Víkurfréttir - 26.07.2001, Blaðsíða 5
VÍKURFRÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BARÐARSON
Slökkviliðið nýkomið á vettvang brunans.
■ Eldur laus í íbúð við Suðurgötu:
Skemmdir af
reyk og vatni
Nokkrar skemmdir urðu
í íbúð við Suðurgötu í
Keflavík eftir miðnætti
aðfaranótt mánudags. Kona
með tvö böm flúði út úr hús-
inu er hún heyrði í reyk-
skynjara og var slökkvilið
kallað á staðinn. Greiðlega
gekk að slökkva eldinn.
Eldur kom upp í skáp í eldhúsi
og brann vatnsslanga að upp-
þvottavél í sundur. Heitt vatn
fór að leka í íbúðinni. íbúamir
voru sofandi í kjallara íbúð-
arinnar og vöknuðu við reyk-
skynjara sem lét ófriðlega.
Slökkvilið Brunavarna Suð-
umesja slökkti eldinn fljótt en
þykkur reykur var í íbúðinni og
ekki vitað hvar upptökin vom.
Þau fundust í eldhússkápnum
við sorptunnu að sögn Sig-
mundar Eyþórssonar slökkvi-
liðsstjóra.
Reykkafarar slökkviliðsins björguðu heimilis-hamstrinum
sem var feginn að komast út í ferskt loft.
Göngustígar ofan Heiðarbóls
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að taka tilboði frá
Rekunni að upphæð kr. 2.942.000 í verkið Göngustígar ofan Heið-
arbóls 2001 en tilboðið er 81,6% af kostnaðaráætlun. Kostnaðar-
áætlun var 3.605.430 kr.
Hryggurinn skelfur
Lítit jarðskjálftahrina
hófst á Reykjanes-
hrygg klukkan 18:23
sl. sunnudagskvöld og var
upptakasvæðið um það bil
80 kílómetra vestsuðvestur
af Reykjanestá.
Stærsti skjálftinn varð klukk-
an 18:39 og mældist 3,1 stig
á Richterskvarða. Að auki
hafa mælst tveir skjálftar af
stærðinni 2,9 á Rict-
erskvarða, sá fyrri klukkan
18:23 á sunnudag og sá síðari
klukkan 18:56.
Hunangsreyktar
og úrbeinaðar
svína
kótilettur
20% afslánur við kassa
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
5
Allar upplýsingar birtar með fyrirvara um prentvillur og ófyrirsjáanlegar breytingar. Stafræna Hugmyndasmiðjan /2779