Víkurfréttir - 31.01.2002, Page 10
VERKALÝÐSFÉLÖGIN
Askorun til sveitarfé-
laga á Suðurnesjum
Ágætl Suðurnesjamaður
Þann 13. desember sl. var undir-
ritað samkomulag á milli Al-
þýðusambands Islands vegna að-
ildarfélaga sinna og Samtaka at-
vinnulífsins um ffestun á endur-
skoðun launaliðar kjarasamninga
o.fl. Samkomulagið kveður á um
skýr viðmið sem fastsetja upp-
sagnarheimild stéttarfélaganna
gangi verðbólguforsendur miðað
við mai 2002 ekki eftir.
Markmið samkomulags ASÍ og
SA var að stuðla að hjöðnun
verðbólgu og treysta kaupmátt
launa. Samkomulagið byggði á
samráði ASÍ, SA og ríkisstjóm-
arinnar. Því fýlgdu yfirlýsingar
ríkisstjómarinnar og fjármálaráð-
herra um stöðugleika í efhahags-
málum, lækkun á grænmetis-
verði og styrkingu verðlagseftir-
lits, eflingu starfsfræðslu í at-
vinnulífinu, lækkun trygginga-
gjalds og fleira.
I aðdraganda samkomulagsins
var mjög varað við fyrirætlunum
ríkisstjómarinnar og sveitarfélag-
anna í landinu um stórfelldar
hækkanir á þjónustugjöldum og
öðrum íþyngjandi álögum á íbú-
ana. Nú hefur komið í ljós að
þessi vamaðarorð áttu fullan rétt
á sér. Gjaldskrárhækkanir þess-
ara aðila á síðustu vikum em ein
helsta ógnunin við markmið
samkomulags aðila vinnumark-
aðarins um lækkun verðbólgu og
kaupmátt launa.
Ekki er um það deilt að miklir
hagsmunir em í húfi að það tak-
ist að veija markmið samkomu-
lagsins. Jafhframt er ljóst að
sveitarfélögin og aðrir opinberir
aðilar geta með aðgerðum eða
aðgerðaleysi sínu ráðið úrslitum
um það hvort framangreind
markmið nást, eða hvort verð-
bólga fer úr böndunum með af-
leiðingum sem em alltof vel
þekktar.
Þess er krafist að sveitarfélögin
axli sína ábyrgð á því að mark-
mið um lækkun verðbólgu og
kaupmátt launa nái fram að
ganga. Það verður eingöngu gert
með því að draga þegar í stað til
baka ákvarðanir sem þegar hafa
náð fram að ganga eða em á-
formaðar um hækkanir á álög-
um.
Við undirritaðir, höfum fyrir
hönd stéttarfélaga sem við erum í
forsvari fyrir, sent sveitarfélögun-
um á Suðumesjum áskorun, um
að afturkalla nú þegar allar
hækkanir og leggja þannig sitt af
mörkum til að veija stöðugleik-
ann og lífskjörin í landinu. Á-
byrgð þeirra sem ekki verða við
þessari áskorun og halda hækk-
unum sínum til streitu er mikil,
nái forsendur samkomulags aðila
vinnumarkaðarins ekki fram að
ganga.
Guöbrandur Einarsson
formaður Verslunarmanna-
félags Suðumesja
Kristján G. Gunnarsson
formaður Verkalýðs- og
sjóm.félags Keflavíkur og ngr.
Sigfús Eysteinsson formaður
Iðnsveinaféiags Suðurnesja
Falleg ýsa
og góður afli
en sjómenn
frostbitnir!
Strákarnir á Gísla Einars
GK 104 komu í land síðdegis
á fimmtudag í síðustu með
vænan afla sem þeir fengu á
línuna utan við Grindavík.
Aflinn var um 3,5 tonn af fal-
legum fiski. Ysa var þar í
mcirihluta en um tvö tonn af
ýsu komu úr lest og allt fal-
Iegur fiskur.
Sjómaður sem blaðamaður
ræddi við á kajanum var
sáttur við veiði dagsins en
það sem helst hefur verið að
angra sjómenn er mikill
kuldi og voru meinn frost-
bitnir í kinnum.
Bœjarstjóm Sand-
gerðis fagnar viður-
kenningu Víkurfrétta
Sandgerðingar eru stoltir af sínu fólki og það kom vel
fram á bæjastjórnarfundi í Sandgerði í síðustu viku.
Þar kom fram aö bæjarstjórn fagnar viðurkenningu
Víkurfrétta á Fræðasetrinu.
Bæjarstjómin óskar jafnframt Reyni Sveinssyni til hamingju
með sína viðurkenningu og Freyja Sigurðardóttir fær kveðju
bæjarstjómar og óskar bæjarstjóm henni til hamingju með sína
viðurkenningu.
Freyja Sigurðardóttir og Reynir Sveinsson með
viðurkenningar Víkurfrétta, Víkurfréttaverðlaunin 2001
Erii eldvarnir beimilisins i lagi?
Er reykskynjarí, slökkvitæki eða eldvarnarteppi á þínu heimili?
Ef ekki, er þá ekki kominn tími til að bæta úr því?
niboð
Kl. 10-12 mánudag-föstudags
getur þú með einu símtali pantað jóniskan
reykskynjara og uppsetningu
fyrir aðeins kr. 1.500.-
10% aukaafsláttur ef keyptir
eru 2 eða fleiri.
Tílboðið gildir út febrúar 2002.
Fagmaður i eldvörnum á heimilum og vinnustöðum
veitir aðstoð og ráðleggur um gerð og staðsetningu
reykskynjara og slökkvitækja.
Rýmingaráætlanir, eftirlit með reykskynjurum
og hvað annað er varðar eldvarnír.
Öryggismíðstöð Suðurnesja
býður upp á allt sem þarf til
að gera heimilið öruggara
Tökum enga áhættu,
höfum eldvarnir í lagi
••
Oryggismiðstöð
sími 4215200 Suðurnesja
GÓÐ VEIÐI HJÁ SMÁBÁTAKÖRLUM í SÍÐUSTU VIKU
Netdagblaðíð
wwwtvfis
10