Víkurfréttir - 23.05.2002, Qupperneq 20
UMRÆÐAN • FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 23. maí 2002
Ágætur framboðsfundur í Stapa
Bæjarbúar fjölmenntu á
borgarafund framboð-
anna í Reykjanesbæ í
Stapa sl. fimmtudag Fyrir
fundinn var óljóst hvort full-
trúar frá Sjálfstæðisflokki
myndu mæta því þeir höfðu
mótmælt uppsetningu fund-
arins og boðað annan fund á
sama tíma. Ihaldið lét sig
ekki vanta og fór fundurinn
ágætlega fram. Hann hófst
með framsögu fulltrúa hvers
flokks og tók fyrstur til máls
Ólafur Thordersen (S) þá
fylgdu í kjölfarið þau Svein-
dís Valdimarsdóttir (S),
Björk Guðjónsdóttir (D), Sig-
ríður Jóna Jóhanncsdóttir
(D), Þorsteinn Árnason (B)
og að lokum Guðný Krist-
jánsdóttir (B).
Eftir ræður frambjóðenda sátu
oddvitamir Jóhann Geirdal (S),
Kjartan Már Kjartansson (B)
og Árni Sigfússon (D) fyrir
svörum bæjarbúa. Spumingar
voru fremur fyrirsjáanlegar
miðað við aðstæður líðandi
stundar. Meðal þess sem spurt
var um, var afstaða oddvitana
til nýrra stálpípuverksmiðju
sem áætlað er að byggja í
Helguvík og var ekki annað að
heyra en þeir væru allir sam-
mála þeirri byggingu og töldu
hana góðan kost fyrir sveitarfé-
lagið.
Samfylkingin hefur ætíð barist
hart fyrir því að sýna fram á til-
gangsleysi og kostnaðarsemi
Reykjaneshallar. Á því var
engin brejhing þetta kvöld. Jó-
hann Geirdal ræddi um fáran-
legan leigusamning hallarinnar
og taldi bæinn hafa gert stór
mistök með samþykki hans.
Ami Sigfússon lagði hins vegar
fram forvitnilegt bréf ffá fram-
kvæmdarstjóra Landmats, sem
er eigandi hallarinnar, þar sem
einblínt er á það að samningur
eins og gerður var við Reykja-
nesbæ um leigu á Reykjanes-
höll verður ekki gerður aftur
vegna of hagstæðra kjara leigu-
taka.
Þá var einnig rætt um meiri-
hlutasamstarf flokkanna. Odd-
vitamir vom spurðir um hvaða
áhugi lægi fyrir slíku samstarfi.
Oddvitar allra flokka ítrekuðu
að ekkert hafi verið rætt um
slík samstörf og munu allir
flokkar ganga til kosninga
óbundnir. „Hvað muni gerast
eftir það verður tíminn að leiða
í ljós“, sagði Jóhann Geirdal.
Framsóknarmenn stikluðu á
stóru hvað varðar fjölskyldu-
mál ásamt því að tala um kosti
hugmyndarinnar um Taxibus á
þessum fundi og sýndu einnig
fram á það að það er nauðsyn-
legt að halda uppi jafnri línu
milli vinstri manna og hægri
sinnaðra stjómmálamanna hér í
bæ.
STORDANSLEIKUri
Milljónamæringarnir ásamt
Bogomil Font,
Bjarni Ara og Raggi Bjarna
laugardaginn l.júní.
hánar auglýst síðar.
a^FJÖ^
......................
Verktakar - Vélaleiga
Öll almenn jarðvinna og hellulagnir.
Gerum föst verðtilboð.
Sigurður s: 898 1114 • Salómon s: 897 0164
Heilbrigð skynsemi
P
Ellert Eiriksson skrifar
Sumarið er gengið í garð, til-
hlökkun og bjartsýni fyllir hugi
manna.
Með sumarbyrjun 2002 hófst
fyrir alvöru kosningabaráttan
vegna bæjarstjórnakosning-
anna í Reykjanesbæ. Stjóm-
málaflokkarnir settu fram
stefnumál sín, frambjóðendur
halda vinnustaðafundi, hverfa-
fundi, borgarafundi og takast á
í fjölmiðlum.
Málflutningur hefur verið með
ýmsum hætti, frammistaða
frambjóðenda fær misjafna
dóma hjá bæjarbúum, en eins
og gengur og gerist finnst
stuðningsmönnum hvers flokks
sínir menn bestir.
Á grundvelli manna og mál-
efha svo og mati á hvemig nú-
verandi meirihluti bæjarstjórn-
ar Reykjanesbæjar hefúr staðið
sig átt þú kjósandi góður að
taka afstöðu. Það er ábyrgðar-
fúllt verk. Að mæta á kjörstað
og setja X á kjörseðilinn er lítið
verk, en ákvörðunin er mikil-
væg, það er málið.
Eg gæti hér og nú skrifað langa
grein um öll þau góðu verkefni
og nýmæli sem komist hafa í
framkvæmd undir forystu
Sjálfstæðisflokksins í þau 12 ár
sem ég hef gegnt staifi bæjar-
stjóra í Keflavík og síðan
Reykjanesbæ. Slík grein tæki
allar Víkurfféttir í dag. Kjós-
andi góður, líttu í kringum þig.
Neikvæður málflutningur
Það fer ekki á milli mála að
málflutningur Samfylkingar-
innar hefúr komið mörgum á
óvart, allt er á neikvæðu nótun-
um, allt í rúst og ekki glæta
framundan. Sjálfsagt má finna
að ýmsu eins og gengur og ger-
ist, en ekki dreg ég í efa að
Samfylkingin hefði haft allt
aðrar áherslur og ekki hrint í
framkvæmd nema broti af því
sem gert hefúr verið í Reykja-
nesbæ á undanfornum árum.
Þeir hefðu haldið að sér hönd-
um, samkvæmt eigin málflutn-
ingi.
Framtíðarsýn
Bjartsýni, yfirvegun og heil-
brigð skynsemi hefur verið
leiðarljós í stjóm bæjarfélags-
ins, gætt hefur verið hverrar
krónu af skattfé bæjarbúa og
engu eitt í óráðsíu.
Það á ekki að vanmeta bjart-
sýnina eða gera lítið úr henni.
Hún er forsenda flestra góðra
verka og framtaks. Hún er
mikilvægur drifkraftur þegar á
móti blæs og eykur bæjarbúum
og stjómendum þrótt í góðæri.
Svartsýni er að sama skapi
ávísun á deyfð og stöðnun,
Samfylkingin er boðberi þeirr-
ar stefnu, á henni þurfúm við
ekki að halda.
Kjósandi góður, við skulum
halda áfram góðum verkum og
uppbyggingu í góðum bæ,
trygging fyrir því að góður bær
verði betri er örugglega X D á
kjördag.
Ellert Eiríksson
bæjarstjóri
WF
TIMARIT VIHURFRETTA
ELLERT GERIR UPP BÆJARSTJÓRANN
í ÍTARLEGU TVF VIÐTALI
20