Víkurfréttir - 27.06.2002, Page 5
Fimmtudagurinn 27. júní 2002
Krabbameinshlaupið
gekk vel í miklu blíðviðri
Fjör í sumar hjá Fjörheimum
Sumarfjör Fjörheima og
vinnuskóla Reykjanes-
bæjar lauk föstudaginn
21. júní. Um var að ræða sjö
daga námskeið fyrir krakka
sem voru að ljúka 7. bekk.
Krökkunum var boðið upp á
margvíslega skemmtun, s.s.
ferð í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn, hvalaskoðun á
Moby dick, hópefli og fjöl-
þrautir og farið var í ratleik
svo eitthvað sé nefnt. Nám-
skeiðinu lauk svo með
tjaldútilegu þar sem labbað
var í Sólbrekkur og farið í
Bláa lónið og um kvöldið var
svo hressileg útikvöldvaka
þar sem spilað var á gítar og
sagðar draugasögur.
Markmiðið með námskeiði
sem þessu er að bjóða upp á
markvisst tómstundastarf sem
lið í auknu forvarnarstarfi og
að unglingar fái tækifæri til að
kynnast jafnöldrum frá öðrum
hverfúm bæjarins. Seinna nám-
skeiðið hefst miðvikudaginn 3.
júlí kl. 10:00 í Fjörheimum.
Enn eru nokkur pláss laus á
það námskeið. Tveir unglingar
sem voru að ljúka fyrra nám-
skeiðinu eru nú þegar búnir að
skrá sig á seinna námskeiðið.
Skráning og allar nánari upp-
lýsingar eru í Fjörheimum í
síma421 2363.
Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélags Suöurncsja
sem haldið var sl.
fimmtudag heppnaðist mjög
vel og var hlaupið/gengið í
mjög góðu veðri. Það voru 77
þáttakendur í hlaupinu, þar af
15 manns sem hlupu 7 km í
tímatöku. Fyrstur var Klem-
enz Sæmundsson á tímanum
24.59, annar var Bjarni Krist-
jánsson á 27.48 og þriðji var
Róbert Sigurðsson á 29.42.
Fyrst kvenna var Kristjana
Gunnarsdóttir á tímanum
31.53, önnur Una Steinsdóttir á
32.54 og þriðja var Guðlaug
Sveinsdóttir á 33.02. Fyrstu í
3.5 km. voru Mark Van Der
Ende á 12.53 og Ásgerður
Bjarkadóttir á 17.48 en allir
þáttakendur fengu bol og við-
urkenningarpening.
Anna Soffia Jóhannsdóttir lét sig
ekki vanta og fór þetta í hjólastól
og var mjög gaman að hún skildi
vera með.
Þess ná einnig geta að það komu
ijórir Amerikanar og hlupu 7 km.
og stóðu sig frábærlega vel og
tók Kanasjónvarpið allt upp og
sýndu þeir hlaupinu og Krabba-
meinsfélaginu mikinn áhuga.
Eg vil þakka öllum kærlega fyrir
þáttökuna, bæði hlaupurum og
starfsfólki, einnig Samkaup fyrir
svaladrykk og Islandsbanda í
Keflavík en þeir kostuðu auglýs-
ingar, verðlaunapeninga og gáfu
mjög veglega happdrættisvinn-
inga.
Þjónustumiðstöð Krabbameins-
félags Suðurnesja opnuð
Krabbameinsfélag Suðurnesja
opnaði Þjónustumiðstöð sína að
Hringbraut 99 e.h. í Keflavík sl.
fímmtudag við mjög góðar und-
irtektir Suðurnesjabúa. Þar var
boðið upp á bakkelsi og var
fjöldinn allur af fólki sem leit
við. Skrifstofan er opin á þriðju-
dögum kl. 13-18 og á miðviku-
dögum kl. 09-13 en frekari upp-
lýsingar er hægt fá síma
4216363.
Vil ég hvetja alla Krabbamein-
sjúka, aðstendur þeirra og bara
alla velunnara Krabbameinsfé-
lagsins að nýta sér aðstöðuna en
hún er ykkur að kostnaðarlausu,
hægt er að ganga í félagið og
nálgast mynningarkort félagsins
á skrifstofúnni og afla sér upplýs-
inga um réttindi sín t.d. í sam-
bandi við stéttarfélögin og ríkið.
Ég vil þakka Bökurunum í
Keflavík og Njarðvík kærlega
fyrir bakkelsi sem þeir gáfú í til-
efni á opnuninni og öllum sem
litu við í kaffi fyrir komuna og
vonandi sé ég sem flesta hér í
ffamtíðinni.
■■
Ertu áber&inds?
i
i
vef
hönnun
auglýsinga
hönnun
Hönnunardeild Víkurfrétta
hefur margra ára reynslu
í hönnun og umbroti fyrir
prentun og Netið.
lógó
tímarit
bréfsefni
reikningar
umslög
nafnspjöld
bæklingar
kynningarefni
VÍKURFRÉTTIR • 26. tölublað 2002
5