Víkurfréttir - 16.09.1999, Blaðsíða 6
Mikill skortur er á öllum teg-
undum eigna á skrá hjá fast-
eignasölum á Suðurnesjum.
Einnig er fyrirséður skortur á
byggingarlóðum á vorumán-
uðum. Fasteignaverð og
leiguverð hefur hækkað tölu-
vert á undanförnum misser-
um.
Aukin eftirspurn eftir eign-
um á öllum Suðurnesjum
Fasteignasalar á Suðumesjum
eru sammála um að mikil
hreyfing sé á fasteignamark-
aðinum um þessar mundir.
Það vantar fleiri eignir á sölu-
skrá og mikil eftirspum er eft-
ir flestum gerðum af húsnæði,
hvort sem það eru 3 herbergja
íbúðir, raðhús, góðar hæðir
eða einbýli, en dýrari eignir
eru erfiðari í sölu. Vegna auk-
innar eftirspurnar hafá fast-
eignir hækkað í verði. Eignir í
Keflavík og Njarðvík em enn
vinsælastar en þó hefur verið
töluverð eftirspum eftir eign-
um í Vogum, Höfnum, Sand-
gerði og Garði. Jón Gunnars-
son hjá Fasteignasölunni
sagði að þó að eignir í I-
Njarðvík og Höfnum væri erf-
iðari í sölu þá væri alltaf ein-
hver hreyfing á þeim og að
fólk af Stór-Reykjavíkur-
svæðinu sýndi eignum á þess-
um stöðum þó nokkurn
áhuga.
Auðvelt að fá lán til hús-
næðiskaupa
„Þróunin er sú að fólk fer
♦ v ♦' v
JB V > si*-■•4 • * * é
«'■ B * •
> -«■- » *J
Uppsveifla á
fasteignamarkaði
beint í stærri og betri fbúðir en
áður. Ungir húskaupendur
virðast sleppa fyrsta þrepinu,
þ.e. að byrja í minni og eldri
íbúðum. Eg tel ástæðuna vera
að aðgangur að lánsfjármagni
er mun auðveldari en áður. Nú
getur fólk fengið lán fyrir
70% af kaupverði og oft grípa
bankarnir inní og lána 30%
sem á vantar”, sagði Sigurður
Ragnarsson hjá Eignamiðlun
Suðumesja.
Skortur á byggingarlóðum
fyrirséður
Sigurður sagð jafnframt að
mikil stemming væri hjá
bamafólki, fyrir svæðinu sem
Heiðarskóli þjónar: „Það er
mikil hreyfing á nýbygging-
REYKJ ANESBÆR
Útboð
Eftirtalin útbodsgögn verda til sölu á skrifstofu
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Keflavík,
frá og med föstueginum 17. september 1999.
Skólabókasafn Holtaskóla - endurbætur og innréttingar
Um er að ræða alla vinnu og efni við breytingar á
innveggjum, dúkalögn, niðurhengd loft, innréttingar,
bókaskápa og frágang eins og nánar er lýst í verklýsingu.
Helstu magntölur eru:
Nýir veggir ca. 16 Im
Niðurfelld loft ca. 145m2
Gólfdúkur ca 400m2
Málun ca 400m2
Bókaskápur 30 stk.
Verk skal unnið á tímabilinu 23.-31. október 1999.
Undirbúningur utan skóla hefst þó strax eftir að
tilboði hefur verið tekið.
Verð útboðsgagna er kr. 2000.
Tilboð verða opnuð að Tjarnargötu 12, föstudaginn 24.
september 1999 kl. 11.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ
um á Sjafnarvöllum sem ég sé
um að selja”, og Jón tók í
sama streng og sagði að hann
væri farinn að fá fyrirspumir
um verðandi parhús á Ægis-
völlum. Jón annast líka sölu á
fjölbýlishúsi sem er byrjað að
reisa á horni Túngötu og Að-
algötu. „Ég er búinn að lofa
einum 10 íbúðum en er ekki
búin að ganga frá sölunni.
