Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 18.10.2016, Qupperneq 3
2. UMFERÐ Kristján Jónsson kris@mbl.is Landsliðsmaðurinn Ólafur Ólafsson var í stóru hlutverki hjá Grindavík þegar liðið lagði Hauka að velli, 92:88, eftir framlengingu í Dominos- deildinni í körfuknattleik. Morgun- blaðið tekur Ólaf til umfjöllunar að umferðinni lokinni en hann skoraði 18 stig, tók 15 fráköst og náði boltanum tvisvar af andstæðingunum. „Við þiggjum alla sigra og ég lít þannig á að allir sigrar í vetur séu ljúfir vegna þess að við erum ekki jafn vel mannaðir og síðustu ár. Eftir landsliðsverkefnið vissi ég eiginlega ekki við hverju ég átti að búast. Ég hafði eiginlega ekkert æft með liðinu en hafði hitt leikmennina. Ungu strákarnir komu mér svolítið á óvart. Ég átti ekki von á því að liðið yrði svona gott en ungu leikmennirnir hafa verið mjög duglegir að mæta á aukaæfingar. Þeir ætla sér greinilega að nýta tækifærið eins vel og þeir geta,“ sagði Ólafur þegar Morgun- blaðið spjallaði við hann. Fjögur lið gætu skorið sig úr Ólafur sneri heim í sumar eftir dvöl í Frakklandi og honum sýnist mörg lið í deildinni vera býsna jöfn að getu. „Mér finnst að KR, Stjarnan og Tindastóll gætu skorið sig úr í efri hlutanum. Í neðri hlutanum verður Snæfell væntanlega í fallbaráttunni, með fullri virðingu fyrir þeim. Fyrir utan þessi fjögur lið gæti deildin ver- ið einn stór pakki. Allir geta unnið alla þegar tvö þessara átta liða eigast við,“ sagði Ólafur og tekur það fram að hann myndi frekar vilja sjá 3+2 reglu varðandi erlenda leikmenn heldur en 4+1 regluna sem er í gildi. „Ég myndi frekar vilja sjá 3+2. Ef þú ert með ungan leikmann, sem er duglegur að æfa og tilbúinn að hafa fyrir því að verða góður, þá fær hann að spila í 3+2 reglunni. Ég tel að ís- lenskir leikmenn, sem ekki leggja eins mikið á sig, græði á 4+1 regl- unni.“ Orðinn agaðari leikmaður Ólafur lék með St. Clement í NM2- deildinni í Frakklandi á síðasta tíma- bili og skoraði 14 stig að meðaltali í leik. Hann segist hafa lært mikið af dvölinni erlendis. „Ég fór út fyrir þægindarammann og fór inn í um- hverfi sem ég hef aldrei verið í áður. Ég gerði ekkert annað en að æfa og vera í körfubolta. Mér fannst ég hafa lært mikið og er orðinn agaðari leik- maður því ég er ekki eins villtur á vellinum. Ef ég gerði einhverja vit- leysu þá var hent í mig einhverjum skömmum á frönsku. Einn samherji minn hafði spilað með franska lands- liðinu og hann hjálpaði mér rosalega mikið,“ útskýrði Ólafur og hann stefnir að því að fara aftur utan að þessu tímabili loknu. „Ég er á besta aldri sem leikmaður og á helling inni.“ Ólafur var í íslenska landsliðs- hópnum í sumar, sem vann sér þátt- tökurétt í lokakeppni EM, Euro- basket, næsta haust. Hann er einn þeirra leikmanna sem hafa verið á þröskuldi þess að komast í landsliðið síðustu árin. Ólafur er stoltur af því að vera í landsliðinu og er tilbúinn að leggja allt í sölurnar til að komast í EM-hópinn eins og aðrir. Eldmóðurinn til staðar „Ég sætti mig við mitt hlutverk í landsliðinu. Þótt ég hefði viljað spila meira þá ætla ég ekki að vera eitraða eplið í hópnum. Stór þáttur í vel- gengni landsliðsins er liðsheildin, al- veg frá fyrsta manni og niður í fjór- tánda. Þetta eru heldur engir smá karlar sem ég er að slást við um stöðu í landsliðinu. Mér finnst ógeðs- lega gaman að berjast fyrir mínu sæti og ég tel mig eiga fína möguleika á því að komast í EM-hópinn. Ég