Víkurfréttir - 26.07.2001, Blaðsíða 6
VF FRETTIR
Lausar kennslustofur
í Heiðarskola
Bæjarráð Rcykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í síð-
ustu viku heimild til framkvæmda vegna færanlegra
kennslustofa við Heiðarskóla.
Kostnaðaráætlun vegna uppsetningar á lausum kennslustofum er
kr. 3.630 og kr. 3.105.700 vegna húsgagna og búnaðar. Áætlaður
heildarkostnaður er kr. 6.745.700.
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali
Hafnargata 27 • 230 Keflavík • Símar421 1420 og 421 4288
Fax421 5393 • Netfang: fasteign-asberg@simnet.is
Borgarvegur 10, Njarðvík.
159m! efri hæð með 28m2
bílskúr og 5 svefnh. Eign
sem gefur mikla möguleika.
Skipti á minni eign.
10.500.000.-
Hólagata 12, Sandgcrði.
Gott I23m! einbýli með 4
svefnh. Eign í góðu ástandi á
góðum stað í bænum.
10.000.000,-
Faxahraut 25, Kcflavík
3ja herb. 85m! íbúð á 1 hæð í
fjölbýli. Eignin öll nýlega
tekin í gegn að utan.
6.500.000,-
\ wrin; i H-tq tiu
II ;|7|if) k IIJih ■'■UJij-
iTí 4 f
Hciðarholt 30, Kcflavík.
78m2 3ja herb. íbúð á 3 hæð í
fjölbýli. Vinsælar eignir á
góðum stað. 7.200.000.-
Noröurvellir 44, Kcflavík.
132m:parhús með 25nv bíl-
skúr og 3 svefnh. Glæsileg
eign á vinsælum stað.
14.900.000,-
Nónvarða 1, Keflavík.
165m2 einbýli með 4 svefnh.
60m2 bílskúr og 25m2 sól-
húsi. Glæsileg eign, vel
viðhaldið. Góður staður.
18.500.000.-
Ral'nkelsstaðavcgur 5, Garði.
I53m2 einbýli með 40m2 bíl-
skúr. Hús sem töluvert er
búið að endumýja.
Hagstæð lán. Tilboð.
rtf l i J Bj m
Austurgata 18, Kcflavtk. 85m2 efri hæð í tvíbýli með sérinngangi og 43m2 bílskúr. Eignin öll nýtekin í gegn að innan. 8.700.000.-
XSfa
Ilafnargata 68a, Kcllavík.
48m2 Ibúðarhúsnæði, laust
strax. Ymsir möguleikar.
3.500.000,-
Faxabraut 38c, Kcflavík.
3ja herb. 74m2 íbúð á 1 hæð
á góðum stað. Eign í góðu
ástandi, laus 1 sept. 2001
5.800.000,-
VlKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BARDARSON
Bláa lónið veitir Blá-
flaggsskírteininu viðtöku
Bláa lónið mun veita Blá-
flaggs skírtcininu við-
töku á baðstaðnum við
Bláa lónið fimmtudaginn, 26.
júlí kl 11:00. Skírteinið, sem
gefið er út af Umhverfis-
fræðslusjóði Evrópu (FEEE),
er viðurkenning og hvatning
til rekstraraðila baðstranda
og smábátahafna sem hafa
ásett sér að uppfylla öll sett
skilyrði Bláflaggsins. Um-
hverfisverndarsamtökin
Landvemd hafa leyfi sjóðsins
til að veita Bláflaggið hér á
landi.
Bláflaggið er trygging baðgesta
fyrir góðu umhverfi. Flaggið er
einnig örugg vísbending um
hrein og örugg baðsvæði þar
sem njóta má útiveru auk þess
sem það á að vekja vitund al-
mennings á mikilvægi um-
hverfisverndar. Baðstrendur
sem uppfylla 27 sett viðmið og
þær smábátahafnir sem upp-
fylla 16 viðmið geta flaggað
Bláflagginu. Bláflaggið snertir
fiæðslu um umhveifismál, um-
hverfisstjómun, vatnsgæði, ör-
yggi og þjónustu og upplýs-
ingamiðlun til gesta. Baðstað-
urinn við Bláa lónið verður
formlega tekinn í raðir Blá-
flaggs baðstranda innan
skamms tíma og verður Blá-
flaggið dregið að húni við Bláa
lónið árið 2002.
Anna Gunnhildur Sverrisdóttir,
rekstrarstjóri baðstaðarins við
Bláa lónið, segir Bláflaggið
vera hvetjandi fyrir starfsmenn
Bláa lónsins. „Eins og um-
hverfi baðstaðarins gefur til
kynna skiptir það okkur miklu
máli að starfa í sátt við um-
hverfið. Bláflaggið er okkur
öllum mikil hvatning til að
halda áfram á þeirri braut,”
segir Anna.
Baðstaðurinn við Bláa lónið
opnaði í júlí 1999. Á þeim
tveimur árum sem liðin eru frá
opnun hans hafa nokkrar breyt-
ingar verið gerðar til að gera
baðstaðinn enn skemmtilegri.
Talsverðar breytingar hafa ver-
ið gerð við bfiastæði baðstaðar-
ins og skýli hefur verið byggt
við aðalinngang baðstaðarins.
Breytingar hafa verið gerðar
við baðklefa baðstaðarins og í
þessum mánuði voru tveir nýir
baðklefar einnig teknir í notk-
un. Með breytingum á eldri
klefum baðstaðarins og nýjum
klefum er öll búningsaðstaða
bæði rúmgóð og þægileg. Með
tilkomu nýrra göngustíga og
útsýnispalla gefst gestum kost-
ur á að kynnast stórkostlegri
náttúru og njóta útsýnis yfir
Bláa lónið og næsta nágrenni
þess.
Æfingar á ópenum ganga vel
fingar á óperun-
um þremur sem
sýndar verða í
Dráttarbrautinni í
Keflavík eru í fullum
gangi.
Það er Norðuróp sem
stendur fyrir sýningunum
en verkin eru Gianni
Schicchi eftir Giaccomo
Puccini í þýðingu Jóhanns
Srnára Sævarsson,
Requiem, sálumessa Sig-
urðar Sævarssonar og Z-
ástarsaga eftir Sigurð
Sævarsson sem byggð er
á samnefndri skáldsögu
Vigdísar Grímsdóttur. Æf-
ingamar hafa farið fram í Reykjavík en næst-
komandi mánudag hefjast æfingar í Dráttarbraut-
inni. Að sögn Jóhann Smára ganga æfingar mjög
vel en hann sér um leikstjóm, söng og fleira í
kring um sýningarnar.
„Æfingamar ganga mjög
vel en það vantar enn vant
kórfólk í uppfærslunar.”
Vinna við leikmynd hefst í
þessari viku en hún er öll
unnin í sjálfboðavinnu
með aðstoð frá bæjaryfir-
völdum. Gianni Schicchi
og Requiem verða sýndar
I0.,11. og 12. ágúst en Z-
ástarsaga verður frumsýnd
á Ljósanótt. Miðasala
hefst fimmtudaginn 26.
júlí í Sparisjóðnum í
Keflavík, einnig er hægt
að kaupa miða með
kreditkorti í síma: 421-
6623. Athygli er vakin á því að einungis verða
þrjár sýningar á Gianni Schicchi og Requiem og
tvær á Z-ástarsögu.
svandis@vfis
6