Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 1
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Það eru alltaf læti þegar þessi lið
mætast, það er svo mikill rígur á
milli þeirra,“ sagði Arnór Smárason,
knattspyrnumaður hjá Hammarby,
sem skoraði eitt mark í 4:2-sigri liðs-
ins á Djurgården í grannaslag í
Stokkhólmi í sænsku úrvalsdeildinni
í gær.
Gera þurfti hlé á leiknum rúmum
tíu mínútum fyrir leikslok vegna
óláta áhorfenda. Grímuklæddar fót-
boltabullur úr röðum stuðnings-
manna Djurgården ruddu sér leið að
vellinum og röðuðu sér fyrir aftan
mark Hammarby, sem Ögmundur
Kristinsson var í. Blysum og fleiru
var kastað inn á völlinn og dómarinn
neyddist til að vísa leikmönnum til
búningsklefa.
„Djurgården hefur verið að fá
völlinn lánaðan hjá okkur, sem eyk-
ur bara á ríginn. Djurgården er ekki
búið að vinna í þessum innbyrðis
leikjum í einhver 10 ár og stuðnings-
mennirnir voru bara búnir að fá nóg.
Þeir reyndu að storma inn á völlinn
og voru bara með almenn leiðindi.
Dómarinn rak okkur leikmennina
beint inn í klefa og þar biðum við
bara í hálftíma og vissum svo sem
ekkert hvað var í gangi uppi á vell-
inum. Það voru 11 mínútur eftir,
staðan 4:2 fyrir okkur og við vorum
bara einbeittir í því að klára leikinn
með sigri,“ sagði Arnór.
Arnór lék á hægri kantinum og
var öllu fjær fótboltabullunum en
Ögmundur og Birkir Már Sæv-
arsson, þegar bullurnar ruddust að
vellinum.
„Ég talaði við Ömma og hann
sagði að það hefði verið svolítið
„shaky“ að sjá fyrstu mennina koma.
Það er ekkert gott að vera einbeittur
í miðjum leik og sjá svo grímu-
klædda menn koma hlaupandi á móti
manni. Það er ábyggilega ekki góð
tilfinning, en menn áttuðu sig fljótt
og við fórum strax inn í klefa,“ sagði
Arnór.
Arnór skoraði sitt þriðja mark
fyrir Hammarby í leiknum, en hann
jafnaði metin í 2:2 skömmu fyrir
leikhlé, fyrir framan fjölskyldu sína
sem var í heimsókn en varð á engan
hátt meint af ólátunum meðal áhorf-
enda.
„Ég var búinn að bíða eftir því að
skora á Tele2 Arena. Þetta var
fyrsta markið mitt á heimavelli svo
það var ljúft, og sérstaklega á mikil-
vægum tíma í svona stórum leik,“
sagði Arnór.
Hammarby hefur aðeins tapað
einum af síðustu 11 leikjum sínum í
deildinni og er í 8. sæti með 38 stig
þegar fjórar umferðir eru eftir, að-
eins stigi á eftir Örebro sem er í 5.
sæti.
„Við Íslendingarnir erum allir
fastamenn í þessu liði og það hefur
gengið frábærlega síðustu mánuði.
Við höfum verið að klifra upp töfluna
og stefnum núna á 5. sæti. Við verð-
um bara betri og ég held að á næsta
ári stefnum við bara á að vera í hópi
fjögurra efstu. Það eru spennandi
tímar framundan hjá þessu félagi,“
sagði Arnór.
Ljósmynd/hammarbyfotboll.se
Sigur Arnór Smárason skoraði í
sigri Hammarby í gærkvöld.
Ekki gott að fá grímuklædda
menn hlaupandi á móti sér
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Óttar Bjarni Guðmundsson, lykilmaður í liði
Leiknis í Breiðholti undanfarin ár, gekk í
gær til liðs við Stjörnuna. Óttar vakti at-
hygli fyrir góða frammistöðu í Pepsi-
deildinni í fyrra og mun nú aftur spreyta
sig í deildinni.
