Fréttablaðið - 11.11.2016, Síða 50
Upphafsskjár leiksins gæti kveikt nostalgíu hjá einhverjum af gamla skólanum.
Stefán þór
Hjartarson
stefanthor@frettabladid.is
Emmsjé Gauti hefur í undirbúningi
fyrir nýjustu plötuna sína 17. nóv-
ember, sem kemur út eftir örfáa
daga, látið búa til eftirmynd sína úr
plasti, en hann lét föndra handa sér
dótakall í stíl He-Man-fígúranna og
nú síðast gaf hann út tölvuleik þar
sem hann sjálfur fer með aðalhlut-
verkið.
Á vefsíðunni emmsje.is má finna
tölvuleikinn og er þar bregður leik-
maðurinn sér í hlutverk Gauta og
markmiðið er að aðstoða hann við
að komast á skemmtistaðinn Prikið
þar sem hann á að halda tónleika. En
hans bíða ýmsar hindranir á leiðinni
– til að mynda er drukkinn lýðurinn
sífellt að stoppa Gauta af og draga
hann á trúnó, en það er mjög mikil-
vægt annaðhvort að stökkva yfir
þessa erfiðu djammara eða hrein-
lega stökkva ofan á þá og losna þar
með við þá út úr myndinni. Gauti
villist meðal annars inn á B5 en
þar þarf hann að passa sig á flösku-
borðum og laganemum og lendir í
ýmsum öðrum hremmingum.
Leikurinn er í stíl tölvuleikja frá
seinni hluta níunda áratugarins
og fyrri hluta þess tíunda og hefur
tónlist eftir Gauta verið sett í viðeig-
andi form og spilast undir meðan á
leik stendur.
Hvernig kom til að þú ákvaðst að
gera tölvuleik?
„Í raun og veru er þetta snjóbolti
sem hefur stækkað og stækkað síð-
ustu vikurnar. Í september tek ég þá
ákvörðun að gefa út nýja plötu hjá
útgáfufyrirtæki Priksins sem heitir
Sticky plötuútgáfa. Geoffrey Sky-
walker kom með þá hugmynd að fá
„Viktors Vintage“ sem sérhæfir sig
í að gera retró-dótakalla til að gera
eitt stykki Emmsjé Gautafígúru.
Eftir það var tekin sú ákvörðun að
vinna allt myndefni í þeim stíl sem
kallinn er í.
Það er svo eitt kvöldið sem ég er
að skoða internetið að ég rekst á
tölvuleik eftir Skúla Óskarsson sem
var hannaður í Gameboy-þema.
Eins og erfitt
kvöld úti á lífinu
Emmsjé Gauti er í aðalhlutverki í tölvuleik sem hann hefur sent
frá sér til kynningar á nýjustu plötunni sinni. Í leiknum er miðbær
Reykjavíkur settur í átta bita tölvugrafík og að sögn Gauta er um
að ræða nokkuð nákvæma eftirlíkingu af týpísku djammi.
Gauti lendir mikið í því að fólk rappar í eyrað á honum og segir honum í trúnaði eitt og annað sem hann vill ekki vita. Gauti með He-Man-kallinn sem hann
lét útbúa fyrir útgáfu plötu sinnar sem
von er á eftir örfáa daga.
Fréttablaðið/Hanna
Otas EiustquE
EaREpE dOluptiOs
Eatissit pRaE EvEndis alis
sOllORR untEmpEd EvEni
apERundunt, ut
Ég hafði samband við hann og við
skutum á milli okkar hugmyndum
sem endaði með því að við ákváð-
um að gera tölvuleik saman. Þegar
leið á ferlið ákváðum við að fara alla
leið og fengum með okkur í lið fólk
sem sá um „cutscenes“ eða milligraf-
ík og tónlist fyrir leikinn en milli-
grafíkin var í höndum Örnu Beth og
Ingi Már Úlfarsson, sem er partur
af pródúsertíminu Reddlights, sá
um hljóðvinnsluna. Útkoman er
frábær og það er búið að vera mjög
skemmtilegt að vinna með þessum
yndislega hópi.“
Margir hafa orð á því að leikurinn
sé alveg fáránlega erfiður, er það
viljandi gert?
„Þetta er í raun og veru bara í stíl
við restina af eitís-tölvuleikjunum.
Þeir litu oft út fyrir að vera auð-
veldir við fyrstu sýn en voru svo
ótrúlega krefjandi. Donkey Kong er
mjög gott dæmi um það og þess má
geta að það er uppáhalds arcade-
leikurinn minn og það er hægt að
spila hann á Fredda.“
Er atburðarásin í leiknum bara
venjulegt kvöld úti á lífinu fyrir
þig?
„Það má alveg segja það. Ég fer
ekki út á skemmtanalífið án þess
að einhver vilji fara á trúnó við mig
eða rappa í eyrað á mér. Svo held
ég að það séu margir sem tengja
við það að villast inn á B5 og festast
á troðfullu dansgólfinu. Það getur
verið fínt að detta inn á B5 en það
getur líka verið algjört hell. Mér
líður langbest á Prikinu þegar ég
fer út að skemmta mér. Hanga hjá
DJ-borðinu á neðri hæðinni og
horfa á dýragarðinn meðan ljósin
sveiflast í takt við tónlistina,“ segir
Gauti að lokum.
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r30 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Lífið
1
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
4
1
-9
B
C
4
1
B
4
1
-9
A
8
8
1
B
4
1
-9
9
4
C
1
B
4
1
-9
8
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K