Barnablaðið - 14.08.2016, Side 5
að koma með sér. Mér leist bara
vel á hugmyndina. Ég greindist
með krabbamein fyrir rúmu ári og
get því safnað fyrir Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna í leiðinni.
Krabbameinið sem ég fékk var
staðbundið og það var auðvelt
að meðhöndla það og ég er alveg
búinn að jafna mig. Það eru ekki
nærri því allir eins heppnir og ég.
Þetta var erfitt á meðan á því stóð
en ég held að maður hugsi aðeins
öðruvísi eftir að hafa lent í svona
reynslu.
Hafið þið æft ykkur eitthvað fyrir
hlaupið?
Bjarki: Já, fullt, við vorum að koma
heim frá Frakklandi og þar æfðum
við okkur mikið.
Valdimar: Ég æfði töluvert úti í
Frakklandi, tók spretti og nokkur
lengri hlaup.
Hvað á fólk að gera ef það vill
heita á ykkur eða aðra hlaupara?
Bjarki: Það er mjög auðvelt.
Best er að fara inn á hlaupastyrkur.
is og finna félagið sem maður vill
styrkja. Fólk ræður alveg hversu
miklum peningum það vill heita á
hlauparana. Það þarf ekki að vera
mikill peningur, heldur er aðalmálið
að vera með. Ég kíki stundum
hvað upphæðin er orðin mikil hjá
mér, það er mjög skemmtilegt. Svo
þegar hlaupið er búið fá samtökin
allan peninginn.
Eruð þið góðir vinir?
Bjarki: Já, við erum mjög góðir vinir.
Valdimar: Við gerum mjög margt
saman. Það eru 6 ár á milli okkar
en við erum samt ótrúlega góðir
vinir.
Hvað gerið þið saman?
Valdimar: Við förum t.d. út
að hjóla og núna förum við
mikið út að leita að Póke-
mon. Við eigum sameigin-
legt áhugamál sem er
fótboltinn. Við getum
alltaf talað um hann og svo
höldum við að sjálfsögðu
báðir með Manchester.
Bjarki: Stundum förum við
í fótbolta úti á velli eða spilum
tölvuleiki saman.
BARNABLAÐIÐ 5
Hægt
er að heita
á
strákana m
eð því að
fara inn á h
laupstyrku
r.is
og finna gó
ðgerðarfélö
gin
sem þeir h
laupa fyrir
og
leggja félö
gunum lið
með
því framlag
i sem hver
og einn kýs
.
Hlaupið er stærsta
áheitahlaup landsins.
Myndin er frá hlaupinu 2015.
Valdimar og Bjarki
ásamt hundinum Töru.
Allir
þátttakend
ur
í hlaupinu g
eta
safnað áhe
itum
fyrir skráð
góðgerðafé
lög.