Morgunblaðið - 06.06.2016, Qupperneq 17
17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Tónlist í náttúru Þessir tónlistarmenn tóku þátt í helgistund við Naustið, gamalt bátalægi fyrir neðan Grafarvogskirkju, þegar Guðrún Karls Helgudóttir var vígð til prests við kirkjuna í gær.
Golli
Grænland er land drauma
minna, okkar næsti granni,
stórbrotið og hrikalegt, heim-
kynni yndislegs fólk sem bet-
ur öðrum þekkir návígi við
náttúru sem í senn er blíðlynd
og gefur engan grið. Græn-
lendingar eiga sameiginlegt
með Íslendingum og frændum
vorum Færeyingum að hafa
aldrei farið með hernaði gegn
öðrum þjóðum.
Við í Hróknum njótum
þeirrar gæfu að hafa heimsótt
Grænlendinga ótal sinnum
með gleði og kærleika að leið-
arljósi. Allar okkar gjafir höf-
um við fengið margfalt til
baka.
Þegar ég lít á heimskortið
er svo einfalt að ímynda sér
þessar þrjár þjóðir mynda
sérstaka heimsálfu – Norður-
Eyjaálfu. Samanlagður íbúa-
fjöldi nær ekki hálfum millj-
arði, en áhrifasvæðið er langt-
um víðfeðmara. Saman hafa
þessar þrjár þjóðir svo margt fram að færa – lýðræði,
náttúruvernd, mannkærleik – í veröld sem er í brýnni
þörf fyrir þetta allt.
Íslenskir stjórnmálamenn og almenningur kveikja í æ
ríkara mæli á þessum mikilvægu grunnþáttum í utanrík-
isstefnu Íslands, sama hvar í flokki okkar menn standa.
Við höfum margt að færa Grænlendingum og þeir okkur,
og sama máli gegnir um okkar góðu vini í Færeyjum.
Ræktum vinskapinn. Við hér í norðrinu erum ein fjöl-
skylda, sem hefur ótal margt fram að færa í samfélagi
þjóðanna.
Eftir Hrafn Jökulsson
»Ræktum
vinskapinn.
Við hér í norðr-
inu erum ein
fjölskylda sem
hefur ótal margt
fram að færa
í samfélagi
þjóðanna.
Hrafn Jökulsson
Höfundur er formaður Skákfélagsins Hróksins.
Frændur
og vinir í
norðrinuBílar og ýmis vélknúintæki og vinnuvélar eru helsta
uppspretta loftmengunar í
þéttbýli á Íslandi. Hér er lítið
um mjög mengandi verk-
smiðjur í eða við þéttbýlis-
staði. Hér njótum við þess að
raforka er ekki framleidd
með brennslu jarðefnaelds-
neytis en víða í útlöndum er
mengun frá kolaorkuverum
talsverður hluti af þéttbýlis-
menguninni.
Við brennslu jarðefnaeldsneytis losnar
nituroxíð út í andrúmsloftið (NO, NO2) en
einnig rokgjörn lífræn efnasambönd
(VOC). Með hjálp sólarinnar myndast óson
(O3) úr þessum efnasamböndum og getur
hlutfall ósons í andrúmslofti aukist mjög
niður við jörð, sérstaklega á sólríkum sum-
ardögum. Víða í stórborgum heimsins, sér-
staklega þar sem er sólríkt, er ósonmeng-
un sá þáttur sem mest spillir loftgæðum.
Væntanlega er síður hætta á því á Íslandi
og frekar ástæða til að hafa áhyggjur af
svifryksmengun sem er líka óhjákvæmileg-
ur fylgifiskur bruna jarðefnaeldsneytis.
Koltvísýringur sem losnar við þennan
bruna er ekki skaðleg mengun í sama
skilningi en er samt sem áður sú lofttegund
sem mest leggur til hlýnunar loftslags á
jörðinni af mannavöldum.
Mikilvægt er ráðast að rótum vandans
og draga sem mest úr allri þessari mengun.
Vert er þó að grípa einnig til þeirra ráða
sem tiltæk eru til að eyða menguninni. Tré
ráða við ýmsa mengun og geta dregið úr
henni með margvíslegum hætti. Þau taka
upp ákveðin mengunarefni, ekki síst koltví-
sýringinn, og skila til baka súrefni. Önnur
efni og svifryk sest á laufskrúð, greinar og
stofn trjánna en skolast svo af í rigningu.
