Morgunblaðið - 06.06.2016, Blaðsíða 23
lægð frá Paradís, 2005; Gleðileg jól,
2005; Lögin mín, 2006; Bláir, 2006;
06.06.06, 2006; Góð verk 07 (staf-
ræn útgáfa fyrir iPod) 2007; Ís-
bjarnarblús (stafræn útgáfa fyrir
netsölu) 2008; Fjórir naglar, 2008;
Bubbi og Stórsveit Reykjavíkur,
2008; Safn (1980-2010) 2010; Sögur
af ást, landi og þjóð 1980-2010,
2010; Strákarnir okkar, 2011; Ég
trúi á þig, 2011; Þorpið, 2012;
Stormurinn, 2013, og Æsku minnar
jól 2013.
Bubbi hefur samið leik- og kvik-
myndatónlist sem komið hefur út á
plötunum Rokk í Reykjavík, 1982;
Skepnan, 1985; Skytturnar, 1987;
Bíódagar, 1994; Ein stór fjölskylda,
1995; Carmen Negra, 1998; Litla
hryllingsbúðin, 1999; Íslenski
draumurinn, 2000, og Blindsker –
Saga Bubba Morthens, 2004. Þá
kom út plata með Bubba og Meg-
asi, Bláir draumar, 1988. Lög með
Bubba hafa komið út á a.m.k. 30
safnplötum og hann hefur auk þess
sungið inn á aragrúa hljómplatna
annarra listamanna. Hann samdi
stuðningsmannalag KR, Allir sem
einn, sem er þekktasta stuðnings-
mannalag íþróttafélags hér á landi.
Bækur eftir Bubba eru Box, eftir
Bubba og Sverri Agnarsson, 1989;
Rúmið hans Árna, barnabók, 1994;
Djúpríkið, eftir Bubba og Robert
Jackson, 2004; Að kasta flugu í
straumvatn er að tala við Guð,
2007; Net ljóð, 2008; Áin, 2009, og
Veiðisögur, 2011.
Ævisaga hans, Bubbi, eftir Silju
Aðalsteinsdóttur, kom út 1990 og
samtalsbókin Bubbi, eftir Árna
Árnason, kom út 2010.
Bubbi hefur alla tíð verið ein-
dreginn herstöðvaandstæðingur.
Þar sem tónlistinni sleppir hjá
Bubba tekur laxinn við: „Ég er al-
gjörlega forfallinn laxveiðimaður.
Ef ég er ekki að semja, spila eða
syngja er ég að hugsa um laxinn
sem bíður eftir því að taka, ekki
síst í Laxá í Aðaldal á Nesjavæð-
inu.
Svona lifi ég – einn dag í einu.“
Fjölskylda
Eiginkona Bubba er Hrafnhildur
Hafsteinsdóttir, f. 7.2. 1976, fram-
kvæmdastjóri FKA, Félags kvenna
í atvinnulífinu.
Börn Bubba og Brynju Gunn-
arsdóttur eru Hörður, f. 2.3. 1990,
Gréta, f. 14.12. 1992, og Brynjar
Úlfur, f. 11.2. 1998.
Dætur Bubba og Hrafnhildar eru
Dögun París Morthens, f. 24.2.
2009, og Aþena Lind Morthens, f.
7.5. 2012. Dóttir Hrafnhildar og
stjúpdóttir Bubba er Ísabella Ósk
Jónsdóttir, f. 23.2. 2005.
Albræður Bubba eru Arthur
Morthens, f. 27.1. 1948, fyrrv. ráð-
gjafi fræðslustjóra í Reykjavík, bú-
settur í Reykjavík; Sveinn Allan, f.
10.6. 1951, fyrrv. forstöðumaður
unglingaheimilisins Háholts í
Skagafirði, búsettur í Reykjavík;
Tolli, f. 3.10. 1953, myndlistarmaður
í Reykjavík.
Fósturbróðir Bubba er Bergþór,
f. 22.8. 1959, tónlistarmaður, bú-
settur í Hafnarfirði.
Hálfsystkini Bubba: Ævar Hólm
Guðbrandsson, f. 28.9. 1946, kenn-
ari; Ágúst Rósmann Morthens, f.
5.1. 1943, málarameistari, og Hjör-
dís Emma, f. 26.10. 1936, húsfreyja.
Foreldrar Bubba: Guðbrandur
Kristinn Morthens, f. 18.10. 1917,
d. 4.12. 2002, listmálari í Reykjavík
og í Fjallakofanum við Meðalfells-
vatn, og Grethe Skotte Morthens, f.
18.3. 1928 á Lálandi í Danmörku, d.
30.1. 1982, húsfreyja.
