Víkurfréttir - 11.07.2002, Blaðsíða 11
Fimmtudagurinn 11. júlí 2002
HAGKAUP ■■
Meira úrval - betri kaup
Launagreiðendur athugið
1 % viðbótarframlag í séreignarsjóð starfsmanna
Frá 1 .júlí 2002 greiða launagreiðendur skv. kjarasamningi 1 % framlag í séreignarsjóð launþega án framlags
af hálfu launþegans. Þetta nýja framlag, 1 % greiðist eingöngu þeim sem ekki eru þegar í séreignarsjóði.
Áfram gildir reglan um 2% mótframlag launagreiðanda gegn 2% framlagi launþega.
Þetta nýja framlag greiðist til þess lífeyrissjóðs sem launþegi á þegar aðild að, nema launþegi ákveði annað.
Skila skal sérstakri skilagrein fyrir þetta 1% og reiknings númerið er 1109 - 26 -6665, kt. 571171-0239.
Lífeyrissjóður Suðumesja hefur gengið frá samningi við Sparisjóðinn í Keflavík og mun hann sjá um
ávöxtun viðbótarframlagsins. Þetta nýja viðbótarframlag verður lagt inn á reikning sem ber hæstu vexti
verðtryggðra reikninga á hverjum tíma.
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki Lífeyrissjóðs Suðumesja.
Tjarnargötu 12 • 230 Keflavík • Sími: 421 6666 • Fax: 421 6664 • www.lifsud.is
LÍFEYRISSJÓÐUR
SUÐURNES JA
VÍKURFRÉTTIR • 28. tölublað 2002
11