Víkurfréttir - 24.04.2002, Blaðsíða 17
Miklar framkvæmdir
við íþróttahúsið í Keflavík
Miklar framkvæmdir eru
fyrirhugaðar á fþrótta-
húsinu við Sunnubraut
í Keflavík í sumar en þá stend-
ur til að sctja nýtt gólf á A-sal
hússins. Einnig verður skipt
um þakjárn á húsinu en það
hefur átt það til að leka og hef-
ur verið samið við sömu aðila
og standa að stækkuninni á B-
salnum um þá framkvæmd.
I B-sal hússins mun koma gryfja
íýrir fimleikana sem mun gjör-
bylta æfíngaraðstöðu þeirra enda
hafa stúlkumar sem lengra eru
komnar þurft að fara til Reykja-
víkur til æfinga. Sú framkvæmd
gengur samkvæmt áætlun að
sögn Stefáns Bjarkasonar íþrótta-
og tómstundarfiilltrúa Reykja-
nesbæjar en hann segir að næst á
dagskrá sé að skoða tilboð í fim-
leikatæki sem þeim hefur borist,
en um er að ræða tæki sem tengj-
ast gryfjunni.
Nú hefur verið ákveðið að setja
parket á A-salinn, hver er á-
stæðan?
„Þaö hefúr verið mikið um álags-
meiðsli hjá körfuboltamönnum í
Keflavík undanfarin ár og því
þótti vera kominn timi til að
breyta um gólf en það var löngu
kominn tími á þennan dúk. Menn
vildu frekar fá parket á gólfið
enda fer það betur með lík-
amann. Við vildum að Keflvík-
ingar fengju sambærilegt gólf og
vinir þeirra í Njarðvík en gólfið
þar hefur verið talið eitt það besta
á landinu".
Samið hefur verið við fýrirtækið
Parket og gólf sem er umboðsað-
ili Connor á Islandi. Connor er
bandarískt fyrirtæki sem sérhæfir
sig í lagningu parketgólfa og sel-
ur það um 700 slík á ári. Stefán
segir að gólfið sem um ræðir sé
mikið notað af NBA liðunum og
því hlyti það að vera gott.
„Við vildum fmna það besta sem
völ var á og þess má geta að það
er samþykkt af FIBA. Þetta er ný
tegund af uppbyggingu af parketi
þar sem settir eru gúmmítappar
undir í staðin fyrir grindur"
Hvað mun þessi framkvæmd
kosta?
„Þetta mun kosta um 18 milljónir
en kostnaðaráætlunin var 25,4
milljónir. Við spöruðum því um
7 milljónir á því að þurfa ekki að
steypa aftur og setja grindur. Við
þuifiim einungis að rífa dúkinn
og um 5-7 cm. af steypu".
Hvenær hefst svo framkvæmd-
in?
„Framkvæmdin hefst 3. júní og
áætlað er að henni ljúki 1. ágúst.
Við leggjum mikla áherslu á það
að körfúboltamenn nái að æfa og
venjast gólfinu áður en tímabilið
hefst“.
FimmtudagiiiiJ 25, apríl Sumardaginn fyrsta
PunktamótHáimksforgj.
karlar24,konur28,
Ræstútkl. 08:00-14:00 Skráningfer
framáwm.goltisogisima 4214M
Mifn
SæliU.mlforgj.
Sætilánforgj. Si
Nándarverðlauná3.og16,braut
Hjálmadagar
Trek hjálmar á sumartilboði
miðvikud-föstud-laugard
verð aðeins kr. 2.990,-
Frábært úrval af reiðhjólum á góðu verði
fyrir alla fjölskylduna,
einnig mikið úrval af fylgihlutum
ÚTISPOKT
VERSLUN - HJÓLAVERKSTÆÐI
Hafnargötu 44, 230 Keflavík. Sími 421 1130.
Opið
virka daga 10-18.
Laugard 10-14.
FUNDARBOÐ
Aöalfundur Rafiðnaðarfélags Suöurnesja veröur haldinn
í húsnæði Iðnsveinafélags Suðurnesja,
Tjarnargötu 7 Reykjanesbæ í kvöld 24. apríl kl. 20
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
3. Veitingar.
Félagar fjölmennum! Stjórnin.
Til sölu
Einbýlishús, 182 fm,
til sölu í Vogunum.
Afhendingartími í júlí 2002
eða eftir nánara samkomulagi.
Arkitekt: Haukur Viktorsson
www.reykjabraut.is
Sími 595 0102
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
1. MAÍ
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og
nágrennis óskar launþegum til hamingju
með dag verkalýðsins.
Fjölmennum á hátíðarhöldin.
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
17