Fréttablaðið - 11.11.2016, Side 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 6 7 . t ö l u b l a ð 1 6 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 1 1 . n ó v e M b e r 2 0 1 6
Fréttablaðið í dag
skoðun Bergur Ebbi skrifar um
Ameríku.13
sport Króatar munu ekki labba
yfir Íslendinga í Zagreb. 18
tÍMaMót Þórey Mjallhvít H.
Ómarsdóttir hefur gert sína
fyrstu teiknimyndasögubók.
Hún nefnist Ormhildarsaga 40
FrÍtt
heilbrigðisMál Sterkar vísbend-
ingar eru um að vannæring veikra
aldraðra sé algengt vandamál hér á
landi. Á þetta bæði við um stöðuna
inni á heimilum gamla fólksins og
sjúkrastofnunum. Í rannsókn sem
gerð var árin 2015 og 2016 kom í ljós
að tveir af hverjum þremur inniliggj-
andi öldruðum á Landakotsspítala
voru vannærðir eða sýndu þess sterk
merki að svo væri.
„Við getum óhikað sagt að meiri-
hluti okkar sjúklinga sé á þessum
stað,“ segir Ólöf Guðný Geirsdóttir,
dósent í næringarfræði við Háskóla
Íslands, og bætir við að kerfið hér
á landi geri í raun ráð fyrir því að
gamalt fólk fái allan nauðsynlegan
stuðning frá aðstandendum sínum.
„Það eru alvarlegar brotalamir innan
kerfisins,“ segir Ólöf.
Engar leiðbeiningar eru til á
Íslandi um mataræði eða næringu
fyrir þennan hóp. Einnig eru fá
úrræði fyrir þá sem vilja grípa inn í
lélegt næringarástand og hjálpa ein-
staklingnum til að fyrirbyggja van-
næringu eða til að byggja sig upp, en
til dæmis er enginn næringarfræð-
ingur við störf í heimaþjónustu eða
á heilsugæslunni. Þá er heimsendur
matur allur miðaður við þarfir gam-
als fólks sem er heilbrigt – en slíkur
matur getur einfaldlega hentað þeim
sem er veikur illa eða alls ekki.
„Þegar matur er sendur heim til
fólksins er aðeins um eina máltíð eða
hádegismat að ræða, og það er ekki
nema 30-40 prósent þeirrar orku
sem aldraður einstaklingur þarf yfir
daginn. Annars staðar í heiminum
myndi þetta einfaldlega flokkast
undir svelti,“ segir Ólöf.
Viðmið Sjúkratrygginga Íslands
(SÍ) miðast ekki við alþjóðlega viður-
kennda staðla um líkamsþyngd eða
þyngdartap aldraðra. Þeir eiga því
ekki rétt á niðurgreiðslu á næringar-
drykkjum, sem myndu henta afar
vel til að koma til móts við vanda
margra. Skilyrði Sjúkratrygginga
Íslands eru reyndar þannig í dag að
þeir sem fullnægja skilyrðum um
aðstoð eru orðnir það vannærðir að
erfitt er að hjálpa þeim. „Þetta þýðir
í raun að litlar eða engar líkur eru á
því að hægt sé að næra viðkomandi
einstakling upp, svo að hann nái sér,“
segir Ólöf. – shá / sjá síðu 8
Gamalt og veikt fólk sveltur
Sterkar vísbendingar eru um að algengt sé að gamalt veikt fólk sé alvarlega vannært. Vannæring brýtur fólk
niður og dregur til dauða fyrr en ella. Viðmið SÍ leyfa ekki niðurgreiðslu á mat fyrr en það er of seint.
Þetta er spurning
um að sýna þessu
fólki lágmarksvirðingu
Ólöf Guðný Geirs-
dóttir, dósent í
næringarfræði við
Háskóla Íslands.
Sjómenn héldu til hafnar í gær þótt enn væri haldið í vonina um að samningar tækjust í kjaradeilu þeirra og SFS. Samningafundur stóð fram á kvöld en fulltrúar sjómanna slitu viðræðunum
á tíunda tímanum. Verkfall sjómanna hófst því klukkan 23 í gærkvöld. Þetta er í fyrsta sinn í fimmtán ár sem sjómenn leggja niður störf. Fréttablaðið/Gísli
lÍFið Emmsjé Gauti er í aðal-
hlutverki í tölvuleik sem hann
hefur sent frá sér til kynningar
á nýjustu plötunni
sinni. Í leiknum er
miðbær Reykja-
víkur settur í átta
bita tölvugrafík.
50
plús 2 sérblöð l Fólk
l rúM- og sængurFöt
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
1
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
4
1
-6
0
8
4
1
B
4
1
-5
F
4
8
1
B
4
1
-5
E
0
C
1
B
4
1
-5
C
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K