Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.11.2016, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 11.11.2016, Qupperneq 36
Vatnsdrykkja að kvöldi verður til þess að við neyðumst til að fara fram úr og á klósettið snemma á morgnana. Kveikja ætti ljósið inni á baði og harðneita sér um að skríða aftur upp í. Ekki má þó drekka svo mikið vatn að við vöknum um miðja nótt. Það gæti tekið nokkur skipti að finn út rétta vatnsmagnið. Morgunergelsi mætti rekja til þess að við erum svöng þar sem margir klukkutímar hafa liðið frá kvöldmat. Létt nasl á kvöldin gæti hjálpað. Velja þarf auðmelta fæðu eins og kotasælu, jógúrt eða hnetur þar sem þungmelt fæða gæti haldið fyrir okkur vöku. Margir hreinlega hata frekjulegt gargið í vekjaraklukkunni og nei­ kvæðar hugsanir eru ekki það sem þarf eldsnemma morguns. Reyna mætti að stilla vekjarann á uppá­ haldstónlistina svo við vöknum í betra skapi. Hafið vekjaraklukkuna langt frá rúminu svo að þið neyðist til að fara fram úr til að slökkva. En þá er líka harðbannað að skríða aftur upp í. Innbyrðið koffein hið fyrsta eftir að undan sænginni er komið, kaffi eða svart te. Líkamsrækt að morgni fær end­ orfínið af stað og líkaminn fyllist orku. Drífið ykkur því í ræktina eða út að hlaupa eða gerið léttar leik­ fimiæfingar á náttfötunum á svefn­ herbergisgólfinu. Fáið ykkur eitthvað smávegis að borða um leið og þið komist á lappir og helst staðgóðan morgunverð. Mælið ykkur mót við einhvern snemma. Það eykur líkurnar á að við komumst fram úr ef einhver á von á okkur. Komið upp rútínu bæði kvölds og morgna. Farið að sofa á svipuð­ um tíma öll kvöld og á fætur á sama tíma. Þannig venjum við líkamann á að sofna á réttum tíma og líkurnar aukast á því að okkur verði eðlilegt að vakna á sama tíma alla morgna. Ráð til að komast fram úr rúminu Flestir kannast við að festast í viðj­ um vanans enda oft átak að gera breytingar og ögra sjálfum sér. Það getur hins vegar oft leitt til góðs og um að gera að prófa. Hér eru tíu litlar áskoranir sem brjóta upp dag­ legt líf og gætu mögulega breytt því. 1. Slepptu því að fara á netið eða skoða samfélagsmiðla í heilan dag. 2. Farðu í 15 mínútna hugleiðslu. 3. Slepptu því að kvarta í heilan dag. 4. Æfðu þig í að sýna þakklæti. 5. Taktu fyrsta skrefið í átt að því að læra eitthvað nýtt. Skráðu þig á námskeið til dæmis. 6. Ekki kaupa neitt í sólarhring. 7. Slökktu á sjónvarpinu og lestu bók. 8. Gerðu lista yfir þá fimm hluti sem þú metur mest í lífinu. 9. Settu þér markmið fyrir árið. 10. Slepptu tökum af óraunhæfum markmiðum. Tíu litlar áskoranir ÞARF AÐ ENDURNÝJA LETRIÐ Á STEININUM? GRANÍTHÖLLIN TEKUR AÐ SÉR AÐ HREINSA OG ENDURMÁLA LETUR Á LEGSTEINUM. EINNIG TÖKUM VIÐ AÐ OKKUR AÐ RÉTTA AF LEGSTEINA SEM ERU FARNIR AÐ HALLA. FYRIR EFTIR MIKIÐ ÚRVAL FALLEGRA LEGSTEINA Á MJÖG GÓÐU VERÐI GÆLUDÝRASTEINAR BÆJARHRAUNI 26, HAFNARFIRÐI SÍMI 555 3888 GRANITHOLLIN.IS ÖLL OKKAR VERÐ MIÐAST VIÐ FULLBÚINN STEIN MEÐ UPPSETNINGU AKSTURSGJALD BÆTIST VIÐ UTAN HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS FYLGIHLUTIR FYLGJA EKKI MEÐ NR. 118 PARADISO VERÐ KR. 372.750 NR. 2042 VERÐ KR. 245.750 NR. 2046 VERÐ KR. 318.750 NR. 2021 VERÐ KR. 361.750 NR. 116-5 VERÐ KR. 275.850 NR. GS-1002 VERÐ KR. 655.850 NR. 113 PARADISO VERÐ KR. 352.750 M eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g up ps el da r v ör ur . NR. 104 SHANXI BLACK VERÐ KR. 392.750 NR. 2006 AURORA VERÐ KR. 312.750 VERÐ KR. 79.900,- INNIFALIN ÁLETRUN. STÆRÐ H. 27 CM. BR. 30 CM. Hreyfing og hollar matarvenjur eru bestu leið­ irnar til missa nokkur kíló og viðhalda heilsu­ samlegri þyngd. Hins vegar eru til nokkrar óvenjulegar leiðir sem geta aukið hitaeininga­ brennslu líkamans og hér eru nokkrar þeirra. 1. Kuldi getur aukið efnaskipti líkamans. Þá er þó ekki endilega verið að tala um frost og frera, heldur getur það að lækka hitann heima við um tvær gráður eða svo haft einhver áhrif. 2. Að drekka kalt vatn getur tímabundið aukið efnaskipti líkamans, hafa nokkrar rannsóknir sýnt fram á. Í einni rannsókninni var sýnt fram á 40% aukningu í efnaskiptum sem orsakaðist af því að líkaminn vann að því að hita sig eftir kaldan drykk. 3. Tyggjó virðist bæði gefa fólki tilfinningu fyrir seddu og veldur því að fólk er síður líklegt til að fá sér millibita. Einnig eru vísbendingar um að það að tyggja tyggjó auki efnaskipti líkamans. 4. Blóðgjöf bjargar mannslífum en eykur einnig tímabundið brennslu á hitaeiningum. 5. Eirðarleysi er kannski ekki æskilegt en rann­ sóknir hafa sýnt að þeir sem eru stöðugt að hrissta fætur eða álíka brenna fleiri hitaeining­ um en þeir sem sitja kyrrir. 6. Hláturinn lengir lífið og hann virðist sam­ kvæmt ýmsum könnunum einnig góður til að brenna hitaeiningum þó í litlu magni sé. Heimild: authoritynutrition.com Óvenjulegar leiðir til að brenna hitaeiningum 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r10 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 1 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :3 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 4 1 -A 5 A 4 1 B 4 1 -A 4 6 8 1 B 4 1 -A 3 2 C 1 B 4 1 -A 1 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.