Morgunblaðið - 22.08.2016, Síða 8
8 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2016
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
FYLKIR-ÍA
Á FYLKISVELLI 22. ÁGÚST KL. 18:00
Fyrstu 50 áskrifendurnir fá tvo miða á leikinn.
Mættu á völlinn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu við innganginn til að fá miða.
MOGGAKLÚBBURINN
BÝÐUR ÁVÖLLINN!
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
Þegar þetta birtist er ég á leið-
inni löngu heim frá Ríó eftir 18
daga dvöl á fyrstu Ólympíuleikum
sögunnar í Suður-Ameríku. Þrátt
fyrir háværar áhyggjuraddir í að-
draganda leikanna gengu þeir að
langmestu leyti vel fyrir sig og að
mínu mati geta Brasilíumenn ver-
ið stoltir af því hvernig til tókst
við þessa mestu íþróttaveislu
heimsins.
Það er gömul saga og ný að á Ól-
ympíuleikum gegna sjálfboðaliðar
ómetanlegu hlutverki við að að-
stoða áhorfendur, fjölmiðla,
íþróttafólk og aðra til að allt geti
gengið sem best upp. Í Ríó voru
þeir svo sannarlega boðnir og
búnir til að aðstoða mann, með
bros á vör. Stundum kom það fyr-
ir að mann vantaði einhvern sem
talaði betri ensku, en alltaf var
leyst úr málum.
Ég gæti helst kvartað yfir því litla
úrvali af mat sem fjölmiðlamenn
gátu keypt sér á ólympíusvæðinu
á milli tarna. En fólkið sem af-
greiddi mann með matinn var
fullt jákvæðni sem vó ágætlega á
móti svekktum maga. Eins vant-
aði skrifborð á herbergið mitt á
fjölmiðlahóteli, þar brotnaði
spegill og heita vatnið rann ekki í
tvo daga, en velvildin og brosin
sem þar mættu manni hvern ein-
asta morgun og kvöld kættu
mann í staðinn.
Þess vegna var ég svo fáránlega
ánægður með það þegar Neymar,
sem er hreinlega dýrkaður í Bras-
ilíu, tryggði gestgjöfunum gull-
verðlaun í fótbolta karla. Þetta er
fótboltaóð þjóð og það var aug-
ljóst hve mikil hamingjuinnspýt-
ing fólst í því fyrir hana að vinna í
fyrsta sinn þessa grein leikanna.
Takk fyrir mig, Ríó.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
15. UMFERÐ
Benedikt Grétarsson
bgretarsson@mbl.is
Kristinn Freyr Sigurðsson hefur
átt mikilli velgengni að fagna und-
anfarnar vikur. Kristinn hefur
leikið frábærlega með Val í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu og fyrir
rúmri viku varð Kristinn Freyr
bikarmeistari annað árið í röð þeg-
ar Valur vann ÍBV í úrslitaleik á
Laugardalsvelli. Kristinn fór ham-
förum í 7:0 bursti Vals gegn Vík-
ingi í lokaleik 15. umferðar Pepsi-
deildarinnar og er sá leikmaður
sem Morgunblaðið fjallar sér-
staklega um að þessu sinni.
Tæknilega góður
og árásargjarn
„Kiddi er náttúrlega bara mjög
öflugur leikmaður. Hann er með
góða tækni og mjög góður í
þröngu svæði. Jafnvægið með bolt-
ann er mjög mikið hjá honum. Það
er hægt að setja boltann í fæturna
á honum og hann leysir vel úr
þröngum stöðum þar sem það er
mjög erfitt að ná boltanum af
Kidda,“ segir Sigurbjörn Hreið-
arsson, aðstoðarþjálfari Vals, í
samtali við Morgunblaðið.
Sigurbjörn segir Kristin vera á
réttri leið með sinn leikstíl og sína
þróun sem knattspyrnumaður.
„Hann hefur bætt sig mjög mik-
ið í því að skila af sér góðri loka-
afurð. Hann er orðinn hættulegri,
hann skorar meira og hann leggur
meira upp af mörkum. Það má
kannski segja að hann sé orðinn
beinskeyttari inni á vellinum.
Spilamennskan er orðin töluvert
árásargjarnari en hún var og það
gerir Kidda að miklu betri leik-
manni.“
Miðjumaðurinn marksækni hef-
ur farið mikinn seinni hluta sum-
ars. Kristinn Freyr hefur m.a.
skorað í fjórum leikjum í röð í
deildinni og þá skoraði hann einnig
í seiglusigri Vals gegn Selfossi í
undanúrslitum Borgunarbikarsins.
Sigurbjörn segir Kristin hafa sett
sér markmið á miðju sumri.
„Hann var náttúrlega að
ströggla með nárann framan af
móti og það var greinilega eitthvað
að trufla hann. Hann sagði sjálfur
að hann hefði ákveðið að láta
seinni hluta mótsins verða betri en
þann fyrri og það hefur gengið eft-
ir. Kiddi er líka mikill keppn-
ismaður, hann má alveg eiga það.