þarf að sjálfsögðu að hafa fyrir því en ég tel mig geta hjálpað liðinu með bar- áttunni og því sem einkennir minn leik. Um leið og ég er kominn með Ís- land framan á bringuna, þá finnur þú ekki marga sem eru jafn stoltir af því að spila fyrir land og þjóð. Ég fann fyrir því strax í yngri landsliðunum. Eldmóðurinn er alltaf til staðar þótt ég sitji á bekknum eða sé utan hóps,“ sagði baráttujaxlinn Ólafur Ólafsson ennfremur í samtali við Morgun- blaðið. „Átti ekki von á því að liðið yrði svona gott“ Morgunblaðið/Eggert Háloftafugl Ólafur Ólafsson er þekktur fyrir kraftmiklar troðslur sem geta slökkt í andstæðingunum.  Ólafur Ólafsson átti stórleik þegar Grindavík vann sinn annan sigur  Stefnir að því að vinna sér sæti í EM-hópnum  Er hrifnari af 3+2 reglunni heldur en 4+1 4+1 reglan » Í körfuboltanum er ekki frjálst hversu margir erlendir leikmenn eru inni á vellinum í einu hér- lendis. Leyfilegt er að vera með einn slíkan á vellinum í einu. » Í 3+2 reglu væri svigrúmið meira, eða tveir erlendir. ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2016 Leiknir íReykjavík hefur ráðið Krist- ófer Sig- urgeirsson sem þjálfara 1. deildar liðs félagsins í knattspyrnu. Kristófer, sem er 44 ára og lék lengst af með Breiðabliki en einnig með Fram og liðum í Grikklandi og Svíþjóð, hefur verið aðstoðarþjálfari Breiðabliks undanfarin tvö ár. Áður gegndi hann sama starfi hjá Fjölni og þjálfaði þar á undan lið Reynis í Sandgerði. Kristófer tekur við af Kristjáni Guðmundssyni sem var um helgina ráðinn þjálfari ÍBV.    Miðvörðurinn Aron Ingi Andr-easson skoraði eitt af mörk- um FC Hennef þegar liðið lagði Rot-Weiss Essen, 3:2, í þýsku Bun- desligunni í knattspyrnu leikmanna 17 ára og yngri um nýliðna helgi. Aron Ingi, sem er 16 ára gamall uppalinn FH-ingur, hefur búið ásamt foreldrum sínum í Þýskalandi frá árinu 2011 og er með bæði ís- lenskt og þýskt ríkisfang. Hann hef- ur spilað með Hennef frá árinu 2012.    Elías Már Óm-arsson, leikmaður IFK Gautaborgar í Svíþjóð, lagði upp mark í 3:3 jafn- tefli liðsins gegn Gefle í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Þessi fyrrverandi leik- maður Keflavíkur hefur verið frá- bær með sænska liðinu frá því hann kom frá Vålerenga í Noregi en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt frá því hann kom í sumar. Hann lagði upp annað mark liðsins í leiknum en það var Soren Rieks sem gerði markið í byrjun síðari hálfleiks. Lokatölur urðu 3:3 en Göteborg er í 4. sæti með 43 stig.    Knattspyrnudeild Fylkis samdi ígær við Hákon Inga Jónsson en hann gerði tveggja ára samning við félagið. Er hann uppalinn í Fylki en lék með HK í sumar. Hákon, sem er 21 árs gamall framherji, var gríðarlega öflugur með HK í sumar en hann gerði 13 mörk í 22 deildar- leikjum. Hann var þriðji marka- hæsti leikmaður deildarinnar og átti stóran þátt í því að liðið hélt sér uppi.    Hollendingurinn Maarten Steke-lenburg varð sjöundi mark- vörðurinn í sögu ensku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu til að verja tvær vítaspyrnur í sama leiknum. Stekelenburg var hetja Everton í 1:1 jafntefli liðsins á móti Manchest- er City á laugardaginn en hann gerði sér þá lítið fyrir og varði tvær vítaspyrnur, fyrst frá Kevin de Bruyne og síðan frá Sergio Agüero. Fólk folk@mbl.is Knattspyrnufélagið Valur hefur gert Breiða- bliki tilboð í miðvörðinn sterka, Damir Mum- inovic, en því var hafnað. Þetta staðfesti