Alþýðublaðið - 23.12.1924, Blaðsíða 3
ÁL£>YÐUJ&L AöíD
flfisfrfi Una Gísladfittir.
Fædd 28. okt. 1855. Dáin 7. dez. 1924.
uiimmiiiwiiiiiiimMiiimii
Braut þín var Öröug, blóðrakt oít í spori.
Bjartsýni’ og göfgi vann þó sigur beztan.
Framtíöin var bór glampi’ af vonavori,
viti, — sem aldrei brást, nó stefnufestan.
Minna þú hlauzt af gulli en gjafmiidinni.
Gafstu t>ví bæði’ af auðí’ og fátækt þinni.
Æflstarf þitt var kærleiksverk að vinna.
Vermdirðu margan útlægan og kalinn.
Grátklökkvi hrærir hjörtu vina þinna;
harmur var kveðinn þeim, er félstu í valinn.
Reistirðu snauðum skála á þjóðbraut þvera. -
f*ú vildir aldrei sýnast, heldur vera,
Jón S. Bergmann.
Morgunbl. segir i fyrra dag trá
viðtaii við bæjárfógetann í Hafn-
arfirði og kveðst hafa það eftir
honum, að ebkert hafi komið
fram vlð rannsóknloa, er bendl á,
að mennirnir, er iétust, >hefðu
drukkið smyglað vin eða nokkra
ólyfjan. í>ví það væri sannað,
að báðir hefðu drukkið spiritus
úr lyfjabúðum, annar úr annari
fyíjabúðinni hér i Reykjavík, en
hinn úr lytjabúðinnl(i) í Keflavíkr.
Enn fremur hefir blaðið það
eftir landiækni, að tvelr menn
hafi veikst, sem neyttu áfengis
með Magnúsl hsitnum, >og mættl
það merkiiegt heita, ef þar heiði
verið venjuleg daut á'engisblanda
á ferðinni,< segir landiæknir.
Manni verður að spyrja:Hafa
mennirDÍr uð eins fenglð lðg-
legan skamt áfengis, eða er
áfengið, sem iyfjabúðirnar hér
og iæknirinn í Heflavík (bar
er engln iyfjabúð) selja, ban-
eltrað?
Ótrúlegt er, að rannsókn verði
látin ialia niður fyrr en þetta
er rannsakað til hiftar, — en
hvað ætlar stjórnin að gera?
Ný kvæðabðk.
Davið Stefánsion
frá Fagraskógi:
KveðjUr. Reyk-
javlk. Prentimiö-
jan Acta h.f.
>Ertu akáldlt?< spurði Ólafur
konungur Hallfreð vandræða-
skáid. >Kann ek yrkjaU —
>Dávið Stefánsson kaun að
yrkja<, ságði ijóðglöggur máð-
ur nýlega vlð þann, sem þetta
ritar. Hann hafði nýlesið eitt
kvæðið i þessari bók. Þétta er
vafalaust rétt. Davið er kunnáttu
maður í fornri og nýrrl merk-
ingu, töframaður { list orða og
kliðar og leikinn bragsmiður.
Hann tekur yrkisefnið, sem fy;-
ir er, og endur&kapar það í list-
glldri mynd, og fyrir honum er
hvað eina gott efni, ólmur iits-
þorsti heiðiogjans og fórnfús auð-
mýkt krlstins manns, skækjan á
götunni og dáðadrottning sög-
unnar, heilagur biskup og blá-
snauður betlarl, grimmúðug ör-
lög og gletoi Eífsins. Hann met-
ur eitt sem annað. Þess vegna
er hann ekki bundinn við. Hann
er andiegur íerðamaður. Þ?í
segir hann:
>Kvæði mín eru kveðjur.
Ég kero, og ég fer<.
Það er lofaðar siður að taka
vel íerðamönnuro; það er gam-
all siður að >taka vel kveðjum<
mmná, og það er meinlaus
ihaidssemi að halda þeim sið,
þegar >kveðjurnar< eru líf í Ijóði
og hljómur eyrunum og háttur
huganum.
Bókaléus.
Hallvægt bros. Guðmundur
Friðjónsson sbáld skrifar um það
í síðasta >Yörð<, að hann hafi
heimsótt Thor Jensen, og Thor
Jensen hafl bvosað — við honum.
Dan Griffiths: Höfuðóvinurinn.
Lögfræðingana má ekki heldur sakfella fyrir laga-
vafstur sitt. Ekki er þeim um að kenna. Það væri
jafnskynsamlegt að áfellast fiugurnar fyrir að dafna
á skíthaugnum. Rikjandi skipulag er ágætlega til
þess fallið að ala á deilum og málaferlum,
og það skapar aftur þörfina fyrir lögfræðinga.
Fjárhagsskipulagið fyllir pyngjur þeirra. Jafn-
aðarmenn eru ekki reiðir lögfræöingunum sjálfum.
Þeir veitast að lagavafstrinu með þvi að ráðast á
sjdpulagið, sem elur og fæðir lagasnápana Breytið
skipulaginu, og lögfræðingarnir týna tölunni. Að-
feröin til þess að útrýma snikjudýrunum er að af-
nema það skipulag, sem elur þau og fæðir. Það er
hin vísindalega aðferð.
Jafnaöarmenn ráðast á það skipulag, sem hefir i
för með sér óþarflega kostnaðarsamt búðarhokur
einstakva manna og aðra slika sóun. En þeir áfell-
íist ekld smákaupmennina, fáfróöa, blásnauöa ög oft
gjaldþrota. Þeir ráðast á skipulagið, sem getur af
sór þetta fyrirkomulag.
Einkaverzlunarrekstur og smábuðarhokur er ekki
verk kaupmannanna. Þeir eiga ekki sök á fyrirkomu-
laginu. Og ef það á að vikja fyrir eiuhverju heil-
brigðara, skynsamlegra og hagsýnna, eins og strætis-
vagnar með hestum fyrir hafa orðiö að vikja fyrir
rafmagnssporvögnum, þá verður alþýðan, sem hefir
öll ráðin, er hún vill, að koma þvi i framkvæmd.
Hver vill sakfella einstaka smákaupmenn? Oft fá
þeir þunga skelli af þvi skipulagi, sem þeir halda
uppi og verja. Þúsundum saman verða þeir gjald-
þrota. En þeir segja likt og Job: „Þótt auðvalds-
skipulagið slái mig, mun óg treysta þvi.“
Fyrlr jóllnj
þurfa allir að kaupa >Tarzan og gimsteinar
Opar-borgar* og >Skógarsðgur af Tarzant
með 12 myndum. — Fyrstu sögurnar enn fáanlegar.