Úr frændgarði Bubba Morthens
Bubbi
Morthens
Agnette Theresie Skotte
húsfr. á Vindbygaard
Hans Christian Skotte
stórb. á Vindebygaard
Rigmor Skotte Pedersen
húsfr. á Láglandi
HansWilly Pedersen
þjónn í Kaupmannahöfn
Grethe Skotte Pedersen
Morthens húsfr. í Rvík
Anna Pedersen
húsfr. á Lálandi
Karl Vilhelm Pedersesn
mjólkurbússtj. á Lálandi og
síðar í Kaupmannnahöfn
Margrét Hinriksdóttir
húsfr. í Ölvisholti
Rósa Guðbrandsdóttir
húsfr. í Rvík og Hafnarfirði
Guðbrandur Kristinn Morthens
listmálari í Rvík og
Meðalfellsvatni í Kjós
Edvard Wiig Morthens
verslunarm. og síldar-
bræðslum. í Hafnarfirði
Emilie Lovisa Sofie Jakobsen
í Nærð
Morten Hofstad Vii
í Nærð í Noregi
Arthur Morthens
fyrrv. ráðgjafi
fræðslustjóra
Rvík-borgar
Sveinn Allan Morthens
fyrrv. forstöðum.
Tolli Morthens
myndlistarmaður
Haukur Morthens
söngvari
Elín Guðbrandsdóttir
húsfr. í Næfurholti á
Rangárvöllum
Guðrún Laufey
Ófeigsdóttir
húsfr. á Hólum á
Rangárvöllum
Sverrir Haraldsson
listmálari í Selsundi
á Rangárvöllum
Sæmundur
Sæmundsson
b. á Lækjar-
botnumJóhanna
Vigdís
Sæmundsd.
húsfr. í Rvík.Sigríður
Erlendsdóttir
sagnfr. í Rvík.
Ragnhildur Hjaltadóttir
ráðuneytisstjóri
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
fréttam. á RÚV.
Guðrún Erlendsdóttir
fyrrv. hæstaréttard.
Jóhanna
Vigdís Arnardóttir
söng- og leikkona.
Katrín
Sæmundsdóttir
húsfr. í Austvaðsholti
Sæmundur Jónsson
fulltrúi í Rvík.
Signý
Sæmundsdóttir
óperusöngkona
Guðbrandur Sæmundsson
b. í Ölvisholti
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. JÚNÍ 2016
Axel Valdimar Tulinius fæddistá Eskifirði 6. júní 1865. For-eldrar hans voru Carl Daniel
Tulinius, f. 1835, d. 16. 1905, kaup-
maður og ræðismaður þar, en hann
var frá Slésvík, og k.h. Guðrún Þór-
arinsdóttir, f. 1835, d. 1904, hús-
móðir. Hún var dóttir Þórarins Er-
lendssonar prófasts í Bjarnarnesi,
A-Skaft., og k.h. Guðnýjar Bene-
diktsdóttur.
Axel tók stúdentspróf frá Lærða
skólanum 1884 og tók lögfræðipróf
frá Hafnarháskóla 1892 og var um
tíma lögregluþjónn í Kaupmanna-
höfn.
Þegar Axel kom heim til Íslands
gerðist hann fulltrúi bæjarfógetans í
Reykjavík 1893 og varð svo sýslu-
maður í Suður-Múlasýslu 1894-1911
og sat á Eskifirði. Hann gegndi um
hríð báðum Múlasýslum.
Hann fluttist til Reykjavíkur 1911
og varð yfirréttarmálaflutnings-
maður og var síðan umboðsmaður
erlendra tryggingafélaga 1912-1918.
Hann varð forstjóri Sjóvátrygginga-
félags Íslands frá stofnun þess 1918,
en félagið tók til starfa 1. janúar
1919, til 1933.
Axel var alþingismaður Suður-
Múlasýslu 1900-1901 fyrir Fram-
faraflokkinn. Hann var forseti
Íþróttasambands Íslands frá stofn-
un þess 28. janúar 1912 til 1926 og
skátahöfðingi Íslands frá 1926 til
æviloka. Hann var ræðismaður
Portúgals frá 1924.
Axel var fararstjóri í för Friðriks
konungs VIII austur í sveitir 1907
og var ritstjóri Liljunnar, sem var
íslenskt skátablað 1916.
Eiginkona Axels var Guðrún Hall-
grímsdóttir, f. 14.2. 1875, d. 5.11.
1954, húsmóðir. Foreldrar hennar
voru Hallgrímur Sveinsson alþing-
ismaður og k.h. Elina Marie Feveile
frá Danmörku. Börn Axels og Guð-
rúnar: Hallgrímur Axel, f. 1896, d.
1963, stórkaupmaður og fram-
kvæmdastjóri í Rvík, Guðrún Agla,
f. 1897, d. 1900, Carl Daniel, f. 1902,
d. 1945, framkvæmdastjóri í Rvík,
og Erling Gustav, f. 1909, d. 1991,
læknir í Danmörku.
