Víkurfréttir - 27.06.2002, Qupperneq 6
Fimmtudagurinn 27. júní 2002
www.asberg.is
Ásberq
Cnr' + AÍ/innonln ^
Fasteignasala
Jón Gunnarsson, löggiltur fasteigna- og skipasali
Sölumenn: Þröstur Ástþórsson og Þórunn Einarsdóttir
Hafnarnata 11 • 730 k’pflax/ílr • ^ímar A11 1490 nn 4.71
Holtsgata 4, Sandgerði
I20m2 einbýli með 3-4
svefnh. og 50m2 bílskúr. Eign
í góðu ástandi á góðum stað.
12.400.000,-
Miðtún 8, Sandgerði
131 m2 fokhelt einbýli með
43m2 bílskúr. Fullfrágengið
að utan. Tilbúið til afhendin-
gar strax. 10.500.000,-
Mávabraut 7, Keflavík
3ja herb. 67m2 ibúð á 2 h. í
fjölbýli. Eign í góðu ástandi,
hagstæð lán. Laus strax.
6.100.000,-
Suðurgata 16, Keflavík
3ja herb. 83m2 e. h. með
sérinngangi og 48m2 bílskúr.
Eign í mjög góðu ástandi.
8.800.000,-
Háteigur 8, Keflavík
Góð 3ja herb. ibúð á 2 hæð í
fjórbýli með bilskúrsrétti.
Hagstæð lán áhvílandi.
7.500.000,-
Faxabraut 38c, Keflavík
79m2 3ja herb. íbúð á 2 hæð
með stóru óinnréttuðu risi og
35m2 bílskúr. Eign í góðu
ástandi. 8.700.000,-
Stærsti fréttavefur landsins
með fréttir af Suðurnesjum.
www.vf.is
Fréttavefur allra
Suðurnesjamanna
Gerðavegur 16, Garði
Góð 92m2 4ra herb. íbúð á
e.h. með 38m2 bílsk. 1 góðu
ástandi, 9.000.000,-
Skólavegur 8, Keflavík
Góð 2ja herb. 70m2 n.h. með
tveim samliggandi stofur og
sérinngangi. Eign í góðu
ástandi. 7.500.000,-
Faxabraut 42a, Keflavík
Endaraðhús 132m2 á 2 h.
með 49m2 bílsk. Mikið
endurnýjað, heitur pottur á
verönd. Tilboð
Austurbraut 4, Kcflavík
140m2 n.h. með sérinngangi
og 4 svefnh. 40m2 bílsk. I
góðuástandi. 10.900.000,-
VE5TURBER
Börnin taka þátt í
undirbúningi Ljósanætur
Ljósanefnd, sem sér unt
undirbúning að Ljósa-
nótt, hefur ákveðið að í
ár fái börn á leikskólaaldri
tækifæri til að vera með í
undirbúningi fyrir Ljósanótt.
Um er að ræða tvö póstkort
sem hvert barn fær sem þau
svo skreyta sjálf og senda til
ástvina eða ættingja utan af
landi og bjóða þeim að taka
þátt í skemmtidagskrá
Ljósanætur. Á næstu dögum
og vikum verður póstkortun-
um dreift í alla leikskóia
Reykjanesbæjar en þeir eru
sjö talsins með samtals rúm-
lega 600 börnum. Útlitshönn-
un og prentun póstkortanna
var í höndum prentsmiðjun-
ar Grágás í samráði við
Ljósanefnd.
Að sögn Steinþórs Jónssonar,
formanns Ljósanefndar, er
hugmynd uppi um að virkja
grunnskólabörn í upphafi
skólaárs í tengslum við ljósa-
nótt en nánari útfærsla á því er
enn í gangi. „Með póstkortum í
leikskólum og tengingu í
grunnskóla er verið að virkja
bömin í bænum til virkrar þátt-
töku á Ljósanótt og fylgja þar
eftir markmiði Ljósanætur sem
er að allir íbúar Reykjanesbæj-
ar komi saman til að skemmta
sér og öðrum hver á sinn hátt.
Um leið hvetja bömin ættingja,
vini og brottflutta íbúa að koma
í heimsókn og njóta dagsins
með okkur“,segir Steinþór.
Á síðustu vikum hefur Ljósa-
nefiidin komið saman og hafið
vinnu við að koma endanlegri
dagskrár ljósanætur saman. Þá
hefur nokkur vinna verið lögð í
undirbúning á nýrri heimasíðu
- ljosanott.is - en þar verður að
fínna fféttir, myndir, greinar og
dagskrá bæði liðnar og þeirrar
sem ífamundan er. Opnun síð-
unnar verður kynnt sérstaklega
á næstu dögum.
Mikil áhugi heíur komið ffam í
ffamhaldi af auglýsingu Ljósa-
nefhdar um sönglagakeppni og
má gera ráð fyrir fjölda laga í
keppnina sem vonandi skilar
sér í nýju og skemmtilegu lagi
fyrir Ljósanótt til ffamtíðar.
Hugmynd er uppi um að hátíð í
tengslum við ljósanótt verði nú
frá fimmtudegi til laugardags
með hápunkti á laugardegi.
Ljósanótt verður í ár haldinn
laugardaginn 7. september.
Kallaði til slökkvilið þegar
grillveislan fór út um þúfur!
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var
kallað að heimahúsi í Reykjanesbæ á
fostudag þar sem grillveisia hafði farið út
um þúfur. Mikill eldur logaði í gasgrilli á svöl-
um íbúðarhússins og „grillmeistarinn“ á heim-
ilinu fékk ekki við neitt ráðið.
Svangir slökkviliðsmenn hugsa ávallt gott til glóð-
arinnar þegar útköll koma í grillveislur. I þessu til-
viki var lítið eftir á grillinu. Jón Guðlaugsson,
varaslökkviliðsstjóri, skellti sér á svalirnar og
skrúfaði fyrir gasið að grillinu og að því loknu var
grillið kælt niður. Allt fór vel að lokum, þó svo
steikin hafi orðið helst til of svört.
Annars var óvenju rólegt hjá slökkviliðsmönnum
um helgina. Meðal annars eru sjúkraflutningar
undir meðallagi.
Á meðfylgjandi mynd er Jón Guðlaugsson, vara-
slökkviliðsstjóri, að gæða sér á pylsu, sem er ef vel
er skoðað, nokkuð brennd!
6