Morgunblaðið - 15.11.2016, Síða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2016
Vináttulandsleikur karla
Pólland – Slóvenía ................................... 1:1
Lukasz Teodorczyk 79. – Miha Mevlja 24.
KNATTSPYRNA
Olís-deild karla
ÍBV – Fram........................................... 37:29
Selfoss – Valur ...................................... 29:31
Stjarnan – FH....................................... 22:22
Staðan:
Afturelding 11 8 0 3 293:301 16
Valur 11 7 0 4 289:286 14
Haukar 11 6 0 5 337:317 12
Selfoss 11 6 0 5 343:318 12
FH 11 4 3 4 300:299 11
ÍBV 11 5 1 5 317:311 11
Grótta 11 4 1 6 275:283 9
Fram 11 4 1 6 320:332 9
Stjarnan 11 3 3 5 259:279 9
Akureyri 11 3 1 7 268:275 7
Ungverjaland
Vaci – Veszprém.................................. 22:29
Aron Pálmarsson var ekki á meðal
markaskorara Veszprém.
Danmörk
Randers – Ribe-Esbjerg ..................... 22:30
Viggó Kristjánsson skoraði 1 mark fyrir
Randers. Arnór Freyr Stefánsson ver
mark liðsins.
HANDBOLTI
Danmörk
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Svendborg – Horsens.......................... 77:83
Axel Kárason er leikmaður Svendborg.
Arnar Guðjónsson þjálfar liðið.
NBA-deildin
Cleveland – Charlotte ........................ 100:93
OklahomaCity – Orlando ................. 117:119
Minnesota – LA Lakers..................... 125:99
Golden State – Phoenix.................... 133:120
Portland – Denver............................ 112:105
Staðan í Austurdeild:
Cleveland 8/1, Atlanta 7/2, Toronto 7/2,
Charlotte 6/3, Chicago 6/4, Milwaukee 5/4,
Boston 5/4, Detroit 5/5, New Jersey 4/5,
Orlando 4/6, Indiana 4/6, New York 3/6,
Miami 2/6, Washington 2/7, Philadelphia
1/8.
Staðan í Vesturdeild:
LA Clippers 9/1, Golden State 8/2, San Ant-
onio 7/3, Utah 7/4, Portland 7/4, Oklahoma
City 6/4, Houston 5/4, LA Lakers 6/5,
Memphis 4/5, Sacramento 4/7, Minnesota
3/6, Denver 3/7, Phoenix 3/8, Dallas 2/6,
New Orleans 1/9.
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin:
Framhús: Fram – Haukar................... 19.30
1. deild kvenna:
Víkin: Víkingur – Valur U.................... 19.30
1. deild karla:
KA-heimili: Hamrarnir – Akureyri U 19.30
Valshöllin: Valur U – Fjölnir ............... 19.30
ÍSHOKKÍ
Hertz-deild karla:
Akureyri: SA – Esja ............................. 19.30
Laugardalur: SR – Björninn .................... 20
Í KVÖLD!
sínum mönnum þar með sigurinn.
Ólafur Ægir Ólafsson kom líka
mjög ferskur inn í sínum fyrsta leik í
vetur. Ólafur gekk í raðir Vals í vor
frá Fram en hefur ekki getað tekið
þátt fyrr en nú vegna meiðsla. Hann
mætti tilbúinn. Það sama má segja
um Króatann unga Josip Grgic. Stór
og sterkur strákur sem var óhrædd-
ur að vaða á vörn Selfoss, enda var
hann markahæstur Valsara með 9
mörk.
Heimamenn voru aðeins á brems-
unni í gærkvöldi en Elvar Örn Jóns-
son, sem verið hefur jafnbesti leik-
maður liðsins í vetur, átti ágætt
kvöld, sem og Teitur Einarsson.
Skrautlegt jöfnunarmark
Kringumstæður voru allar hinar
dramatískustu í þann mund er leik-
tíminn rann út í viðureign Stjörn-
unnar og FH í Mýrinni í gærkvöldi.
Tveimur sekúndum fyrir leikslok lét
Garðar Sigurjónsson, línumaður
Fram, vaða á markið úr aukakasti.