„Mér finnst vera kominn tími til að prófa
nýja hluti og fara í nýtt umhverfi eftir öll
þessi ár í Leikni. Ég fann að tími var kom-
inn til að fljúga úr hreiðrinu og skoða heim-
inn. Alla vega fara aðeins út fyrir póst-
númer 111. Fá nýja áskorun og prófa
eitthvað nýtt í fótboltanum,“ sagði Óttar
Bjarni þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til
hans.
Óttar segist hafa tilkynnt Leiknismönnum
um það leyti sem 1. deildinni lauk að hann
hygðist líta í kringum sig og sjá hvort eitt-
hvað væri í boði fyrir sig í efstu deild.
„Nokkur félög sem sýndu áhuga og gerðu
mér tilboð. En ég ákvað að taka tilboði
Stjörnunnar sem mér finnst vera frábært
félag. Þar er unnið mjög metnaðarfullt
starf. Þetta hljómar auðvitað eins og hefð-
bundin klisja en umgjörðin í kringum
Stjörnuna virðist vera frábær. Auk þess er
leikmannahópurinn mjög sterkur og þjálf-
ararnir mjög góðir. Ég gat því hakað við í
öll boxin varðandi það sem ég var að leitast
eftir,“ sagði Óttar í gær.
Hittir fyrir Hilmar Árna
Stjarnan hefur nú nælt í tvo af öflugustu
leikmönnum Leiknisliðsins sem lék í Pepsu-
deildinni í fyrra, þá Óttar og Hilmar Árna
Halldórsson sem stimplaði sig hraustlega
inn í Stjörnuliðið þegar á leið sumarið. Ótt-
ar hefur verið í samskiptum við Hilmar og
er því ágætlega kunnugt um hvernig hlut-
irnir ganga fyrir sig í Garðabænum.
„Það hjálpaði til að vita af honum því við
erum mjög góðir vinir og ég hef verið í sam-
bandi við hann reglulega. Hann bar
Stjörnumönnum mjög vel söguna og auðvit-
að hjálpar til að vita af vini sínum í þeirra
röðum. Ég fylgdist auk þess vel með honum
og Stjörnunni bæði í sumar og síðasta vet-
ur.“
Óttar er miðvörður og segist eiga von á
því að Stjarnan vilji nýta krafta hans í
þeirri stöðu. Í sumar voru þeir Brynjar
Gauti Guðjónsson og Grétar Sigurðarson
oftast nær í því hlutverki auk þess sem
Daníel Laxdal hefur oft spilað sem mið-
vörður hjá Stjörnunni. Óttar sér því fram á
samkeppni.
„Já, ég fer í hörkusamkeppni og þeir eru
með frábæra miðverði en í raun er allt liðið
mjög gott. Þetta verður því mikil áskorun
fyrir mig og ég þarf að leggja mikið á mig
til að komast í liðið en mér finnst það bara
vera heillandi,“ sagði Óttar Bjarni Guð-
mundsson við Morgunblaðið.
Floginn úr hreiðrinu
Óttar Bjarni segir tímabært að skoða sig um eftir mörg ár með Leikni í Breiðholtinu Gerði í gær
þriggja ára samning við Stjörnuna Útlit fyrir harða samkeppni um miðvarðastöðurnar í Garðabæ
Morgunblaðið/Eva Björk
Samherjar Óttar Bjarni Guðmundsson og Guðjón Baldvinsson eru nú orðnir samherjar í Stjörnunni.
Óttar B. Guðmundsson
» Er 26 ára gamall miðvörður sem hóf
knattspyrnuiðkun í Bolungarvík en hefur
leikið allan sinn meistaraflokksferil með
Leikni.
» Á að baki 157 leiki í deild og bikar með
Leikni og hefur gert 8 mörk.
» Hefur af og til verið fyrirliði Leiknis síð-
ustu árin.
» Gerir þriggja ára samning við Stjörnuna.
ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016
ÍÞRÓTTIR
Íþróttir
mbl.is
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson Ég sá strax mikla hæfileika í stráknum, segir þjálfari Fram um Framarann efnilega
sem hefur leikið mjög vel með Safamýrarliðinu. Hefur rétta hugarfarið og burði til að bæta sig mikið. 4