Hann þolir illa að tapa, leggur sig
allan fram og hefur mikið keppn-
isskap. Þegar hlutirnir ganga
kannski ekki alveg upp, þá eru það
svona týpur sem stíga fram og
taka hlutina í sínar eigin hendur.“
Á erindi í atvinnumennskuna
Útrás íslenskra knattspyrnu-
manna í atvinnumennsku hefur
verið töluverð undanfarin ár, ekki
síst til Norðurlandanna. Sigur-
björn segir Valsmanninn hafa það
sem til þarf til að komast í sterk-
ari deild en þá íslensku.
„Já, það er klárt mál að hann
getur farið í atvinnumennsku. Ef
rétta tækifærið kemur upp hjá
Kidda, þá gæti hann hæglega
reynt fyrir sér erlendis. Það er
engin spurning.“ Enginn knatt-
spyrnumaður er fullkominn en sig-
urbjörn er samt ekkert með lang-
an lista yfir hluti sem Kristinn
Freyr mætti bæta að hans mati.
„Það er alveg ljóst að hann getur
ennþá bætt sig. Þegar kemur að
því að losa boltann á réttu augna-
bliki, þá getur hann bætt sig enn
meira og þetta segi ég þó að hann
sé orðinn þrælgóður í því nú þeg-
ar. Það sem hann hefur líka gert,
er að leyfa sér að brosa aðeins og
leyfa bara leiknum að koma til sín.
Öll getan er til staðar og hann er
ekki að þvinga hlutina eins og
hann gerði kannski örlítið áður.
Leikurinn er bara flæðandi og
flottur hjá honum núna“.
Það eru til ruglaðari týpur
Sigurbjörn setur Kristin ekki í
sprelligosa-flokkinn, þegar hann er
spurður um hvaða mann hann hafi
að geyma utan vallar og innan
hópsins.
„Kiddi er mjög fínn. Hann er
með húmorinn í lagi og er bara
léttur og skemmtilegur gæi. Hann
er ekki alveg sama týpan innan
vallar sem utan. Þetta er bara auð-
mjúkur og fínn strákur sem vill
virkilega ná langt í fótbolta og
leggur mikinn metnað í það.
Ég get nú ekki sagt að hann sé
einn af þeim sem eru sífellt að
trana sér fram. Hann kemur samt
með sína punkta á sínum augna-
blikum og er gríðarlega mikil-
vægur hlekkur í okkar hópi varð-
andi félagslega þáttinn. Það eru
alveg til ruglaðari týpur í þessum
bransa, það get ég sagt þér. Það
lyndir öllum við Kidda,“ sagði Sig-
urbjörn að lokum.
Auðmjúkur en þolir illa að tapa
Morgunblaðið tekur Valsarann Kristin Frey út fyrir sviga að lokinni 15. umferð Átti stóran þátt í
7:0 sigri Vals á Víkingi Sigurbjörn Hreiðarsson segir Kristin vera efni í atvinnumann
Leikmenn:
Ármann Smári Björnsson, ÍA 14
Dion Acoff, Þrótti 13
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 12
Elfar Freyr Helgason, Breiðabliki 12
Damir Muminovic, Breiðabliki 12
Dofri Snorrason, Víkingi R. 12
Davíð Þór Viðarsson, FH 11
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 11
Indriði Sigurðsson, KR 10
Finnur Orri Margeirsson, KR 10
Kristinn Freyr Sigurðsson, Val 10
HeiðarÆgisson, Stjörnunni 9
Ívar Örn Jónsson,Víkingi R. 9
Tobias Salquist, Fjölni 9
Haukur Páll Sigurðsson, Val 9
Tonci Radovnikovic, Fylki 9
Sigurður Egill Lárusson, Val 9
Albert Brynjar Ingason, Fylki 9
Bergsveinn Ólafsson, FH 8
Róbert Örn Óskarsson, Víkingi R. 8
Igor Taskovic, Víkingi R. 8
Garðar B. Gunnlaugsson, ÍA 12
Hrvoje Tokic, Víkingi Ó. 8
Kristinn Freyr Sigurðsson, Val 8
Óttar Magnús Karlsson, Víkingi R. 7
Martin Lund Pedersen, Fjölni 7
Þórir Guðjónsson, Fjölni 6
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 6
Albert Brynjar Ingason, Fylki 6
15. umferð í Pepsi-deild karla 2016
Einkunnagjöfin 2016
Þessir erumeð flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefið er eitt M fyrir góðan
leik, tvöM fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Markahæstir
FH 75, Breiðablik 75, Stjarnan 72, Fjölnir 68,
Fylkir 66,Valur 65,Víkingur R. 62,KR 59, ÍA
58, ÍBV54, Þróttur R. 50,Víkingur Ó. 45.
Lið:
Garðar B. Gunnlaugsson, ÍA 8
Gary Martin, Víkingi R. 7
Martin Lund Pedersen, Fjölni 7
Gunnar Nielsen
FH
Kristinn Ingi
Halldórsson
Val
Tonci Radovnikovic
Fylki
Albert Brynjar
Ingason
Fylki
Alfons Samsted
Breiðabliki
Arnór Snær
Guðmundsson
ÍA
Finnur Orri
Margeirsson
KR
Sigurður Egill
Lárusson
Val
Þórir
Guðjónsson
Fjölni
Jonathan
Hendrickx
FH
4-3-3
Lið umferðarinnar Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Kristinn Freyr
Sigurðsson
Val
5 4
3
3
2
2
2
2