Skotið hafnaði í varnarmanni, breytti
um stefnu og fór yfir Ágúst Elí
Björgvinsson, markvörð FH, sem var
sestur til að reyna að verja skotið, og
þaðan í markið. Úrslitin: 22:22.
FH-ingar voru hoppandi illir og
töldu ekki rétt hafa verið staðið að
framkvæmd aukakastsins. Höfðu
þeir mikið til síns máls því brotið var
á leikmanni Stjörnunnar nokkuð til
hliðar við þann stað þar sem auka-
kastið var tekið. Auk þess má velta
fyrir sér hvort Garðar hafi stigið inn
fyrir punktalínuna þegar hann skaut
á markið miðað við hvernig hann
sjálfur lýsti aðstæðum.
„Ég veit ekki hvort samherjar
HANDBOLTI
Guðmundur Karl
Kristján Jónsson
Guðmundur Tómas Sigfússon
Valsmenn lyftu sér upp í 2. sæti Olís-
deildar karla í gærkvöldi með 31:29
útisigri á Selfyssingum í stór-
skemmtilegum leik í Vallaskóla.
Leikurinn var hraður og skemmti-
legur og bæði lið virkuðu í toppformi.
Leikurinn fór mjög hratt af stað
og á köflum bar kappið fegurðina
ofurliði. Það átti sérstaklega við um
Selfyssinga sem fóru stundum fram
úr sér á mikilvægum augnablikum og
skotvalið var oft dapurt, sérstaklega
á lokakaflanum.
Framan af leiknum lentu Vals-
menn á vegg og fundu engar leiðir í
gegnum Selfossvörnina en eftir að
Selfoss náði þriggja marka forskoti,
9:6, tóku Valsmenn leikhlé um miðj-
an fyrri hálfleik og svöruðu með 5:1
áhlaupi. Gestirnir leiddu með einu
marki í leikhléi, 15:16.
Í síðari hálfleik hélt fjörið áfram.
Frábær tilþrif á báðum endum vall-
arins, hraði og spenna, og auðvitað
mistök á báða bóga. Dómararnir áttu
líka sínar stundir, enda línan hjá
þeim Arnari og Svavari ansi mislögð
í ýmsum atriðum þó að þeir hafi
sloppið stóráfallalaust frá leiknum.
Það sem helst gladdi augað í síðari
hálfleik var frammistaða Hlyns
Morthens í marki Vals. Þessi
reynslumikli markmaður kom í
rammann í síðari hálfleik og skellti í
lás á lokakaflanum. Hlynur varði 12/1
skot, þar af fimm mikilvæga bolta á
síðustu fimm mínútunum og tryggði
mínir voru fyrir innan punktalínuna.
Þegar ég hafði sleppt boltanum þá
leit ég niður og sá að ég hafði stigið
inn fyrir punktalínuna með vinstri
fótinn. Hvort ég hafði verið þar þeg-
ar ég skaut veit ég ekki og ætla ekki
að segja til um hvort þetta hafi verið
löglegt eða ekki. Ég leit á klukkuna
og sá 59,58. Ég vissi að ég myndi
ekki ná að koma boltanum í leik og
sneri mér því bara við og skaut.
Hugsunin á bak við skotið var ekki
mikil en það tókst að koma boltanum
í markið, blessunarlega,“ sagði Garð-
ar í samtali við Morgunblaðið að
leiknum loknum.
FH var marki yfir að loknum fyrri
hálfleik og byrjaði síðari hálfleikinn
mjög vel. FH-ingar skoruðu þá
fyrstu þrjú mörkin og voru yfir
14:10. Þeim tókst ekki að ganga á
lagið og Stjarnan jafnaði 16:16. Eftir
það var spennan til staðar. FH skor-
aði úr síðustu sókn sinni þegar 20
sekúndur voru eftir en sóknin var
býsna löng. Þeir galopnuðu vörn
Stjörnunnar með einfaldri innleys-
ingu úr horni og Óðinn Ríkharðsson
skoraði örugglega. Útileikmenn
Stjörnunnar gerðu þau mistök í síð-
ustu sóknini að láta brjóta á sér en
Garðar bjargaði þeim fyrir horn og
jafnaði.
