Morgunblaðið - 30.06.2016, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2016 9VIÐTAL
„María lenti stundum í því þegar við vorum að
byrja í Hafnarstrætinu að karlmenn afþökkuðu
pent þegar hún bauð þeim aðstoð og sögðust
vera að bíða eftir mér. Það þýddi lítið að hafa
konu í afgreiðslunni í veiðivöruverslun á þeim
tíma,“ segir Ólafur og bætir við að þegar karl-
arnir hafi keypt sér nýjan búnað hafi konan
fengið þann gamla.
„Eiginmaðurinn fékk sér kannski nýjar vöðl-
ur og konan fékk þær gömlu, sem voru jafnvel
númer 46 og allt of stórar á hana.“
Þau eru sammála um að breyting hafi orðið á
fljótlega upp úr aldamótum og með tilkomu fjöl-
mennra veiðiferða í boði banka og stórfyrir-
tækja á árunum 2004 til 2007 hafi fjöldi fólks
fengið áhuga á veiði. Segir María að í dag sé
töluvert um hjónaferðir og líka ferðir þar sem
konur fari saman að veiða.
„Þetta er ekki lengur þetta vindla- og jeppa-
sport sem var bara fyrir karlmanninn, eins og
áður. Núna erum við t.d. með mikið úrval af
veiðivörum fyrir konur í versluninni. Til að
mynda eigum við fimm gerðir af vöðlum í kven-
sniði. Þá sjáum við að boðsferðir fyrirtækja eru
farnar að tíðkast aftur enda vita þeir sem
þekkja að viðskiptasambönd er hægt að treysta
á góðum stundum úti í náttúrunni með stöng í
hönd. Mörg fyrirtæki leita til okkar með leigu á
búnaði fyrir gesti, en við höfum leigt veiðibúnað
í 18 ár.“
Ferðamenn versla mikið
Fjölgun kvenna í veiði þýðir aukið vöruúrval
fyrir bæði karla og konur í Veiðihorninu en
hvernig hefur fjölgun ferðamanna til landsins
haft áhrif á rekstur verslunarinnar? Njóta
verslanir með sérhæfða vöru sömu vinsælda og
lundabúðir á Laugarveginum?
„Yfir sumarmánuðina er stór hluti viðskipta-
vina okkar útlendingar. Þeir koma þá t.d. hing-
að til lands í þeim tilgangi að veiða og eru að
kaupa sér búnað, jafnvel frá grunni. Síðan eru
það hinir sem eru að fara um landið og langar að
kaupa sér ódýra stöng og flugur,“ segir María
og Ólafur bætir því við að silungsveiði hafi auk-
ist mikið meðal ferðamanna og margir komi,
kaupi Veiðikortið og fari síðan um landið að
veiða.
„Í þessu sambandi er gaman að segja frá því
að við fengum Njarðarskjöldinn, sem er viður-
kenning Reykjavíkurborgar og Samtaka versl-
unarinnar sem ferðamannaverslun ársins,“ seg-
ir Ólafur.
Ofan á allan þann fjölda Íslendinga sem
stunda veiðar bætist því fjöldi erlendra ferða-
manna sem sérstaklega eru komnir til að veiða
eða eru forvitnir um veiðar hér á landi. Það má
því ætla að reksturinn gangi vel hjá þeim hjón-
um þótt erfitt sé að fá þau til að ræða uppgjör og
þróun markaða. Þau eru nefnilega, eins og Ólaf-
ur orðar það sjálfur, kaupmenn á horninu, Veiði-
horninu, með ástríðu fyrir veiðum.
að það sé mjög mikilvægt fyrir verslun eins og
þeirra að hafa góða og reynda starfsmenn, sem
hafi mikla reynslu af veiði og þekki allan veiði-
búnað vel.
„Það er ekki hægt að reka fyrirtæki á borð við
þetta án góðra starfsmanna. Þetta eru sérhæfð-
ar vörur og það verður að hafa fagfólk í af-
greiðslunni og þjónustu við viðskiptavininn.
Fólk er bæði að leita að góðri vöru en sækir líka
til okkar vegna reynslu starfsmanna okkar sem
geta ráðlagt og leiðbeint viðskiptavinum um
vöruna og veiðina.“
Ólafur tekur undir þessi orð Maríu og bætir
því við að auk gæðavöru og reyndra starfs-
manna leggi allir sig fram við að veita fyr-
irmyndarþjónustu.
„Þegar við byrjuðum tókum við strax þá
ákvörðun að kaupa eingöngu inn vörur sem við
vildum selja og við töldum vera bestu vörurnar.
Þessi blanda, þ.e. gott starfsfólk sem hefur verið
með okkur í mörg ár, góðar vörur og fyrirmynd-
arþjónusta, er lykillinn að góðum rekstri.“
Stór hópur en stutt tímabil
Í samanburði við nágrannalönd okkar er
fjöldi þeirra sem stunda veiði á Íslandi mjög
mikill sem hlutfall af íbúatölu að sögn Ólafs en
veiðitímabilið á móti mjög stutt.
„Fyrir rúmlega 330 þúsund manna þjóð verð-
ur það að teljast ansi gott að ríflega 80 þúsund
manns stunda veiðar að einhverju marki. Við
búum hins vegar við þann ókost að veiði-
tímabilið er mjög stutt hérna,“ segir hann og
María bætir við að fyrstu árin hafi þau upplifað
góða sölu í júní, júlí og ágúst, þokkalegan sept-
embermánuð og góðan desember en lítið aðra
mánuði ársins.
