Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.01.2001, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 04.01.2001, Blaðsíða 9
Kvikindi ársins: I I Hvað er tveir metrar og baneitrað? i Ibúar í Reykjanesbæ eru af ýmsum toga eins og löggan komst að fyrir verslunarmannahelgi. Slöngur og eðlur voru gerðar upptækar á heimili sínu í Njarðvík en eigandinn var ekki með tilskilin leyfi fyrir þess háttar dýrahaldi. Löggan handtók sex svokallaða rottusnáka sem geta orið 15 ára gamlir og allt að 2 metra langir. Snákamir sem löggan tók voru þó aðeins ung- viði, 5 mánaða gamlir. Þá tók löggan einngi vatnadreka og fjórar litlar græneðlur. Eins gott að þarna voru ekki grameðlur! Sameining ársins: Sendumengar pappalöggup fll Grindavíkur Lögregluliðin í Keflavík og Grindavík voru sam- einuð á árinu. Hitafund- ur borgara var haldinn með lögreglu og dómsmálaráð- herra í Grindavík þar sem bæði var baulað og klappað. Nú er bara eitt lögreglulið fyrir allan skagann. Eftirför ársins: Hvaða bláu Ijós eru betta í speglinum? Lögrcglan átti í æsilegum eltingaleik við ökumann svartrar jeppabifreiðar um miðnætti í loka mars. Maðurinn hafði ekki stöðvað við merki lögreglu í Keflavík, licldur gaf allt í botn og ók fjallahakslcið alla leið inn í Voga með lögguna á hælunum. Þegar í Vogana var komið stöðvaði jcppinn en ökumaðurinn lagði á flótta hlaupandi. Hann varhlaupinn uppi af móðum og másandi lögreglumanni. Maðurinn mun hafa tekið bílinn í leyfis- leysi. Sanii maður tók annan bíl traustataki skiimmu síðar og velti honum og gjöreyðilagði við Hafnir. Vitni ársins: Hún dúhkaði upp sí svona. Geysiharður árekstur á gatnamótum Vesturgötu og Kirkjuvegar seint í apríl rennur seint úr minni lögregl- unnar. Þrátt fyrir mikið eignatjón gátu menn ekki annað en brosað á vettvangi þar sem uppblásin dúkka fyrir fullorðna karlmenn var í bifreið tjónvaldsins. Þögult vitni sagði löggan og allt loft úr því þegar laganna verðir komu á vettvang. Skíthús ársins: Allir að pissa aftast! Mikið óveður með til- heyrandi ófærð gerði í febrúar. Umferð um Reykjanesbraut sat föst í snjósköflum. Þar á meðal var rúta frá SBK. Þegar farþeg- unum var orðið mál að pissa varð bflstjórinn, Guðmund- ur Steindórsson að taka til sinna ráða. Hann útbjó ferðaklósett úr þvottafotunni og þar með var kvenfólkið um borð í góðum höndum... Uppljómun ársins: Ég er alveg Bepgnuminn Framlag Reykjanes- bæ jar lil Menningar- borgar var lýsing á Bergið í Kellavík. Það var lýst upp síðsumars og mættu um 10.000 manns á Ijósanótt í Reykjancsbæ. Brautin minnir á sig! Enn minnir Reykjanesbrautin á sig. Alvarlegt umferðarslys varð nálægt Vogaafleggjara í fyrradag en sem betur fer meiddist enginn alvarlega. Fjölmennum á borgarafund í Stapa fimmtudaginn 11. janúar kl. 20. Ath. Undirbúningsfundur vegna borgarafundar verður í kvöld 4. janúar á Sólsetrinu, Hótel Keflavík kl. 20. Allir velkomnir. FLÝTUM Taktu þátt í undirskriftarsöfnun á www.vf.is um flýtingu á tvöföldun tvöföldun Reykjanesbrautar. Reykjanesbrautar GLEBILEGT N Ý T T Á R 9

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.