Axel lést 8. desember 1937.
Merkir Íslendingar
Axel V.
Tulinius
90 ára
Gísli Guðmundsson
Margrét Katrín Valdimars-
dóttir
85 ára
Ástríður Magnúsdóttir
Sigurborg Jakobsdóttir
80 ára
Guðríður Sveinsdóttir
Jón Guðmundur Hall-
dórsson
Runólfur Sigurðsson
Sigurveig G. Einarsdóttir
75 ára
Erna Elínbjörg Árnadóttir
Grétar Jónsson
Guðmundur Sveinsson
Halldóra Jónsdóttir
Hallfríður Edda Lýðsdóttir
Hrólfur Ingimundarson
Jóhann Harðarson
Jóhann Landmark Guð-
bjartsson
70 ára
Anna María Hjálmarsdóttir
Bjarni Gunnarsson
Einar Finnbogason
Halldóra Guðmundsdóttir
Kristján Knútsson
Lovísa Guðmundsdóttir
Ólöf Díana Guðmundsdóttir
Sigríður Berglind Bald-
ursdóttir
Sigurlína Þorsteinsdóttir
60 ára
Ása Ásgrímsdóttir
Ásbjörn K. Morthens
Ásgerður Halldórsdóttir
Elín Gísladóttir
Erla Kjartansdóttir
Grazyna Posnik
Guðrún Stefanía Kristinsd.
Helga Ólafsdóttir
Hörður Erlendsson
Ingólfur Benediktsson
Ingrid Maria Svensson
Jóna Aðalh. Vilhjálmsdóttir
Kjartan Hafsteinn Kjart-
ansson
Þjóðólfur Gunnarsson
50 ára
Arnar Már Snorrason
Bjarni Jónsson
Einar Karl Hallvarðsson
Guðjón Árnason
Guðmundur Ö.
Guðbjartsson
Jakob Falur
Garðarsson
Lovísa Kristín Jóhannesd.
Ranemilfo Melendres
Vilhelm Henningsson
Ævar Gunnarsson
40 ára
Dennis Helgi Karlsson
Egill Tómasson
Ingunn Erla Ævarsdóttir
Karen Haraldsdóttir
Ólafur Guðmundsson
Sigrún Gróa Magnúsdóttir
Stefán Ágústsson
Valdís Valdimarsdóttir
30 ára
Anna J. Sobieniecka-
Kuriata
David Eugene Cross
Eðvarð Ingi Björgvinsson
Gísli Rafn Guðmundsson
Hafdís Ragna Rúnarsdóttir
Haukur Týr Guðmundsson
Ingibjörg Th Sigurðardóttir
Justyna Alicja Wlodarska
Marcin Norbert Guzik
Óskar Hafsteinn
Halldórsson
Zija Krrutaj
Til hamingju með daginn
40 ára Ingunn er Akur-
eyringur, býr þar og er
hjúkrunarfræðingur á
heilsugæslustöðinni.
Maki: Eggert Sæmunds-
son, f. 1976, flugmaður
hjá Norlandair.
Börn: Elísabet Birta, f.
2000, og Sunna Margrét,
f. 2008.
Foreldrar: Ævar Hólm
Guðbrandsson, f. 1946,
og Laufey G. Thoraren-
sen, f. 1949. Þau eru bús.
í Reykjavík.
Ingunn Erla
Ævarsdóttir
30 ára Haukur býr í
Reykjavík og er deildar-
læknir á bráðamóttöku
Landspítalans
Maki: Erla Björg Guð-
laugsdóttir, f. 1987, hjúkr-
unarfræðingur á Land-
spítalanum.
Foreldrar: Guðmundur
Björgvinsson, f. 1955,
heimilislæknir í Grafar-
vogi, og Stefana Gylfa-
dóttir, f. 1955, lífeindafr. á
Landspítalanum. Þau eru
bús. í Hafnarfirði.
Haukur Týr
Guðmundsson
30 ára Inga Theodóra er
Hafnfirðingur, snyrti-
meistari og rekur Snyrti-
stofuna Bonita í Kópa-
vogi.
Maki: Hermann Valdimar
Jónsson, f. 1985, véla-
hönnuður hjá Völku.
Börn: Viktor Ben, f. 2008,
og Kristófer Jarl, f. 2011.
Foreldrar: Sigurður Óli
Sigurðsson, f. 1959, fast-
eignasali, og Margrét
Theodórsdóttir, f. 1960, d.
1999.
Ingibjörg Th.
Sigurðardóttir
Snap-on er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á öflugum og traustum verkfærum
fyrir öll svið iðnaðar. Snap-on er vörumerki fyrir þá sem gera miklar kröfur
um gæði, endingu og áreiðanleika. Kynntu þér Snap-on vörurnar hjá Vélum
og verkfærum, úrvalið er ótrúlegt.