Morgunblaðið - 22.08.2016, Blaðsíða 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2016
Í FROSTASKJÓLI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Lítil breyting varð á stöðu KR og
Breiðabliks í Pepsi-deild karla í gær-
kvöldi. Liðin gerðu 1:1 jafntefli í Vest-
urbænum og eftir sem áður munar því
fjórum stigum á liðunum eftir sextán
leiki. Breiðablik er með 27 stig í 5.
sæti en KR með 23 stig.
Blikar eru sjálfsagt svekktir því
þeim gekk lengst af nokkuð vel að
halda KR-ingum í skefjum. KR-ingar
áttu ekki mörg markskot fyrr en
dönsku nafnarnir bjuggu til laglegt
jöfnunarmark á 79. mínútu. Beck-
nafnið er goðsagnakennt í KR-
heimilinu og þeir Morten Beck og
Morten Beck Andersen lögðu sitt af
mörkum í gær. Fram að því hafði KR-
ingum gengið erfiðlega að opna vörn
Blika en þar hafa þeir Elfar Freyr
Helgason og Damir Muminovic leikið
vel í sumar, rétt eins og í fyrra.
Óhætt er þó að segja að Blikar hafi
verið sjálfum sér verstir. Eða sjálfum
sér hættulegastir öllu heldur. Þrívegis
voru þeir nálægt því að skora sjálfs-
mark í leiknum. Tvívegis bjargaði
Gunnleifur vel og í eitt skiptið small
boltinn í stönginni. En til að gæta
sanngirni var aðeins eitt tilvikið áber-
andi slysalegt. Í hinum tveimur tilfell-
unum voru miðverðir að teygja sig í
boltann þegar hættulegar fyrirgjafir
komu inn á teiginn.
Blikar eru að dragast aftur úr FH-
ingum fyrir lokasprettinn í deildinni.
Ef FH fær þrjú stig í kvöld þá munar
sjö stigum á liðunum. Breiðablik hef-
ur jafn mörg stig og Fjölnir og Stjarn-
an sem einmitt glímir við FH í kvöld.
KR-ingar halda áfram að laga stöðu
sína eftir erfiða byrjun. Áhuginn í
Vesturbænum virðist ekki mikill í
sumar miðað við stemninguna í gær-
kvöldi en liðið á þó ágæta möguleika á
því að ná í Evrópusæti. Öll íslensk lið
munar um þá fjármuni sem þar eru í
boði.
Eitt stig breytir litlu
Morgunblaðið/Ófeigur
Blikar geta misst FH-inga langt frá sér KR heldur áfram að laga sína stöðu
Íslenska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 18 ára og
yngri, vann í gærmorgun Serba, 32:30, í leik um sjöunda sæti á Evr-
ópumeistaramótinu sem fer fram í Króatíu. Serbar voru marki yfir í hálf-
leik, 17:16. Gísli Þorgeir Kristjánsson fór hamförum í leiknum og skoraði
helming marka íslenska liðsins.
Með þessum sigri hefur íslenska liðið tryggt sér sæti á heimsmeistara-
mótinu sem fram fer á næsta ári og þátttöku lokakeppni EM 20 ára liða
sem fram fer eftir tvö ár.
Liðin skiptust á að hafa yfirhöndina í fyrri hálfleik í leiknum í morgun.
Augljóslega var þreyta í báðum liðum enda löngu móti að ljúka. Það voru
þó Serbar sem höfðu yfir í hálfleik, 17:16.
Í síðari hálfleik sóttu íslensku strákarnir í sig veðrið og komust yfir. Þó
að Serbarnir væru aldrei langt undan héldu strákarnir forystunni út leikinn og unnu góðan
sigur í lokaleik mótsins. Auk sextán marka Gísla skoraði Teitur Örn Einarsson 7 mörk, Elliði
Snær Viðarsson skoraði 5 og aðrir leikmenn íslenska landsliðsins skoruðu eitt mark. Andri
Scheving varði 6 skot í marki Íslands. johannes@mbl.is
Gísli skaut Íslandi á HM og EM
Gísli
Kristjánsson
Björn Bergmann Sigurðarson, leikmaður
Molde í Noregi, skoraði tvö mörk í 4:2 sigri
liðsins á Odds Ballklubb í norsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í gær.
Björn, sem er fæddur árið 1991, gekk til liðs
við Molde í sumar eftir að hafa verið á mála hjá
Wolverhampton Wanderers á Englandi.
Þetta var þriðji leikur Björns á tímabilinu
fyrir Molde í dag en hann gerði fyrstu tvö
mörk liðsins. Hann lék þá allan leikinn fyrir
liðið.
