Víkurfréttir - 11.01.2001, Side 14
Dularfullur dauðdagi fiðurfes
„Skiljum ekkert íþessu“, segir eigandi eggjabúsins. - Setti utanaðkomandi aðili hænur ígáminn?
Umræddur sorpkassi við eggjabúið Gróður í Grófinni. VF-mynd: Hilmar Bragi
Starfsmönnum sorp-
hreinsunarfyrirtækis-
ins Njarðtaks í Reykja-
nesbæ brá heldur betur í
brún sl. mánudagsmorgun
þegar þeir tóku sorp frá
eggjabúinu Gróðri í Kefla-
vík. Lifandi hænur flugu úr
sorpgámnum og inn í rusla-
bílinn. Dýraverndunarsam-
band Islands hefur sent bréf
til lögregluembættisins í
Keflavík og fer fram á að
málið verði rannsakað. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni er rannsókn hafin.
Sigríður Asgeirsdóttir formað-
ur Dýravemdunarsambands Is-
lands segir þetta ekki vera í
fyrsta sinn sem lifandi hæsn frá
eggjabúum á Suðurnesjum,
fara með hræjum í sorpgám en
hún segir að sambandið hafa
fengið tilkynningu um slíkt fyr-
ir tveimur ámm síðan.
Reynir Jónsson, eigandi Gróð-
urs segist alls ekkert skilja í
þessu máli. „Við létum hæn-
urnar út í gám á föstudag en
við teljum ólíklegt að þær haft
lifað af í gámnum í frostinu í
fjóra daga. Það kannast enginn
hér við að hafa sett hænur út í
gám um helgina. Ég vil taka
það fram að við slátrum ekki
hænum heldur eru þær settar á
sláturhús. Við erum með varp-
hænur í búinu sem drepast eins
og gengur og þá em þær settar í
poka sem bundið er fyrir, eða
lokaðan kass og síðan út í gám
og það sér hver maður hvort
hænumar eru dauðar eða lif-
andi þegar þær eru settar í
poka. Mér finnst þetta mál bara
mjög skrýtið en við verðum
auðvitað að taka afleiðingunum
ef einhver ber eitthvað upp á
okkur, við getum ekkert gert“,
segir Reynir.
Gunnar Örn Guðmundsson
héraðsdýralæknis á Keldum
sagði í samtali við Víkurfréttir
að hann myndi ekkert aðhafast
að svo stöddu en hann fór og
skoðaði eggjabúið sl. þriðjudag
og talaði við starfsfólk. „Ókkur
finnst skrýtið hvemig þetta á að
hafa gerst. Fuglinn er snúinn úr
hálsliðnum, settur í poka sem
bundið er fyrir og að lokum
settur út fyrir í ruslagám. Búið
er að tala við starfsmenn og
enginn þeirra kannast við að
hafa sett hænumar út í gám.
Málinu er lokið af okkar hálfu
en við ítrekuðum við starfs-
menn að þeir yrðu að sann-
reyna hvort fuglarnir væru
dauðir áður en þeir væm settir
út í gám, sem þeir segjast þó
hafa gert hingað til“, segir
Gunnar Öm og telur ekki úti-
lokað að umræddar hænur hafi
ekki komið frá eggjabúinu
Gróðri, heldur hafi einhver sett
þær í gáminn.
Hluthafafundur
í Samkaupum hf.
Samþykkt að
auka hlutafé
veyna
samruna við
KEA
Samþykkt var á hluthafafundi í
Samkaupum hf. að hækka
hlutafé um 250 milljónir króna
sem er tvöföldun á hlutafé í
fyrirtækinu.
Samhliða var samþykkt að
núverandi hluthafar féllu frá
forkaupsrétti sínum.
Nokkrar umræður urðu á
hluthafafundinum sem var á
Glóðinni sl. mánudag. Þó var
að heyra góðan róm gerðan að
samruna við norðanmenn í
KEA.
Guðjón Stefánsson, fram-
kvæmdstjóri Samkaupa hf.
skýrði gang mál og undirbún-
ing að samrunanum. Hann
ræddi m.a. um nafnamál á
verslunum en ekkert hefur
verið ákveðið í þeim efnum.
„Gleðiley" Samfylhingarkveðja?