Ísak Rafnsson, stórskytta FH-
inga, er aftur farinn að beita sér eftir
eins og hálfs árs fjarveru vegna
meiðsla. Hann fór ekki í fórnar-
lambsstellingarnar að leiknum lokn-
um. „Síðasta markið var ólöglegt.
Garðbæingar viðurkenna það sjálfir.
Það er ógeðslega svekkjandi en við
áttum bara að vera löngu búnir að
klára dæmið. Alltaf þegar við áttum
möguleika á því að ná tveggja marka
forskoti þá misstum við boltann og
fengum mark í bakið. Við héldum
þessu spennandi,“ sagði Ísak Rafns-
son þegar Morgunblaðið ræddi við
hann.
ÍBV beið lengi eftir sigri
ÍBV vann sinn fyrsta leik síðan
snemma í október þegar liðið sigraði
Framara úti í Vestmannaeyjum í
gær. Leiknum lauk 37:29 heima-
mönnum í vil, sem voru með yfir-
höndina allan leikinn.
Sóknarleikur ÍBV einkenndist af
miklum hraða og enduðu margar
leikfléttur liðsins á því að stórskyttur
liðsins fengu flugbraut að punktalín-
unni til þess að taka skot. Þeir Theo-
dór Sigurbjörnsson og Sigurbergur
Sveinsson skoruðu samtals 23 mörk
en sá fyrrnefndi gerði fjórtán þeirra.
Valur í 2. sæti eft-
ir sigur á Selfossi
Stig til Stjörnunnar eftir dramatískar lokasekúndur
Theodór og Sigurbergur með 23 mörk fyrir ÍBV
tekur þátt í leikjum um næstu mán-
aðamót. Ástæða er sú að Ester er á
fullu í námi samhliða vinnu og taldi sig
af þeirri ástæðu ekki hafa tíma til þess
að helga landsliðinu krafta sína að
þessu sinni,“ sagði Guðbjörg. Ester er
sambýliskona Magnúsar Stef-
ánssonar, leikmanns ÍBV, og saman
eiga þau eina dóttur. „Annars held ég
að Ester hafi tekið sæti í landsliðinu
þegar eftir kröftum hennar hefur ver-
ið leitað en ég skal viðurkenna að ég
hef stundum verið undrandi á því af
hverju Ester hefur ekki oftar verið
9. UMFERÐ
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
„Ester varð snemma driffjöður Eyja-
liðsins og hefur sinnt því hlutverki
mjög vel,“ sagði hin leikreynda hand-
knattleikskona Guðbjörg Guðmanns-
dóttir, samherji Esterar Óskarsdóttur
hjá ÍBV. Ester er leikmaður níundu
umferðar Olís-deildar kenna. Hún átti
einn einn stórleikinn með ÍBV þegar
liðið vann Val, 28:23, í Eyjum á laug-
ardaginn.
Guðbjörg hefur lengi þekkt Ester og
fylgst með ferli hennar sem samherji
og félagi í ÍBV. „Ester leggur sig full-
komlega í hvern leik og hefur alla tíð
gert það. Hún er mjög góður félagi í
hópnum, er bæði hvetjandi en einnig
gagnrýnin. Ester er óhrædd að segja
skoðun sína og lætur okkur alveg
heyra, bæði það sem henni líkar og lík-
ar ekki. Hún er hreinskilin, þorir að
segja hlutina eins og þeir eru sem er
mjög gott. Það tel ég mikinn kost á
samherja,“ sagði Guðbjörg sem hefur
leikið með mörgum handknatt-
leikskonum, bæði hér á landi og í Dan-
mörku þar sem Guðbjörg lék um árabil.
„Ester góður leiðbeinandi. Hún hef-
ur sigureðli og þráir mjög að vinna
bikar með ÍBV-liðinu að maður vonast
alltaf til þess að einn daginn takist
Eyjaliðinu að vinna til sigurlauna.
