Víkurfréttir - 31.01.2002, Qupperneq 17
Nikkelsvæðið
loksins hreinsað
Verið er að hrcinsa hið svo-
kallaða Nikkel svæði fyrir
ofan Njarðvík í Reykja-
nesbæ. Stórvirkar vinnuvélar
fjarlægja jarðveg og risastórir
tankar hafa verið teknir í
sundur.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, sagði það vera
gleðiefni fyrir íbúa bæjarins að
írarakvæmdir væru loks famar í
gang við hreinsunina, enda hefúr
verið beðið eftir því lengi. Hann
segir þetta vera mikið þarfaþing,
sérstaklega urahverfislega séð,
Nikkelsvæðið sé mikil sjón-
mengun fýrir íbúa svæðisins og
það sé kominn tími til að hreinsa
þær mannvirkjaleifar sem séu á
svæðinu og þann mengaða jarð-
veg sem sé þama. Nikkelsvæðið
tilheyrir vamarsvæði bandaríska
hersins og til stendur að herinn
skili landinu aftur til íslenska rik-
isins. Ellert segir ennfremur að
Reykjanesbær hafi farið fram á
það við Varnamálaskrifstofuna
að fá landið til ráðstöfunar og
nota það sem byggingaland en
ekki er vitað á þessari stundu
hversu mikið af landinu er hægt
að nota undir íbúðabyggð. Búið
er að vinna að þvi mjög lengi að
fá þetta svæði hreinsað og erfitt
að sjá fyrir hvenær því verður
lokið, en Gunnar Gunnarsson ,
hjá Vamarmálaskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins, segist vona að
þeir fái svæðið afhent á vormán-
uðum. Gunnar segir að Varnar-
málaskrifstofan hafi fimdað með
forráðamönnum Reykjanesbæjar
og þau fúndahöld komi til með
að halda eitthvað áfram áður en
samkomulag náist.
Um erað ræða 18 íbúða fjölbýlishús með vel útbúnum
3ja herberga, 94in2 íbúðum, auk sameignar.
Þá er einnig laus „Penthouse“ íbúð á 5. hæð, 142nÝ.
SÖLUS ÝNiNG
á glæsilegum íbúöum aðAðalgötu 1, í Keflavík nk. sunnudag
Húsið er vandað, utan sem innan.
Kaupendur geta verið í samráði með val á
innréttingum og flísum.
Sýnum fullbúna 3ja herbergja íbúð nk.
sunnudagkl. 13-17.
Nánari upplýsingar gefur
Hafnargötu 27, sími 421 1420.
w 30 ÓAo. netfMÁÍa
HUSAGERÐIN
1972 - 2002
Daglegar fréttir frá Suöurnesjum á www.vf.is
17