Lærisveinar Ole Gunnar Solskjær í Molde
eru með í 7. sæti norsku deildarinnar eftir 21 leik, 16 stigum frá
Rosenborg sem trónir á toppnum. Þó skilja aðeins fjögur stig
Molde og Odds Ballklubb að, en Odd er í öðru sæti. Níu leikir eru
eftir af tímabilinu. johannes@mbl.is
Björn skoraði tvennu
Björn Bergmann
Sigurðarson
Alvogen-völlur, Pepsi-deild karla, 16.
umferð, sunnudaginn 21. ágúst 2016.
Skilyrði: Smárigning, hægviðri. Völl-
urinn blautur.
Skot: KR 8 (5) – Breiðablik 10 (4).
Horn: KR 5 – Breiðablik 3.
KR: (4-4-2) Mark: Stefán Logi Magn-
ússon. Vörn: Morten Beck, Indriði Sig-
urðsson, Aron Bjarki Jósepsson,
Gunnar Þór Gunnarsson. Miðja: Denis
Fazlagic, Finnur Orri Margeirsson,
Pálmi Rafn Pálmason, Óskar Örn
Hauksson. Sókn: Jeppe Hansen (Guð-
mundur Andri Tryggvason 67), Morten
B. Andersen.
Breiðablik: (4-4-2) Mark: Gunnleifur
Gunnleifsson. Vörn: Alfons Sampsted,
Damir Muminovic, Elfar Freyr Helga-
son, Davíð K. Ólafsson. Miðja: Arnþór
Ari Atlason, Oliver Sigurjónsson, Andri
Rafn Yeoman, Daniel Bamberg (Hösk-
uldur Gunnlaugsson 85). Sókn: Árni
Vilhjálmsson (Jonathan Glenn 78),
Gísli Eyjólfsson (Ellert Hreinsson 68).
Dómari: Erlendur Eiríksson – 8.
Áhorfendur: 862.
KR – Breiðablik 1:1
stig, jafnir Arsenal að stigum.
Jafnteflið fer seint í sögubæk-
urnar. Þessi lið, sem skipuðu tvö
efstu sæti úrvalsdeildarinnar á síð-
asta tímabili, eru ekki nema svipur
hjá sjón og þá sérstaklega lið Arsen-
al sem sárvantar framherja og varn-
armenn.
Misauðveldir sigrar stórliðanna
Hin „stóru liðin“ í Englandi áttu
þó betri helgi. Mourinho og félagar í
Manchester United fara feikivel af
stað á tímabilinu. Liðið vann 2:0 sig-
ur á Southampton síðasta föstudag
og komu bæði mörkin frá Ibrahimo-
vic sem er eins og uppalinn í ensku
úrvalsdeildinni.
Manchester City sótti Stoke City
heim í fyrsta leik laugardagsins og
vann sannfærandi 4:1 sigur. Sergio
Agüero og Nolito sáu um marka-
skorunina fyrir lærisveina Guardiola
með tvö mörk hvor. Agüero sýndi
enn á ný að hann er einn besti fram-
herji sem hefur spilað í úrvalsdeild-
inni þegar hann jafnaði Didier Drogba
að mörkum, í 102 færri leikjum en það
tók stjörnu Chelsea.
Antonio Conte brosir varla eftir 2:1
útisigur sinna manna í Chelsea á Wat-
ford, en hann getur engu að síður ver-
ið sáttur. Gestirnir lentu marki undir
á 55. mínútu en tókst að grafa sig upp
úr holunni með mörkum frá Michy
Batshuayi og Diego Costa á 80. og 87.
mínútu. Grannar Chelsea, Tottenham
Hotspur, unnu 1:0 sigur á öðrum
grönnum, Crystal Palace, með marki
Wanyama á 83. mínútu.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Swansea eru í miðri deild með þrjú
stig eftir tvær umferðir. Swansea beið
lægri hlut fyrir Hull á heimavelli á
laugardaginn, 2:0. Öllum að óvörum
er Hull meðal þeirra fjögurra liða sem
eru með fullt hús stiga í úrvalsdeild-
inni. johannes@mbl.isAFP
0:1 Daniel Bamberg 39. Skor-aði af öryggi úr vítaspyrnu
og sendi Stefán Loga í rangt horn.
1:1 Morten Beck Andersen 79.Morten Beck sendi góða fyr-
irgjöf inn á teiginn og Andersen
sneiddi boltann í vinstra hornið með
höfðinu.
I Gul spjöld:Gísli (Breiðabliki) 12. (leik-
araskapur), Beck (KR) 43. (brot),
Arnþór (Breiðabliki) 45. (brot), Óskar
(KR) 45. (brot), Árni (Breiðabliki) 48.
(brot), Pálmi (KR) 63. (brot), Bam-
berg (Breiðabliki) 74. (brot), Indriði
(KR) 90. (brot).
MM
Morten Beck (KR)
M
Finnur Orri Margeirsson (KR)
Morten Beck Anderson (KR)
Gunnleifur Gunnleifsson (Breið.)
Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Skalli Blikar
sækja að marki
KR-inga í Frosta-
skjólinu í gær-
kvöldi þar sem
liðin fengu sitt
hvort stigið.