„Það er rétt hjá Maríu. Við vorum 99 prósent
í stangveiðinni fyrstu árin okkar og vorum í
basli mánuðina utan veiðitímabilsins, að desem-
ber undanskildum. Þess vegna færðum við okk-
ur meira út í vörur fyrir skotveiði, enda tekur
það tímabil við þegar stangveiðinni sleppir á
haustin.“
Hóparnir skarast lítið að sögn þeirra hjóna
þótt auðvitað séu til veiðimenn sem stunda bæði
skotveiði og stangveiði. Þessar tvær greinar
segja þau að styðji hvora aðra í versluninni.
„Núna eigum við fleiri góða mánuði og getum
boðið betri þjónustu og mikið úrval af veiðibún-
aði fyrir alla veiðimenn allt árið um kring,“ segir
Ólafur.
Jafnrétti í veiðinni
Þó ítrekað sé minnst á að viðtalið sé fyrir Við-
skiptaMoggann reynist erfitt að fá hjónin til að
ræða um reksturinn í tölum. Þau líta á sig sem
kaupmenn með ástríðu fyrir veiði. Þegar spurt
er um breytingar á markaðnum frá því þau hófu
rekstur líta þau hvort á annað og eru sammála
um að fjölgun kvenna í veiði sé jákvæðasta og
besta breytingin.
hafi í þeirri viðleitni nýlega dustað rykið af nafn-
inu Veiðimaðurinn.
„Það er rétt,“ grípur Ólafur inn í og segir nafn
og merki Veiðimannsins hafa legið í dvala hjá
þeim í nokkur ár.
„Fyrstu árin okkar í rekstri leigðum við nafn
Veiðimannsins en keyptum það síðar til notk-
unar á réttum tímapunkti. Núna höfum við dust-
að af því rykið og enduropnað verslun okkar á
Krókhálsi undir því nafni. Það er glæsileg veiði-
búð með sambærilegum vörum og hér í Síðu-
múla að mörgu leyti en öðrum áherslum. Auk
stóru merkjanna okkar í fluguveiði leggjum við
einnig mikla áherslu á ódýrari veiðibúnað fyrir
alla fjölskylduna og seljum beitu í veiðiferðina.
Veiðimaðurinn er vel staðsettur, á Krókháls-
inum eða í leiðinni úr bænum eins og við segjum
gjarnan.“
Vandaðar vörur og góð þjónusta
Meðan á viðtalinu stendur má sjá starfsmenn
verslunarinnar stjana í kringum viðskiptavini
sem stinga inn höfði og trufla einstaka sinnum
viðtalið til að leita ráða þeirra hjóna. María segir
lítið frá til þess að sinna áhugamálinu, veiðinni,
á sumrin. Við höfum veitt lax og silung á Íslandi
í 35 ár en síðustu árin höfum við varið meiri tíma
með flugustöng í hlýjum sjónum á fjarlægum
slóðum við miðbaug yfir vetrartímann.“
Uppgangur í verslun á ný
Áherslur breyttust fljótlega eftir hrun og eins
og góðir veiðimenn þurftu Ólafur og María að
laga sig að nýjum aðstæðum.
„Við fundum strax að veiðimenn voru að leita
eftir ódýrari vöru og að nýta hana betur. Þetta
var ný áskorun fyrir okkur og við einsettum
okkur að mæta þörf viðskiptavina okkar og
bjóða bæði góðar og vandaðar vörur en á sama
tíma ódýrar,“ segir Ólafur, en María segir
ástandið hafa batnað hratt á undanförnum ár-
um.
„Síðustu ár höfum við fundið fyrir auknum
kaupmætti og fjölgun ferðamanna. Við erum að
ná aftur því sem kalla mætti eðlilegt ástand og
höfum lagt meiri áherslu á vandaðri vörur,“ seg-
ir hún en bendir svo á að þau bjóði við-
skiptavinum sínum enn upp á ódýrar vörur og
Morgunblaðið/Ófeigur
á horninu
Í versluninni Veiðihorninu í Síðumúla má sjá eig-
endur fyrirtækisins, Ólaf og Maríu, sinna við-
skiptavinum sínum. Þau telja árangur velgengni
sinnar leynast í góðri þjónustu sinni og áhuga sín-
um á veiðum, en þau hjón eru miklir veiðimenn .
María Anna Clausen og Ólafur Vigfússon
keyptu elstu sportveiðiverslun landsins, Veiði-
manninn í gamla miðbæ Reykjavíkur, árið
1998, en sögu Veiðimannsins má rekja til árs-
ins 1938 þegar starfsemin hófst undir nafninu
Veiðiflugugerð Íslands. Síðar breytti frum-
kvöðullinn Albert Erlingsson nafninu og opn-
aði Veiðimanninn í Hafnarstræti árið 1940.
Veiðihornið á því 78 ára gamla og glæsta sögu.
Í þau 18 ár sem María og Ólafur hafa rekið
verslunina hefur reksturinn tekið nokkrum
breytinum. Í upphafi einbeittu þau sér að
mestu að stangveiði en þjóna núna, auk
stangveiðinnar, öllum þörfum skotveiði-
manna. Þá hefur konum fjölgað gífurlega í
veiðinni og ferðamenn eru stækkandi hópur
viðskiptavina.Allt þetta og skynsamar
ákvarðanir eigendanna hefur skilað þeim
hagnaði öll árin sem þau hafa rekið versl-
unina.
Konurnar eru mættar í veiðina með miklum krafti
Morgunblaðið/Ófeigur
Veiðihornið rekur sögu sína til ársins 1938 en verslun með veiðivörur hefur tekið miklum breytingum.