Morgunblaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2016 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Í RÍÓ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Þórir Hergeirsson bætti við magn- aða afrekaskrá sína sem þjálfari norska kvennalandsliðsins í hand- bolta þegar hann stýrði liðinu til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó um helgina. Noregur vann stórsigur á Hollandi í leiknum um bronsið, 36:26, eftir naumt tap í framlengdum undanúrslitaleik gegn Rússum sem urðu svo ólymp- íumeistarar með því að vinna Frakka. Þetta eru áttundu verðlaunin sem Noregur vinnur til undir stjórn Þóris, á þeim níu stórmótum sem liðið hefur getað keppt á síðan hann tók við sem aðalþjálfari árið 2009. Undir stjórn Þóris hefur Noregur tvívegis orðið Evr- ópumeistari (2010 og 2014), tvíveg- is heimsmeistari (2011 og 2015), og ólympíumeistari 2012. Þá fékk liðið silfur á EM 2012. Það eru því nán- ast vonbrigði að fá „bara“ brons fyrir Þóri og hans lið, en hann var ánægður með það hvernig sitt lið hóf leikinn gegn Hollandi þar sem aldrei var spurning hvernig færi. En hver er galdur þjálfarans við að ná stöðugt svona góðum árangri? „Þetta er bara sveitamennska af Suðurlandinu. Þetta kemur bara frá Selfossi og fjölskyldunni þar. Þetta snýst bara um hörkuvinnu, og ekkert annað en það. Að vera alltaf á tánum, alltaf að leita eftir einhverju til að bæta og vera flink- ur að styrkja það sem er gott,“ sagði Þórir léttur, en að sama skapi af fullri alvöru. „Svo er líka mikilvægt að fá með sér teymi af góðu fólki, virkja teymið og leikmannahópinn. Það hefur verið aðalvopnið okkar, allan þann tíma sem ég hef verið í þessu, að vinna svona vel saman í teymi og virkja leikmennina; gera þær ábyrgar fyrir sínum ferli og liðsins,“ bætti Þórir við. Hann er með samning um að þjálfa norska liðið áfram fram yfir Ólympíu- leikana í Tókýó 2020, og því gætu verðlaunin frá stórmótum orðið á annan tug áður en Þórir snýr sér að öðru: „Eins lengi og norska sambandið vill hafa mig og eins lengi og ég finn að ég hef orku í þetta og „mótíveringu“ þá held ég áfram. Samningurinn er til fjögurra ára í viðbót en ef að maður missir hvatninguna, sambandið verður óþolinmótt eða leikmennirnir þola mann ekki lengur, þá finnur maður bara upp á einhverju öðru,“ sagði Þórir. „Sveitamennska af Suðurlandi“  Þórir Hergeirsson fékk brons- verðlaun í Ríó  Hefur fengið verðlaun á þrennum leikum í röð  Lykilatriði að virkja leikmennina AFP Brons Þórir Hergeirsson og Nora Mork fagna niðurstöðunni eftir sigur í leiknum um 3. sætið. Þórir Hergeirsson » Uppalinn á Selfossi og lék þar handbolta. Fluttist til Nor- egs og hefur búið þar í meira en tvo áratugi. » Hefur átt geysilegri vel- gengni að fagna með norska kvennalandsliðið í handbolta. Undir hans stjórn hefur liðið fimm sinnum sigrað á stórmót- um. » Nýjasta afrekið hjá Þóri er bronsverðlaun á Ólympíu- leikunum í Ríó. Eftir að Guðmundur Þórður Guð- mundsson vann gullverðlaun með danska karlalandsliðinu í hand- knattleik, og Dagur Sigurðsson stýrði Þjóðverjum til brons- verðlauna, er ljóst að þrír Íslend- ingar unnu til verðlauna á þessum Ólympíuleikum. Þórir Hergeirsson fékk einnig brons, með norska kvennalandslið- inu