Skömmu fyrir jól sendi
Samfylkingin bæjar-
búum „jóla- og ára-
mótakveðju“ sína í blaða-
formi sem dreift var í öll hús
í Reykjanesbæ. Fyrir það
fyrsta var blaðið ótrúlega
neikvætt og lítt uppörvandi í
byrjun jólahátíðar. Hitt var
þó öllu verra að blaðið var
uppfullt af ósannindum og
jafnvel hreinum uppspuna.
Mér er í sjálfu sér sama þótt
að Samfylkingin eða aðrir
leggi í það tíma og peninga
að gefa út léleg blöð en get
ekki látið það óátalið ef
reynt er að Ijúga að bæjar-
búum um störf meirihluta
bæjarstjórnar. Tvö dænii
ætla ég að nefna hér.
Forvarnarfulltrúi felldur!
Samfylkingarmenn lögðu all
nokkuð pláss og höfðu stór
orð um að meirihluti Sjálf-
stæðismanna og Framsóknar-
manna í bæjarstjórn hefðu
öðru sinni snarfellt tillögu
Samfylkingarinnar um ráðn-
ingu forvarnarfulltrúa. Svo
mikið fannst þeim til fréttar-
innar koma að á forsíðu
blaðsins var vísað til greinar
„Mér erísjálfu sérsama þótt
að Samfylkingin eða aðrir leggi
í það tíma og peninga að gefa
út léleg blöð en get ekki látið
það óátalið ef reynt er að Ijúga
að bæjarbúum um störf meiri-
hluta bæjarstjórnar."
um málið sem var að ftnna inn
í blaðinu. Eini gallinn á frétt-
inni var sá að hún er fullkom-
lega ósönn.
Hið rétta er að tillaga Sam-
fylkingarmanna var lögð fram
í bæjarstjórn 5.des. s.l. og
tekin til afgreiðslu ásamt
fjárhagsáætlun ársins 2001
þann 19.des. Þar var henni
vísað til bæjarráðs til frekari
skoðunar þar sem hún er til
meðferðar nú. Tillagan var
því ekki felld, hvað þá snar-
felld, af hálfu meirihluta
bæjarstjómar.
Karfan - Korac Cup !
I blaðinu er hálf blaðsíða tekin
undir skammir á meirihluta
bæjarstjórnar vegna þess að
ekki hafi verið staðið við
loforð um að styrkja sameigin-
legt körfuknattleikslið Kefla-
víkur og Njarðvikur til þátt-
töku í Evrópukeppni félags-
liða eða Korac Cup eins og
keppnin heitir. Þetta er að
sjálfsögðu kolrangt. Hið rétta
er að körfuknattleiksdeiidir
félaganna tveggja voru styrkt-
ar um kr. 3.040.000,- vegna
þátttöku í þessari keppni og er
þar eingöngu um að ræða
peningalega styrki en ekki
óbeina styrki s.s. ókeypis afnot
af íþróttamannvirkjum o.s.frv.
Þótti mörgum hverjum nóg
um en meirihluti bæjarstjómar
var þeirrar skoðunar að þátt-
taka liðanna væri góð auglýs-
ing fyrir bæjarfélagið - sem
hún var.
Því skoti sem sérstaklega var
beint til mín og Skúla Skúla-
sonar, forseta bæjarstjórnar,
var því feilskot, enda var
greinin hreinn uppspuni.
Annað !
Ymislegt annað má nefna s.s.
greinar um skipulagsmál eða
um hitaveituna og fjárhags-
stöðu Reykjanesbæjar en
óþarft að fjalla nánar um það
hér. Er þar ýmist farið með
rangt mál eða sannleikanum
hagrætt eins og Samfylk-
ingunni einni er lagið. Þeir
sem hafa áhuga á að kynna sér
það nánar er bent á grein á
heimasíðu minni www.es.is/
bodvar . Það er von mín að
Samfylkingarmenn vandi sig
betur við blaðaútgáfu í fram-
tíðinni og sýni bæjarbúum þá
virðingu að segja sannleikann.
Með þeim orðum óska ég
bæjarbúum öllum gleðilegs
nýs árs með von um að árið
verði okkur öllum heillaríkt
og happadrjúgt.
Böðvar Jónsson,
bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
14