Í sumarhitum í útlöndum gegna tré auk
þess mikilvægu hlutverki við að hamla
gegn myndun ósons niður við jörð því þau
veita skugga og lækka lofthitann. Skugg-
og nýtt til að hita upp hús á vetrum en kæla
á sumrum gagnast trén til að tempra hita
þannig að minni orku er þörf til kælingar
eða upphitunar. Þetta á ekki við á Íslandi
með sama hætti. Auðvitað dregur skjól
trjánna úr þörfinni fyrir upphitun en hér
hefur það ekki áhrif á losun gróðurhúsa-
lofts því hér eru hús hituð upp með heitu
vatni eða endurnýjanlegu rafmagni. Engu
að síður má ímynda sér að spara mætti
mikið eldsneyti á bíla ef skógur væri rækt-
aður við þjóðvegi þar sem vindstrengir
auka eldsneytiseyðslu bílanna.
Rétt er því að mæla með ræktun trjá-
gróðurs til að draga úr umhverfisáhrifum
af athöfnum okkar mannanna, bæði í þétt-
býli og dreifbýli. Við hönnun hvers konar
mannvirkja ætti að vega og meta hvernig
nýta mætti trjágróður til að gera umhverf-
ið heilsusamlegra og fallegra og hamla
gegn loftslagsvánni.
Loks er vert að benda á skógrækt sem
aðferð til að draga úr áhrifum loftmeng-
unar á höfuðborgarsvæðinu sem stafar frá
Hellisheiðarvirkjun. Stórt skógræktar-
svæði milli Hellisheiðar og höfuðborgar-
innar gæti mögulega dregið úr því að
brennisteinssýra og köfnunarefnissýrur
bærust til borgarinnar. Skógurinn á
Hólmsheiði er vísir að slíkum lofthreinsi
fyrir byggðina og því er mikilvægt að eyða
honum ekki heldur stækka að mun. Jafnvel
þótt erfitt sé að sýna nákvæmlega fram á
hversu mikil áhrif skógarins yrðu, er vitað
að sígræn barrtré virka allt árið sem síur á
skaðleg efni í andrúmsloftinu.
inn minnkar líka hættuna á að
eldsneyti gufi upp úr eldneyt-
isgeymum og eldsneytiskerf-
um bíla í sólarhitanum. Hiti er
ekki vandamál á Íslandi en
hér eru mengunarefni í þétt-
býlislofti sannarlega vanda-
mál eins og annars staðar.
Samhliða því að ráðast gegn
upptökum mengunarinnar er
vert að huga vel að því hvern-
ig nýta megi trjágróður í þétt-
býli á Íslandi til að auka loft-
gæði í byggðinni. Umræða um
svifryksmengun kemur upp á
hverjum vetri á Íslandi og svifryk í and-
rúmslofti fer margoft yfir heilsu-verndar-
mörk, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Ak-
ureyri.
Lauftré taka upp mikið svifryk en þó
einkum þegar þau eru allaufguð á sumrin.
Birki er sérstaklega duglegur lofthreinsir
enda blöðin klístruð og gróf viðkomu. Þeg-
ar laufið fellur af minnkar samanlagt yf-
irborð lauftrjánna þó mjög mikið. Sígræn
barrtré fella á hinn bóginn ekki lauf sitt
(barrnálarnar) og því gegna þau þessu
hreinsunarhlutverki sínu betur árið um
kring. Ræktun sígrænna barrtrjáa mætti
því auka verulega í þéttbýli á Íslandi til að
berjast gegn loftmengun. Vert væri að
skipuleggja gróðursetningu slíkra trjáa
þegar nýjar umferðargötur eru lagðar og
hverfi skipulögð. Einnig er mikilvægt að
hugað sé að því hvernig auka megi trjá-
gróður meðfram helstu umferðaræðunum
þar sem mesta hættan er á mengun.
Tré taka upp nituroxíð, óson og koltví-
sýring úr andrúmsloftinu en svifrykið sest
á laufskrúð þeirra, greinar og stofn. Þau
anda auðvitað líka eins og aðrar lífverur og
láta því frá sér eitthvað af koltvísýringi og
rokgjörnum lífrænum efnasamböndum.
Meiru skiptir samt sem áður að þau binda í
sér kolefnið úr koltvísýringnum en skila
aftur súrefnissameindunum út í andrúms-
loftið.
Í löndum þar sem orka er að mestu
framleidd með brennslu jarðefnaeldsneytis
Eftir Pétur
Halldórsson » Aukin ræktun sígrænna
barrtrjáa í þéttbýli
gæti minnkað svifryk
og aðra mengun að mun
enda hreinsa þau loftið
árið um kring.
Pétur Halldórsson
Höfundur er kynningarstjóri
Skógræktar ríkisins.
Trjágróður gegn þéttbýlismengun