Morgunblaðið - 06.06.2016, Side 1

Morgunblaðið - 06.06.2016, Side 1
M Á N U D A G U R 6. J Ú N Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  130. tölublað  104. árgangur  MAGNAÐUR OG MYRKUR PÉTUR PAN Í BERLÍN MYND FYRIR HLUTLAUSA FER MEÐ FERÐA- MENN Í LJÓS- MYNDAFERÐIR DÓMUR UM JÖKULLINN LOGAR 29 ÁSTFANGINN MOLDAVI 12RÝNT Í ÁTTA LEIKSÝNINGAR 26 H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 6 1 6 0 3 0 Terbinafin Actavis 10mg/g 15 g krem TA H Ú S IÐ / A ct av iss 6 1 6 0 3 0 Banaslys í göngunum  Jeppi og fólksbíll skullu saman þungt haldnir á gjörgæslu en sá fjórði var enn í rannsóknum í gær- kvöldi. Ekki fengust upplýsingar um það hvort viðkomandi væri mik- ið eða lítið slasaður. Þyrla Land- helgisgæslunnar var kölluð út vegna slyssins. Þyrlan var yfir Faxaflóa vegna hátíðarhalda í tengslum við sjómannadaginn og var því fljót á vettvang. Fimm sjúkrabílar komu á slys- staðinn, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgar- svæðinu, auk tækjabíls. Hinn látni og hinir slösuðu eru með íslenskt ríkisfang. Göngunum var lokað í rúmar þrjár klukkustundir vegna slyssins en þau opnuð að nýju á milli fimm og sex síðdegis. Var nokkur umferð fyrir botn Hvalfjarðar þessar þrjár klukkustundir. Þrír voru í öðrum bílnum en tveir í hinum. Bílarnir voru að mætast þegar ökumaður jeppans missti stjórn á ökutæki sínu og skullu bílarnir saman í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum frá Land- spítala var viðbragðsáætlun virkjuð í kjölfar slyssins og er það vanalegt verklag þegar stórslys verða. Andri Steinn Hilmarsson Kristín Edda Frímannsdóttir Viðar Guðjónsson Banaslys varð í hörðum árekstri í Hvalfjarðargöngum um tvöleytið í gær. Jeppi og fólksbifreið skullu saman og lést einn í fólksbifreiðinni á vettvangi en fjórir voru fluttir slasaðir á Landspítala. Þrír liggja Slys Fólksbíll og jeppi sem komu úr gagnstæðri átt skullu saman í Hval- fjarðargöngunum. Einn var úrskurðaður látinn á slysstað. Á slysadeild Þrír eru á gjörgæsludeild en einn var sendur í rannsóknir. Morgunblaðið/Golli Færst hefur í vöxt að hrafnar geri sér hreiður í trjám, einkum í grennd við Reykjavík. Er greni vinsælasta hreiðursstæðið. Þetta hátterni fylgir stækkandi trjá- stofni og útbreiddari trjárækt, að sögn Kristins Hauks Skarphéðins- sonar, sviðsstjóra dýrafræði á Náttúrufræðistofnun Íslands. Kristinn segir að hrafnar verpi yfirleitt í klettum en hafi einnig orpið í auknum mæli í alls kyns mannvirkjum. Kristinn segir að með breyttum atvinnuháttum hafi fæðuöflun hrafna í grennd við mannabústaði gerbreyst. Opnir öskuhaugar sem hrafnar hafi vanið komur sínar á heyri sögunni til. Hrafnarnir sæki hins vegar í pylsur og aðrar matarleifar sem falli til á götum Reykjavíkur. Íslenski hrafninn verpir um eða fyrir miðjan apríl og liggur á eggjunum í um tuttugu daga. Al- mennt verða svo ungarnir fleygir í júní. Þeir halda sig fyrst í grennd við hreiðrin en eru síðan reknir að heiman. » 11 Gera sér hreiður í trjám  Sækja í matarleifar á götum borgarinnar Morgunblaðið/Eggert Krummi Grenitré eru vinsælust meðal verpandi hrafnapara. Laxveiðitímabilið hófst í sólskini og blíðu í Norðurá í Borgarfirði á laugardagsmorguninn, þegar söngvararnir Kristinn Sigmunds- son og Kristján Jóhannsson óðu fyrstir út í strauminn. Fyrsti dagur- inn í ánni gaf 27 laxa og morgun- vaktin í gær var einnig góð, en þá veiddust 22 til viðbótar. „Þetta er alveg stórkostleg byrj- un,“ sagði Höskuldur B. Erlings- son, veiðileiðsögumaður á Blöndu- ósi, eftir að hafa fylgst með upphafi laxveiðitíðarinnar í Blöndu í gær- morgun. 35 löxum var landað á fyrstu vaktinni og sagði Höskuldur menn ekki muna jafngóða byrjun veiða í ánni. „Ætli þetta sé ekki bara Ís- landsmet, svei mér þá.“ Höskuldur benti á að veiðin væri líkt og í júlímánuði í venjulegu ár- ferði. „Þessi fiskur er að hellast inn enda laxarnir sem veiddust grálús- ugir og með halalús. Svo er hitt að ég efast um að hafa séð laxana hér að jafnaði þetta vel haldna – þeir eru eins og körfuboltar í laginu! Þetta er alveg magnað,“ sagði Höskuldur. Veiðimenn eru sagðir tala um það sín á milli að greinilega sé ástandið í hafinu ofboðslega gott fyrir laxinn núna. »10 Morgunblaðið/Einar Falur Norðurá Laxveiðitímabilið hófst með látum um helgina þegar Kristinn Sig- mundsson og Kristján Jóhannsson renndu fyrir lax í Norðurá í Borgarfirði. „Stórkostleg byrjun“ á laxveiðinni  Fyrsti dagur í Norðurá gaf 27 laxa  Ástandið í hafinu sagt gott fyrir laxinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.