Víkurfréttir - 27.06.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
Fimmtudagurinn 27. júní 2002
„Brú rnilli heimsálfa" komið fyrir
sl l’Ut tar
F R É T T I R
Upplýsinga-
söfnun MOA
Markaðs-, atvinnu- og
menningarsviö
Reykjanesbæjar hef-
ur nú ráðið sex starfsmenn til
að hafa samband við öil fyrir-
tæki á Suðurnesjum tii að
uppfæra fyrirtækjaskrá
MOA. Starfsmennirnir munu
hafa samband símleiöis við
fyrirtæki til aö safna upplýs-
ingum um starfsemi, fjölda
starfsmanna, hcimasíður,
tengla, netföng o.þ.h. Er þessi
uppfærsla liður í stefnumót-
un MOA í atvinnumálum og
framhald á könnun sem gerð
var árið 1998 þegar skráðar
voru í fyrsta sinn upplýsingar
um öll fyrirtæki á svæðinu á
vegum skrifstofunnar.
Verkefnið er samvinnuverkefhi
MOA, Bókasafns Reykjanes-
bæjar, Svæðisvinnumiðlunar,
Fjölbrautaskóla Suðumesja og
fleiri aðila sem hagnýtt geta
upplýsingar af þessu tagi. Er
það von MOA að stjórnendur
fyrirtækja taki vel í erindi
starfsmannanna, sem eins og
áður segir, munu hafa samband
símleiðis á næstu vikum.
Breytingar á
félagslegu íbúðarhús-
næði Reykjanesbæjar
Stór Chinook flutninga-
þyrla frá Varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli var
notuð til að leggja tvo 22m
langa brúarbita sem vega
fimm og átta tonn yfir Haugs-
vörðugjá við Sandvík á
Reykjanesi á þriðjudag. Verkið
er liður í verkefninu „Brú milli
heimsálfa“ þar sem brúa á gjá
þar sem jarðskorpuflekar Am-
eríku og Evrópu mætast en
þeir ganga í gegnum ísland.
Agætlega gekk að koma fyrsta
hluta brúnnar fyrir en þegar
koma átti nteð seinni hlutann
olli mikil ókyrrð í lofti því að
áhöfn þyrlunnar þurfti að slep-
pa brúnni með þeim afleiðing-
um að brúin steyptist ofan í
gjánna. Auðvelt verður þó að
koma brúnni fyrir á sínum
stað og verður traktor notaður
í það.
Mikið af fólki var saman komið
til að fylgjast með þessum miklu
framkvæmdum enda sögulegir
atburðir að gerast á Reykjanesinu
þar sem þetta er í fyrsta skipti
sem slík framkvæmd á sér stað.
Brúnni verður komið fyrir yfir
gjá sem myndast hefur vegna
hreyfingar Evrópu- og Ameríku-
jarðflekanna sem rekast saman
og þrýstast í sundur vegna jarð-
gosa neðan jarðar. Flekaskilin
ganga í gegnum ísland, frá
Reykjanesi og norður fyrir land,
og eru þau sýnileg víða.
Hugmyndin um gerð slíkrar brú-
ar vaknaði fyrir um 8 árum og
var það Johan D. Jónsson, ferða-
málafulltrúi Reykjaness, sem átti
hana. Hugmyndin heflir því verið
lengi í gangi en ekki komist í
framkvæmd fyrr en nú.
Brúin var smíðuð af íslenskum
aðalverktökum sem eru aðal
stuðningsaðili verkefnisins og er
hún 18m löng og situr á gjánni
þar sem hún er um 6m há. Fólki
gefst kostur á að fara yfir brúna
hvenær sem er, því að kostnaðar-
lausu, og verða bílastæði skammt
ffá henni þar sem fólk getur lagt
bílum sínum á meðan það geng-
ur milli heimsálfa. Ætlunin er að
brúin verði sjálfbær því þeir sem
svo ganga yfir brúna og ná þeim
merka áfanga að ganga frá Evr-
ópu til Ameríku eiga þess kost að
fá viðurkenningu þess efnis að
hafa gengið yfir flekana. Ekki
væri það ónýtt að eiga slíkt
skirteini til sönnunar þess að hafa
gengið milli heimsálfa en mark-
aðs- og atvinnumálastofnun
Reykjanesbæjar sér um að út-
hluta slíkum viðurkenningum
gegn vægu gjaldi.
Brúin verður vígð með pompi og
prakt 5. júlí n.k. og munu fulltrú-
ar ríkisstjórnar, forsætis-, sam-
göngu- og utanríkisráðherra
verða við athöfnina og vígja
brúna.
Gleði Hafnamanna skammvinn:
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
hefur samþykkt að stofna
einkahlutafélag um eignarhald
og rekstur á félagslegu íbúðar-
húsnæði á vegum bæjarins,
Fasteignir Reykjanesbæjar ehf.