Þetta eru góðar 4 herbergja
íbúðir á þremur efstu hæðun-
um, allar fullbúnir en án gólf-
efna.” Guðlaugur H. Guð-
laugsson hjá Fasteignasölunni
Stuðlabergi sagði að það væri
allt of lítið byggt miðað við
eftirspurn og það sárvantaði
lóðir og Sigurður sagði að
þessi lóðaskortur yrði vanda-
mál á vormánuðum ef ekki
yrði gripið til neinna ráðstaf-
ana á næstunni.
Leiguverö hækkar
Leigumarkaðurinn er mjög
erfiður um þessar mundir og
leiguverð hefur hækkað um
10% frá því á síðasta ári.
„Þegar skortur er á leiguhús-
næði, eins og núna, fer fólk
frekar út í að kaupa”, sagði
Guðlaugur. Vöntunin er mest
á þriggja herbergja íbúðum
því meirihluti þeirra sem eru
að leita sér að leiguhúsnæði
em ung pör. En það er einnig
þó nokkuð um að fólk utanaf
landi vanti leiguhúsnæði.
„Þetta er oft fólk sem flytur
suður og ætlunin er að setjast
að í Reykjavík, en verð-
sprengingin á fasteigna- og
leigumarkaðinum þar, hefur
gert það að verkum að það
kemur frekar hingað á
Reykjanesskagann. Oft er
þetta fólk sem á eignir en get-
ur ekki selt þær”, sagði Sig-
urður V. Ragnarsson að end-
ingu.
HEILSUHORN VF C)G MIÐBÆJAR
Sykursætir unglingar
Islenskir unglingar borða
óvenjumikinn sykur. Meðal-
neysla unglinga er hvorki
meira né minna en 178
grömm á dag sem samsvar-
ara u.þ.b. 2 dl. af sykri.
Hluti sykursins keniur úr
fæðutegundum sem em sæt-
ar frá náttúmnnar hendi, t.d.
ávextir, hreinir safar eða
mjólk. Þegar sá sykur hefur
verið dreginn frá heildar-
neyslunni eru enn eftir 107
grömm af strásykri sem hver
unglingur innbyrðir á dag.
Meira en helmingur sykurs-
ins kemur úr gosidrykkjum
og öðrum sykruðum svala-
drykkjum. í hverjum hálfum
lítra af gosi eða ávaxtadrykk
em u.þ.b 50 grömm af sykri.
Unglingar drekka að jafnaði
um 3/4 lítra af sætum svala-
drykkjum á dag en minna en
eitt glas af vatni. Sykur þarf
ekki að vera skaðlegur svo
framarlega sem hans er
neytt í hófi. Öðm máli gegn-
ir þegar sykumeyslan er orð-
in það mikil að við fáum
ekki nóg af hollum mat. All-
ir vita líka að sykur skemmir
tennur og það er einmitt á
unglisnárum sem fullorðins-
tennur skemmast hvað mest.
Veljum frekar popp eða
ávexti til að narta í fyrir
f r a m a n
sjónvarpiö
og reynum
að hafa
bara einn
nammidag
á viku.
Drekkum
v a t n . SigríðurAnna
Minnkum skrifar
því notkun
sætra dry'kk-
ja og drekk-
um meira vatn í staðinn:
Vatn er sykurlaust.
Vatn er ókeypis.
Vatn er alls staðar.
Vatn er drykkur náttúrunnar.
Drckkum vatn !!!!
VÍTAMÍNDRYKKUR
1/4 (II. appclsínuþykkni
1/2 lítri vatn
1 lítri mysa
■nulinn kluki
Aðferð:
1. Blandaðu suman apppel-
sínuþykkni og vatni
2. Bættu niysunni út i
3. Berðu vítamíndrykkina
fram í liáum glösum með
muldum klaka
M I Ð B Æ R
HRINGBRAUT92 - KEFLAVÍK - SlMI 421 3dOO
6
Víkurfréttir