Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.01.2001, Side 2

Víkurfréttir - 11.01.2001, Side 2
Fólki ógnaö með hagla- byssu Karlmaður var handtekiun í Sand- gerði á aðfaranótt sunnudags eftir að liafa ógnað hópi fólks nieð haglahyssu og barið mann í höfuðið með vopninu. Sá lilaut talsverða áverka eftir h'kamsárásina. Lögreglan í Kellavík lékk lil- kynningu um mikil slagsniál og ólæti í Sandgerði og fór á staðinn. Hópur fólks tók á móti lögreglu og sagði að maður þar í bæ hcfði komiö hlaupandi frá heimili sínum með haglabyssu, miðað henni á einn úr hópnum og barið hann síðan í liöfuðið með skeftinu. Árásannaður- inn var handtekinn og færður til yluheyrslu á lögreglustöð- inni í Keflavík. Húsleit var gerð á heimili hans og liald lagl á haglabyssuna. Við yfirheyrslur kom í Ijós að mennirnir tveir hefðu báðir verið að skemmta sér á Vit- anum í Sandgerði fyrr utn kvöldið. Ósætti kom upp á milli þeirra en vitni greinir nokkuð á um nákvæman að- draganda málsins. Málið telst upplýst. Verslunin í Stóru blokk- inni lokar Matvöruverslunin að Faxabraut 27 lokar um óákveð- inn tíma frá og með 1. jan- úar 2001. Ástæður lokunarinnar eru lagfæringar á húsnæði versl- unarinnar að utan og innan og endurskipulagning á rekstrinum. Fastir starfsmenn verslunarinnar llytjast í störf hjá öðrum deildum Sam- kaupa hf. Ljóst er að viða- miklar endurbætur hafa verið utandyra á húsnæðinu að Faxabraut 27 sl. ár og ólokið er lagfæringu á þeim hluta sem snýr að versluninni. Þá þarf að fara í vcrulegar end- urbætur innanbúðar eigi verslunin að standast kröfur nútímans. Strákarnir á Röstinni GK120 komu með vænan afla að landi í Sandgerði á mánudag. Aflinn fer allur til vinnslu hjá Karli Njálssyni ehf. í Garði þar sem rekin er myndarleg saltfiskvinnsla. Fiskverð er hátt þessa dagana enda margir sem vilja góða soðningu eftir allar stórsteikurnar um jól og áramót. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson ■ Félagsráðgjafar Reykjanesbæjar krefjast leiðréttingar á launum: Er Reykjanesbær að brjóta á konum? Starfsmenn Fjölskyldu - og félags- þjónustu Reykjanesbæjar hafa óskað eftir við bæjaryfirvöld að laun þeirra verði leiðrétt. Starfsmenn- irnir, sem eru eingöngu konur, telja að þeim sé mismunað á grundvelli kyns. Að sögn Ellerts Eiríkssonar (D), bæjar- stjóra, eru þessi mál í skoðun. Hann hyggst funda með félagsráðgjöfum á næstunni og fara yfir málin með þeim og útbúa síðan skriflega greinargerð. Jafnrétti er stefnan Forsaga málsins er sú að bærinn gerði samning við félagsráðgjafa í desember 1997. I viðauka samningsins kemur fram að það sé yfirlýst stefna Reykjanesbæjar að jafna launamun karla og kvenna sem ekki er hægt að útskýra nema á grundvelli kyns. Einnig segir að „með nýju launakerfi gefst tækifæri til að vinna að þeim markmið- um.“ I samningnum segir einnig að jafn- réttisáætlun Reykjanesbæjar sé hluti af samningnum en þar segir m.a.: „Við ákvörðun launa og fh'ðinda skal gæta þess að kynjum sé ekki mismunað.“ Styttra nám en hærri laun! Félagsráðgjafar Reykjanesbæjar segja í greinargerð sem þeir sendu frá sér fyrir skömmu, að þeir hafi komist að því að of- angreindum atriðum hafi ekki verið fylgt eftir. Þær taka dæmi um verkfræðing Reykjanesbæjar, sem er karlmaður og hef- ur jafnlangt háskólanám að baki og félags- ráðgjafar. Verkfræðingurinn er með rúm- lega 36 þús. kr. hærri grunnlaun en yfirfé- lagsráðgjafi sem er kona. Einnig er tekið dæmi um byggingafulltrúa bæjarins, sem hefur styttra háskólanám að baki en félags- ráðgjafi. Byggingafulltrúinn er karlmaður og hefur rúmlega 26 þús. kr. hærri gmnn- laun en yfirfélagsráðgjafi og 46 þús. kr. hærri grunnlaun en félagsráðgjafi. Til skýr- ingar má benda á að yfirfélagsráðgjafi heyrir beint undir félagsmálastjóra og er því á sama stað í skipuritinu og verkfræð- ingur. Erfiöir málaflokkar í greinargerð félagsrágjafa kemur fram að mannaforráð þeirra séu síst minni en þeirra hákskólamenntuðu karlmanna sem starfa hjá Reykjanesbæ og ábyrgð þeirra mikil þar þær starfa við mjög viðkvæma og erf- iða málaflokka eins og bamavemdarmál. Þær fara fram á leiðréttingu á launum sín- um þannig að grunnlaun yfirfélagsráðgjafa verði þau sömu og verkfræðings og gmnn- laun félagsráðgjafa verði þau sömu og byggingafulltrúa. Farið er fram á að leið- réttingin gildi frá því að kjarasamningar umræddra aðila tóku gildi. VIKUR PRÉTTIR Útgefandi: Vfloirfréttir ehf. kt. 710183-0319, Grundarvegi 23, 2G0 Njarðvík, simi 421 4717, fax 421 2777 Ritstjóri: Páll Hetilsson, sími 893 3717 pket@vf.is • Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222 hbb@vf.is Blaðamenn: Silja Dögg Gunnarsdóttir silja@vf.is • Auglýsingar: Kristin Njálsdóttir kristin@vf.is, Jónas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is Auglýsingagerð: Bragi Einarsson bragi@vf.is • Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is Útlit, umbrot, litgreining og prentvistun: Víkurfréttir ehf. • Prentvinnsla: Oddi hf. Dag'leg stafrEEn Útgáfa: WWW.vf.ÍS

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.