Frakkland
Nantes – Monaco...................................... 0:1
Kolbeini Sigþórssyni var skipt út af á 71.
mínútu.
Belgía
Lokeren – Genk ....................................... 0:3
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Lokeren en Sverrir Ingi Ingason fyrri hálf-
leikinn.
Sviss
Basel – Lugano ........................................ 4:1
Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Basel.
Grasshoppers – Sion ............................... 2:1
Rúnar Már Sigurjónsson var á bekknum
hjá Grasshoppers.
Austurríki
Wolfsberger – Rapid Vín ....................... 1:1
Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá
Rapid á 61. mínútu.
Rússland
Spartak Moskva – Krasnodar ............... 2:0
Ragnar Sigurðsson var ekki í leikmanna-
hópi Krasnodar.
Danmörk
AGF – Bröndby ....................................... 0:7
Theódór Elmar Bjarnason var á bekkn-
um hjá AGF.
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
Staða efst liða:
Bröndby 6 4 2 0 22:5 14
Köbenhavn 6 4 2 0 16:3 14
AaB 6 3 3 0 9:6 12
Randers 6 3 2 1 7:5 11
Midtjylland 6 2 3 1 15:10 9
Lyngby 6 2 2 2 8:7 8
B-deild:
Helsingör – Roskilde............................... 2:0
Frederick Schram ver mark Roskilde.
Svíþjóð
Hammarby – IFK Gautaborg................. 2:0
Birkir Már Sævarsson og Ögmundur
Kristinsson léku allan leikinn með Hamm-
arby en Arnór Smárason var ekki í leik-
mannahópnum.
Hjálmar Jónsson var á bekknum hjá
IFK en Elías Már Ómarsson lék í 69 mín-
útur.
Örebro – AIK............................................ 0:2
Hjörtur Logi Valgarðsson var ekki í leik-
mannahópi Örebro vegna meiðsla.
Haukur Heiðar Hauksson var á bekkn-
um hjá AIK
Staða efstu liða:
Norrköping 19 12 5 2 40:19 41
Malmö 18 12 3 3 36:14 39
AIK 19 10 6 3 30:20 36
Gautaborg 19 9 5 5 34:27 32
Örebro 19 9 3 7 30:28 30
Häcken 19 8 3 8 35:27 27
Östersund 19 7 6 6 23:29 27
Elfsborg 18 7 5 6 33:25 26
Noregur
Stabæk – Aalesund ................................. 3:0
Aron Elís Þrándarson lék í 50 mínútur
fyrir Aalesund, Daníel Leó Grétarsson og
Adam Örn Arnarson voru á bekknum.
Lilleström – Haugesund ......................... 1:1
Haraldur Björnsson var varamarkvörð-
ur Lilleström. Rúnar Kristinsson þjálfar
liðið og Sigurður Ragnar Eyjólfsson er að-
stoðarþjálfari.
Molde – Odd.............................................. 4:2
Björn Bergmann Sigurðarson lék allan
leikinn og gerði tvö fyrstu mörk Molde.
Brann – Rosenborg ................................. 1:1
Hólmar Örn Eyjólfsson og Guðmundur
Þórarinsson léku allan leikinn fyrir Rosen-
borg en Matthías Vilhjálmsson var tekinn
af velli í hálfleik.
Sarpsborg – Strömgodset ...................... 1:0
Kristinn Jónsson lék allan leikinn með
Sarpsborg.
Start – Sogndal ........................................ 1:1
Guðmundur Kristjánsson var á bekkn-
um hjá Start.
Tromsö – Viking...................................... 2:1
Aron Sigurðarson kom inn á hjá Tromsö
á 75. mínútu
Björn Daníel Sverrisson fór af velli hjá
Viking á 62. mínútu.
Staða efstu liða:
Rosenborg 21 15 5 1 47:15 50
Odd 21 11 5 5 30:22 38
Brann 21 11 4 6 29:18 37
Haugesund 21 10 5 6 35:31 35
Sarpsborg 21 10 5 6 23:22 35
Strømsgodset 21 10 4 7 33:26 34
Molde 21 10 4 7 39:35 34
Viking 21 9 4 8 23:26 31
B-deild:
Sandnes Ulf – Bryne ................................1:1
Steinþór Freyr Þorsteinsson lék fyrstu
11 mínúturnar með Sandnes Ulf.
A-deild kvenna:
Röa – Stabæk ........................................... 2:1
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Stabæk.
Vålerenga – Klepp .................................. 3:3
Jón Páll Pálmason þjálfar lið Klepp.
Staðan:
Lilleström 41, Avaldsnes 34, Stabæk 29,
Kolbotn 29, Röa 26, Sandviken 19, Klepp
19, Ama-Björnar 19, Trondsheims-Örn 16,
Vålerenga 16, Medkila 5, Urædd 1.
KNATTSPYRNA