Fréttablaðið - 11.11.2016, Page 19

Fréttablaðið - 11.11.2016, Page 19
fólk kynningarblað 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r MYND/GVA Draumurinn alveg að rætast Ljósmæðurnar Hrafnhildur Halldórsdóttir og Arney Þórarinsdóttir segja starfið vera lífsstíl, það sé bæði gefandi og krefjandi. Þær eru drifnar áfram af ástríðu fyrir ljósmæðrastarfinu og fengu fyrir nokkrum dögum starfsleyfi til að reka fæðingarstofu en þær hafa unnið lengi að því að geta boðið verðandi foreldrum upp á fleiri valkosti í barneignarþjónustu hér á landi. Hrafnhildur og Arney eru auk þess að vera samstarfskonur vinkonur sem eiga furðumargt sameiginlegt. Þær Arney Þórarinsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir, ljós­ mæður hjá Björkinni, taka vel á móti blaðamanni á notalegri fæð­ ingarstofu sinni í Síðumúla. Þær hyggjast taka á móti fyrsta barn­ inu þar í janúar þegar áætlað er að fæðingarstofan verði opnuð en fyrir viku fengu þær starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavík­ ur til að reka stofuna. „Við erum að vinna í að senda inn tilkynningu til landlæknis og skilum henni inn á næstu dögum. Þegar hafinn er rekstur í heilbrigðisþjónustu þarf að skila inn tilkynningu um það og uppfylla lágmarkskröfur, við erum búnar að fara vel yfir þær kröfur og því ætti það að ganga vel fyrir sig,“ útskýrir Arney. Draumur flestra ljósmæðra Þær Hrafnhildur og Arney hafa undanfarin sex ár sinnt heima­ fæðingum og samfelldri þjónustu við fjölskyldur þar sem þær fylgja þeim í gegnum meðgöngu, fæð­ ingu og sængurlegu. Þar sem fæð­ ingarstöðum á landinu hefur verið að fækka undanfarin ár, en nú síð­ ast voru Hreiðrið og fæðingar­ gangur á Landspítala sameinuð í eina stóra fæðingardeild fyrir allar konur, fannst þeim Hrafn­ hildi og Arneyju vanta fleiri val­ kosti. „Núna er bara heimafæðing eða fæðingarvaktin á Landspít­ ala í boði. Við fundum fyrir því að það vantaði þetta millistig,“ segir Hrafnhildur. Arney bætir við að þær hafi sinnt foreldrum sem búa utan höfuðborgarsvæðisins og hafa leigt íbúðir eða verið heima hjá ættingjum en svo hafi sumir þeirra ekki haft neina aðstöðu þannig að þær hafi ekki getað sinnt þeim. „Það ýtti okkur svo­ lítið út í að opna þessa fæðingar­ stofu en okkur og mörgum öðrum þótti hana vanta. Við styðjumst við breskar leiðbeiningar í barn­ eignaþjónustu sem kallast NICE og eru unnar af fæðingarlæknum og ljósmæðrum. Þar er mælt með að hraustar konur í eðlilegri með­ göngu, og sérstaklega þær sem hafa fætt áður, fæði utan spítala, annaðhvort á fæðingarheimili eða á heimili sínu.“ „Það er draumur flestra ljós­ mæðra að það sé til fæðingar­ heimili þar sem hægt er að veita persónulega þjónustu. Það hefur verið grínast með það að hvert ein­ asta ljósmæðraholl sem útskrifast ætli að opna fæðingarheimili og það hefur nokkrum sinnum verið farið af stað með það en við erum þær sem hafa komist lengst í því,“ segir Hrafnhildur. allt er fertugum fært Arney og Hrafnhildur hafa nokkr­ um sinnum áður farið af stað með hugmyndina um fæðingarheimili en hún hefur ekki náð eins langt og nú. Þær segja að eitt af því sem ýtti við þeim að fara alla leið núna var að þær urðu báðar fertug­ ar í fyrra. „Í staðinn fyrir að Lilja Björk Hauksdóttir liljabjork@365.is Lífsstíll 1 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :3 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 4 1 -9 1 E 4 1 B 4 1 -9 0 A 8 1 B 4 1 -8 F 6 C 1 B 4 1 -8 E 3 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.