í handknattleik. Allir íslensku verðlaunahafarnir eru þjálfarar og unnu þeir allir til verðlauna í hand- boltakeppni leikanna eins og íþróttaáhugamenn þekkja. Þá var Eyleifur Jóhannesson einn þeirra sem komu að boðssundsveit Dana sem vann til bronsverðlauna í 4x100 fjórsundi. Mie Nielsen, sem Eyleifur þjálfar, var í sveitinni. Nielsen keppti á Reykjavíkurleik- unum síðasta vetur. Saga Íslendinga á Ólympíuleikum geymir ekki ýkja mörg verðlaun og telst þessi frábæri árangur þeirra til því verulegra tíðinda, jafnvel þótt þeir keppi ekki undir merkjum Ís- lands. Helst mætti sennilega líkja ár- angrinum við uppskeru Íslendinga á leikunum í Peking árið 2008. Ís- lenska karlalandsliðið í handbolta vann þá til silfurverðlauna, einmitt undir stjórn Guðmundar. Þá var Þórir kominn inn í þjálfarateymið hjá Noregi og fékk þá gullverðlaun. Auk þess sigraði Gerd Kanter þá í kringlukasti og þjálfari hans var Vé- steinn Hafsteinsson. Þórir endurtók leikinn í London 2012 og fékk þá gull sem þjálfari og Kanter fékk bronsverðlaun undir handleiðslu Vésteins. Fá ekki peninginn Hér er reyndar rétt að taka fram að þjálfarar á Ólympíuleikum þurfa að láta heiðurinn og hlýjar minn- ingar nægja því þjálfurum er ekki úthlutað verðlaunapeningum á Ól- ympíuleikum heldur eingöngu íþróttamönnunum sjálfum. Hvort sem um hópíþrótt eða ein- staklingsíþrótt er að ræða. Þótt sú regla sé höfð á Ólympíuleikum þá er engu að síður ljóst að þáttur þjálf- ara í árangri íþróttafólks er stór. Að öðru leyti hafa ein verðlaun komið í hlut Íslendinga í einu á Ól- ympíuleikum eins og í Melbourne 1956, Los Angeles 1984 og Sydney 2000 þegar Vilhjálmur Einarsson, Bjarni Friðriksson og Vala Flosa- dóttir unnu silfur, brons og brons. Við þetta má bæta að Vestur- Íslendingar voru í liði Kanada sem varð Ólympíumeistari í íshokkíi á Vetrarólympíuleikunum í Antwer- pen árið 1920. kris@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjálfari Eyleifur þjálfar Mie Nielsen sem vann brons í boðsundi. Óvenjumörg verðlaun hjá Íslendingum  Íslenskir þjálfarar gerðu það gott á leikunum í Ríó Dagur Sigurðsson leiddi þýska karlalandsliðið í handknattleik til bronsverðlauna á Ólympíu- leikunum í gær eftir 31:25 sigur á Póllandi. Lærisveinar Dags fóru hægt af stað en sóttu í sig veðrið eftir fyrsta leikhlé og voru komnir í 17:13 for- ystu þegar fyrri hálfleik var lokið. Pólverjum tókst ekkert að klóra í bakkann í seinni hálfleik og voru lokatölur eins og áður segir 31:25. Þjóðverjar töpuðu naumlega fyr- ir Frökkum, 29:28, í undanúrslitum ÓL og því voru Íslendingar rændir möguleika á að sjá Guðmund Þórð Guðmundsson og Dag Sigurðsson mætast í úrslitunum. Þó fór allt á besta veg enda vann Guðmundur gullið í gær. Staðið sig með prýði Dagur Sigurðsson hefur gert frá- bæra hluti sem þjálfari þýska lands- liðsins síðan hann tók við þjálf- arastarfinu árið 2014. Hann batt enda á níu ára verðlaunaþurrð þeg- ar hann sýrði liðinu til sigurs á Evr- ópumótinu í handknattleik í byrjun árs. johannes@mbl.is AFP Ástríðufullur Dagur fagnar bronsinu eftir 31:25 sigur á Póllandi í gær. Dagur og félagar unnu bronsverðlaun  Þýska landsliðið vann öruggan sigur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.