Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.01.2001, Page 13

Víkurfréttir - 04.01.2001, Page 13
Á nýrri öld Kœru Suðunesjamenn, gleði- legt nýtt ár og innilegar þakkir jyrir öll gömlu árin. Yið aldahvörf líta menn gjarnan um öxl og kanna hvernig til hafl tekist. Það er skemmst frá því að segja að á Islandi hefur orðið bylting á öidinni. Við höfum unnið okkur úr örbyrgð til þeirrar efna að vera ein auðugasta þjóð heimsins. Þar hafa Suður- nesjamenn ekki verið neinir eftirbátar annarra lands- hluta nema síður sé. Suðurnesin eftirsóknarverð Ekki er það svo að erfiðleikar hafi ekki steðjað að okkar svæði eins og öðrum. Má þar nefna erfiðleikana í upphafi tíunda áratugarins þegar atvinnuleysi reið yfir Suður- nesin. Samstaðan lyfti okkur upp úr þeim erfiðleikum svo eftir var tekið. Mikil sókn fyrirtækja Suðurnesjamanna undanfarið hefur eflt bjartsýn- ina svo að Suðurnesin eru orðin eftirsóknarverð á ný. Má þar nefna framsýn áform Hita- veitu Suðumesja hf , samein- ingu þriggja stórra sjávar- útvegsfyrirtækja í eitt, útvíkkun á starfsemi Vísis hf. í Grinda- vík, vel heppnaða breytingu á Bláa lóninu og stækkun Leifs- stöðvar. A öðrum sviðum þá sér fyrir endann á byggingu D- álmu við Sjúkrahúsið í Kefla- vík, byrjunarframlag er veitt á fjárlögum til stækkunar Fjöl- brautarskólans, framlag til endurbyggingar Duus húsa og eflingar ferðaþjónustu á svæð- inu. Undanfarin ár hefur verið unnið ötullega að því að auka umferðaröryggi á Reykja- nesbrautinni. Þar rná sérstak- lega nefna lýsinguna sem hefur leitt til þess að umferðar- öryggið hefur batnað vemlega. Frekari umbætur eru þó mjög nauðsynlegar með tvöföldum Reykjanesbrautar og hafa þing- menn unnið að því af heilind- um ásamt sveitarstjómarmönn- um á Suðumesjum. Reykjanesbraut tvöfölduð Árið 1999 samþykkti Alþingi sérstaka langtímaáætlun í veg- agerð þar sem gert er ráð fyrir því að tvöfölda Reykjanes- brautina og ljúka verkinu árið 2010. Það var fyrsta raun- verulega skrefið af hálfu Al- þingis til að viðurkenna þessa framkvæmd opinberlega. I samræmi við langtímaáætlun Kristján Pálsson alþingisniaður hefur verið úthlutað fjármagni á vegaáætlun 2000-2004 sem nægir til umhverfismats, hönn- unar, útboðs og fyrsta verk- áfanga. I nefndaráliti sam- göngunefndar sem fylgir veg- aáætluninni er svo eftirfarandi klausa; „stefnt er að því að stómm hluta þess þ.e. tvöföld- un milli Straumsvíkur og Keflavíkur verði lokið 2006“. Samgönguráðherra hefur lýst yfir vilja sínum til að skoða frekari flýtingu þó ekki sé neitt ákveðið hvað það gæti orðið mikið. Vegaáætlun Núgildandi vegaáætlun mun samkvæmt upplýsingum Vega- gerðar ríkisins verða endur- skoðuð nú á vorþingi 2001 vegna breytinga í tengslum við fjárlög ársins. Heildar endur- skoðun vegaáætlunar verður svo væntanlega árið 2001-2002 og er áhugi til þess að sú áætlun nái yfir fimm ár frá 2002-2006. Mikilvægt er að tvöföldun Reykjanesbraut- arinnar komist öll inn á nú- verandi eða næsta áætlunar- tímabil svo framkvæmdir geti hafist strax af krafti. Umhverfismati getur lokið í sumar en hönnurn helst nokkuð í hendur við umhverfísmatið. Að mati Vegagerðar ríkisins gæti útboð farið fram árið 2002 og framkvæmdir hafist sama ár. Stærstu verktakar landsins telja mögulegt að ljúka verkinu öllu frá Hafnarftrði til Reykja- nesbæjar árið 2003 ef hafist væri handa snemma árs 2002. Það er þó háð undirbúningi framkvæmdanna og hvaða heimildir Alþingi og rikisstjóm gefa til flýtingar innan vega- áætlunar svo ljúka megi verk- inu því seni næst í einum áfanga. Kristján Pálsson alþingismaður Auglýsingasíminn er 421 4717 Ágætu viðskiptavinir Sjafnar hf. á Suðurnesjum. Gleðilegt ár og innilegar þakkir fyrir viðskiptin á liðnum árum Við hjá Sjöfn hf. hefjum nýja öld með því að efla, bæta og styrkja þjónustu okkar við Suðurnesjamenn og taka upp samvinnu við BYKO hf. í Reykjanesbæ. Hér eftir geta viðskiptavinir okkar gengið að málningar- og hreinlætisvörum Sjafnar hf. í verslun BYKO hf. að Vikurbraut 4. Þetta er liður í víðtækara samstarfi Sjafnar hf. við BYKO á landinu öllu. Gerum árið 2001 að Sjafnarári á íslenskum hreinlætis- og málningarvörumarkaði! •noi Daglega á Netinu í eiftt ár á www.vf.is A R GLEDILEGT N Ý T T 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.