkstæðis Suður-
nesja pokann á
ný að viðstödd-
um rannsóknar-
lögregluþjóni úr
Keflavík og að
lokum mældu
dómkvaddir
matsmenn poka-
greyið. Niður-
staða mælinga
dómkvaddra
matsmanna , sem
m.a. töldu ástand
pokans vera lé-
legt, var liöfð til grundvallar
ákvörðunar Guðmundar L. Jó-
hannessonar, héraðsdómara.
Möskvastæróin innan
viöurkenndra vikmarka
gæslunnar
Málaflutningur ákæruvaldsins
féll í raun um sjálfan sig þegar í
ljós kom að stærð möskvanna í
botnvörpunni var innan 3%
vikmarka Landhelgisgæslunnar
og samkvæmt óskráðri en við-
tekinni venju gæslunnar væri
ekki kært í slt'kum tilfellum
heldur lagt að skipsstjórnar-
manni að taka veiðarfærið úr
notkun.
Gæslan aö vinna sína
vinnu en...
Olafur Þórðarson, skipstjóri,
var ánægður með málalokin.
„Við vorum bara að sinna okkar
vinnu og notuðum pokann í
góðri trú. Möskvastærð veiðar-
færa er mæld þegar þau koma
ný frá Hampiðjunni og sam-
kvæmt reglunni ættu
möskvamir að stækka við notk-
un. I þessu tilfelli virðist sem
pokinn hafi skroppið saman þar
sem hann var geymdur á pallin-
um, í sól og regni. Það var mik-
ill léttir að fá þessa niðurstöðu
því það er mjög óþægilegt að
vera grunaður um ólöglegt at-
hæft. Eg veit Landhelgisgæslan
var aðeins að vinna sína vinnu
en það var slæmt að missa úr
veiðidagana sem við vorum í
farbanni vegna mælinga sem í
besta lagi voru á gráu svæði."
Útgefandi: Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23,260 Njarðvík, sími 421 4717, fax 4212777
* Ritstjóri: Páil Ketilsson, sími 893 3717 • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárdarson, sími 898 2222 • Blaóamenn: Jóhannes
Kristbjörnsson, sími 861 4717, Silja Dögg Gunnarsdóttir • Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir, Kolbrún Pétursdóttir, Jónas Franz
Sigurjónsson • Útlit, umbrot og litgreining: Víkurfréttir ehf. • Filmuvinna og prentun: Stapaprent ehf. • Stafræn útgáfa: vmw.vf.is
2
Víkurfréttir