Fréttablaðið - 11.11.2016, Síða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„Verandi er snyrtivörulína stofnuð
út frá Vakandi, en það eru samtök
sem berjast fyrir vitundarvakn
ingu um sóun og þá helst matarsó
un. Hugsjónin á bak við Verandi er
að endurnýta hráefni sem myndi
annars vera hent,“ segir Rakel
Garðarsdóttir, spurð út í nýja
snyrtivörulínu sem hún og Elva
Björk Bark ar dótt ur, lög fræðing ur
og ein af stofn endum Litlu gulu
hæn unn ar, fyr ir tæki sem fram
leiðir vel ferðar kjúk ling, eru að
koma með á markaðinn.
Um er að ræða lík ams
skrúbb sem búinn er til
úr kaffi, sem tilvalið er
að endurnýja. Oftar en
ekki er kaffi korgn um
hent beint í ruslið
þar sem hann end ar
í land fyll ingu, sem
er að öllu leyti mjög
óum hverf i s vænt.
„Fyrsta varan í
snyrtivörulínunni
Verandi er kaffi
skrúbbur, þar sem
við endurnýtum kaffi
korg sem við fáum á
kaffihúsum í Reykjavík,
þurrkum hann og blönd
um við olíur, þara og salt og
er útkoman algjört dúndur,“
segir Rakel og bætir við að saltið
sem þær fá sé íslenskt og ekki
hægt að nýta til matar þar sem
magnesíum innihald þess er of
hátt og því fullkomið í húðvörur.
Rakel og Elva eru báðar
mjög umhverfisvænar, og eru
umhverfis mál þeim ofarlega
í huga þegar kemur að þróun
snyrtivaranna.
„Það er afar mikilvægt fyrir
okkur að allt það sem er í vörun
um okkar geti skilað sér í gegnum
niðurfallið aftur út í sjó án þess að
skaða nokkuð, hvorki húð okkar
né sjóinn. Mikið af vörum sem
eru á markaði í dag er stútfullt af
eiturefnum sem eru skaðleg heilsu
okkar, húð og ekki síst umhverf
inu eins og sjónum,“ segir Rakel
og bendir á að marg ar nothæfar
snyrti vör ur megi finna í eld hús
inu á flest um heim il um og því alls
ekki þörf fyr ir all ar þær kemísku
vör ur sem eru á markaðnum í dag.
En hvernig datt ykkur í hug að
nota kaffikorg?
Þetta byrjaði allt þegar við
Rakel sátum á kaffihúsi og vorum
að velta því fyrir okkur hversu
mikið af kaffikorg er hent eftir að
vera nýttur í einn kaffibolla. Kaffi
sem er flutt yfir hálfan hnöttinn.
Eitt leiddi af öðru og við byrjuð
um að upphugsa leiðir til þess að
nýta korginn. Við fórum fljótlega
að gera tilraunir í eldhúsi Matís,
þar sem við þróuðum vöruna og
ekki leiða löngu þar til við fund
um hina fullkomnu blöndu fyrir
líkamsskrúbb sem endur
nærði húðina og gerði hana
silkimjúka og ljómandi,“
segir Elva Björk
„Kaffið er líka enn
stútfullt af næringar
efnum sem dekra við
húðina, en það þykir
einstaklega gott til
að vekja húðina og
vinna á kvillum eins
og appelsínuhúð,“
bætir Rakel við.
Sem stendur eru
fleiri vörur frá Verandi
á leið á markað bæði
hérlendis og erlendis
svo sem hárvörur eins og
sjampó og næring, hand
sápur, andlitsmaski og fleira.
„Við erum á fullu í þróun
á nýjum vörum, og með okkur
í teymi er grafíski hönnuður
inn Egill Þórðarson. Allar vör
urnar verða byggðar á sama lög
máli þar sem við notum hreint
íslenskt hráefni. Það er nefnilega
í höndum okkar einstaklinganna
að hjálpast að, að huga betur að
umhverfi okkar og jörðinni,“ segir
Rakel.
gudrunjona@frettabladid.is
Vinna á appelsínuhúð
með kaffikorgi
Vinkonurnar Elva Björk Barkardóttir og Rakel Garðarsdóttir,
eru konurnar á bak við Verandi, nýja snyrtivörulínu sem fram
leiðir vör ur úr nátt úru leg um hrá efn um. Fyrsta vara þeirra er
líkamsskrúbbur sem búinn er til úr kaffikorgi og olíum.
Elva Björk Barkardóttir og Rakel Garðarsdóttir framleiða snyrtivörulínu úr náttúrulegum hráefnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r34 L í F i ð ∙ F r É T T A b L A ð i ð
NÁNAR Á WWW.SENA.IS/LADDI70
EYÞÓR INGI
GUNNLAUGSSON
EYJÓLFUR
KRISTJÁNSSON
BJARTMAR
GUÐLAUGSSON
SIGRÍÐUR
BEINTEINSDÓTTIR
SIGRÍÐUR
THORLACIUS
LADDI 7 TUGUR
AFMÆLISTÓNLEIKAR Í ELDBORG 21. JANÚAR
Björgvin,
Halli &
Hjört
Hows
SÉRSTAKIR GESTIR
Egils Appelsín kynn með sto
lti
MIÐASALA Á HARPA.IS
1
1
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:3
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
4
1
-7
4
4
4
1
B
4
1
-7
3
0
8
1
B
4
1
-7
1
C
C
1
B
4
1
-7
0
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K