Eignast félagið þar að leiðandi
219 félagslegar leiguíbúðir og
yfirtekur einnig skuldir sem
fylgja, um 1.246 milljónir kr.
Verðmæti íbúðanna er metið á
1.493 milljónir kr. og mun
Reykjanesbær leggja mismun-
inn á því og skuldunum fram
sem eigið fé félagsins. 100
milljónir af því eru skráðar sem
hlutafé en 147 milljónir verða
færðar á yfirverðsreikning
hlutafjár.
Kosin verður þriggja manna
stjóm Fasteigna Reykjanesbæj-
ar ehf. og mun leigugjald fyrri
íbúðirnar verða ákvarðað af
henni samkvæmt ákvæðum
sem fram koma í samþykktun-
um.
Tvær breytingatillögur fulltrúa
Samfýlkingar á samþykktunum
vom samþykktar á flmdi bæjar-
stjómar þegar stofnun félagsins
var endanlega samþykkt. Þar
var um að ræða að fjölskyldu-
og félagsmálaráð myndi sjá um
úthlutun íbúða og að hugsan-
legur arður af rekstrinum skuli
verða lagður í sérstakan fram-
kvæmdasjóð á vegum félags-
ins.
Hundafár
í Höfnum
Sex stórir hundar af
„Great Dane-kyni“ voru
handsamaöir í Höfnum á
föstudag. Mikið haföi veriö
kvartað yfir hundunum og
mun skiptiborð Neyðarlínunn-
ar, sem svarar fyrir liigregluna,
hafa verið „rauðglóandi“ um
tíma. Hundarnir voru lokkaðir
inn í skúr með mat og kom það
í hlut lögreglunnar að fjar-
lægja hundana.
Að sögn Karls Hermannssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns, bytj-
uðu kvartanir að berast vegna
lausagöngu hundanna í Höfnum
um miðjan maímánuð. Hunda-
eftirlitsmaður hefur unnið í mál-
inu með lögreglu en erfitt hefur
reynst að hafa hendur í hári þeir-
ra. Það tókst loks á fóstudag og
var hundunum sex, tík og af-
kvæmi hennar, komið fyrir á
hundahóteli. Sú dvöl þeirra var
þó stutt því eigandi þeirra sem
búsettur er í Reykjavík leysti þá
út daginn eftir og fór með hun-
dana aftur i Hafnirnar þar sem
hann geymir þá í gömlu eyðibíli.
Einn hundanna mun, samkvæmt
lögreglunni í Keflavík, hafa bitið
í úlpu bams í Höfnum nýverið.
Bamið var að vonum hrætt og at-
vikið tilkynnt til lögreglu. Bæði
böm og fttllorðnir hafa verið log-
andi hrædd við hundana því
þama er um að ræða eina stærstu
hundategund í heimi. Meðal-
hundur mun vera allt 75 cm. á
hæð og um 50 kg.
Hundamir eru eins og áður segir
af tegundinni Stóri Dan og eru
slíkir hundar mjög eftirsóttir og
verðmætir, kosta um 190.000 kr.
hver.
„Við vitum að þessi hundategund
er mjög eftirsótt og hver hvolpur
mun kosta um 190. 000. Síðast
handsömuðum við hundana í
gærmorgun (föstudagsmorgun)
og afhentum eigandanum þá aft-
ur gegn greiðslu. Hann á von á
að heilbrigðiseftirlitið láti lóga
þeim öllum ef þeir sleppa eina
ferðina enn,“ sagði varðstjóri á
lögreglustöðinni í Reykjanesbæ.
Ekki er hægt að segja að mjög
vel fari um hundana á eyðibýlinu
en þeir em þó vel haldnir líkam-
lega að sögn lögreglunnar.
, Útgefandi:
lf||#| in Víkurfréttir ehf. kt. 710183-0319.
I WGrundarvegi 23, 260 Njarðvik
FRETTIR Simi 421 0000 (15 línur) • Fax 421 0020
Útlit, umbrot og prentvistun (pdf): Víkurfréttir eltf.
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. / Dreifing: islandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is
Aðrir fjölmiðlar Vikurfrétta ehf. eru: Tímarit Vikurfrétta,
The White Falcon og Kapalsjónvarp Vikurfrétta.
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 893 3717 pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sinti 898 2222 hbb@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, franz@vf.is
Auglýsingar: Kristín Njálsdóttir kristin@vf.is,
Jófriður Leifsdóttir, jofridur@vf.is
Blaðamaður: Sævar Sævarsson sjabbi@vf.is,
Hönnunarstjóri: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is
Hönnun/umbrot: Kolbrún Pétursdóttir kolla@vf.is,
Skarphéðinn Jónsson skarpi@vf.is, Stefan Swales stefan@vf.is
Skrifstofa: Stefania Jónsdóttir, Aldis Jónsdóttir
2