Ey- steinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, við vefmiðilinn 433.is í gær. Dam- ir, sem er 26 ára gamall, hefur þótt einn af betri miðvörðum Pepsi-deildarinnar og verið fastamaður í vörn Breiðabliks síðustu þrjú ár. Í frétt 433.is segir að Damir hafi einnig verið orðaður við Stjörnuna, sem nú hefur fengið til sín miðvörðinn Óttar Bjarna Magnússon frá Leikni R. eins og lesa má um á forsíðu. Ey- steinn fullyrðir að Damir sé ekki til sölu, og hið sama segir hann um hinn aðalmiðvörð Breiðabliks, Elfar Frey Helgason, í frétt á Fótbolta.net í gær. Damir er með samning við Blika út tímabilið 2018 og Elfar út næsta ár. sindris@mbl.is Miðverðir ekki til sölu Damir Muminovic Íslendingaliðið Århus virðist komið á beinu brautina í dönsku úrvalsdeildinni í hand- bolta. Eftir að hafa tapað fyrstu fjórum leikj- um sínum hefur liðið nú unnið tvo leiki í röð, en liðið valtaði yfir botnlið Randers í gær- kvöld; 36:24. Róbert Gunnarsson og Ómar Ingi Magn- ússon, sem báðir komu til Århus í sumar, Ró- bert frá PSG en Ómar Ingi frá Val, skoruðu 4 mörk hvor fyrir liðið. Hornamaðurinn Sig- valdi Björn Guðjónsson skoraði 2. Viggó Kristjánsson var markahæstur hjá Randers með 4 mörk en hann kom til félagsins frá Gróttu í sum- ar, líkt og markvörðurinn Arnór Freyr Stefánsson sem kom frá ÍR. Randers er enn án stiga í 14. og neðsta sæti en Århus er kom- ið upp í 11. sæti. sindris@mbl.is „Íslenskur“ botnslagur Ómar Ingi Magnússon Landslið Íslands í blaki karla og kvenna, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, fór í gærmorgun til Danmerkur þar sem þau taka þátt í Norður-Evrópukeppninni, Nevza, sem hefst á morgun og stendur til fimmtudagskvölds. Flautað verður til leikja snemma í dag en mótið fer fram í Ikast á Jótlandi. Karlaliðið verður í riðli með finnska og sænska landsliðinu en kvennaliðið leikur við norska og sænska landsliðið. Einnig taka landslið Englands, Danmerkur, Færeyja þátt í mótinu. Það ræðst svo af gengi íslensku liðanna við hvern þau leika á miðvikudag og á fimmtudag en þau leika tvo leiki hvort á morgun í riðlakeppninni. Mótshaldarar stefna á að streyma öllum leikjum á netinu í gegn- um Facebook-síðu mótsins og þar geta áhugsamir fylgst með. Eduardo Berenguer og Natalia Ravva eru þjálfarar U17 ára liðs karla en Lorenzo Ciancio og Erla Bjarný Jónsdóttir stýra stúlkna- liðinu. Sævar Mar Guðmundsson og Valgeir Valgeirsson dómarar verða með flautur sínar á lofti á mótinu. iben@mbl.is Blakfólk til Danmerkur Lewis Clinch úr Grindavík, Pétur Rúnar Birgisson úr Tindastóli og Flenard Whitfield úr Skallagrími eru efstir í þremur helstu tölfræðiþátt- unum eftir tvær umferðir í Dominos- deild karla í körfuknattleik. Flest stig: Lewis Clinch, Grindavík ................ 66 Brynjar Þór Björnsson, KR............ 60 Amin K. Stevens, Keflavík............. 55 Flenard Whitfield, Skallagrími...... 53 Tobin Carberry, Þór Þ. ................... 53 Flestar stoðsendingar: Pétur Rúnar Birgisson, Tindastóli 14 Björn Kristjánsson, Njarðvík ......... 13 Justin Shouse, Stjörnunni............. 13 Sigtryggur A. Björnsson, Skallagr 13 Hlynur Bæringsson, Stjörnunni..... 11 Flest fráköst: Flenard Whitfield, Skallagrími...... 33 Amin K. Stevens, Keflavík............. 33 Hlynur Bæringsson, Stjörnunni.... 28 Sefton Barrett, Snæfelli ............... 24 Finnur Atli Magnússon, Haukum .. 23 Clinch, Pétur og Whitfield efstir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.