Hún er með sigurviljann sem vantar á
stundum í leikmenn. Hún fer í alla
leiki með blóðbragð í munni og þá ætl-
an að vinna leikinn. Eins er á æfingum
þar sem hún leggur sig fullkomlega
fram, er ekkert gefin fyrir að vera á
hálfri ferð,“ sagði Guðbjörg. „Það
truflar Ester ekkert að bera ábyrgð.
Hún vill bera hana.“
Jafnvíg á vörn sem sókn
Ester, sem rótgróin Eyjakona,
skoraði 11 mörk í fyrrgreindum sig-
urleik á Val og er nú næstmarkahæsti
leikmaður Olís-deildar kvenna með 73
mörk sem er ekki síst athyglisvert þar
sem Ester tekur afar sjaldan vítaköst.
Hún er ekki aðeins góður sókn-
armaður heldur framúrskarandi varn-
armaður að sögn Guðbjargar. „Það er
einn helsti kostur Esterar að vera alls
ekki síðri í vörn en sókn.“
Ester á aðeins að baki sjö A-
landsleiki. Þeir eru til sem gjarnan
vilja sjá meira til hennar á þeim vett-
vangi. Guðbjörg segist ekki þekkja þá
sögu til hlítar því að sínu mati eigi Est-
er sannarlega skilið að fá fleiri tæki-
færi með íslenska landsliðinu. Hún
hafi mikið fram að færa á þeim vett-
vangi, jafnt utan vallar sem innan. „Ég
veit hinsvegar að Ester gaf landsliðs-
sæti frá sér á dögunum en hún mun
hafa komið til greina í landsliðið sem
valin í íslenska landsliðið,“ sagði Guð-
björg sem á sjálf að baki 57 A-
landsleiki.
Nauðsynlegur sigur
Guðbjörg segir sigurinn á Val á
laugardaginn hafi verið nauðsynlegur
fyrir ÍBV-liðið. „Bæði vegna þess að
okkur hefur á stundum vantað herslu-
muninn upp á að vinna nokkra leiki í
vetur og eins til þess að vera áfram í
efri hluta deildarinnar. Við höfum að-
eins unnið í okkar málum upp á síð-
kastið og það skilað sér í leiknum við
Val þar sem allir leikmenn voru ein-
beittir og staðráðnir í að leggja sig
fram og vinna leikinn. Það var kraftur
og barátta í okkur.“
Guðbjörg hefur tekið þátt í sex af níu
leikjum ÍBV í deildinni það sem af er
leiktíð. Hún segir erfitt að slíta sig frá
handboltanum þótt það hafi verið á
dagskránni og hún hafi dregið saman
seglin frá því þegar hún var á fullri
ferð. „Ég er eilífðarleikmaður,“ sagði
Guðbjörg og hló dátt áður en hún bætti
við: „Ég var beðin um að koma inn í
hópinn í vetur vegna meiðsla. Ég gat að
sjálfsögðu ekki neitað þeirri ósk með
líkamann er í lagi. Meðan ég hef gaman
af þessu og get lagt mitt lóð á vog-
arskálina þá geri ég hvað ég get til að
aðstoða stelpurnar,“ sagði Guðbjörg
Guðmannsdóttir, handknattleikskona
með ÍBV.
Óhrædd að tala hreint út
Ester er leiðtoginn í leikmannahópi ÍBV Tók snemma mikla ábyrgð Þráir að
vinna bikar og fer í hvern leik með blóðbragð í munni Afþakkaði landsliðssæti
Leit Fjölnis-
manna að
aðstoðar-
þjálfara fyrir
karlalið sitt í
knattspyrnu er
lokið en félagið
hefur ráðið
Guðmund
Steinarsson í
starfið. Guð-
mundur var
sem leikmaður lykilmaður í
Keflavík í mörg ár en hóf sinn
þjálfaraferil 2014 og stýrði
Njarðvík í 2. deild til loka ágúst
á síðasta tímabili.
Guðmundur tekur við af Ólafi
Páli Snorrasyni sem verið hefur
aðstoðarmaður Ágústs Gylfason-
ar síðustu tvær leiktíðir. Ólafur
Páll fór til FH nú í haust og tók
við af Guðlaugi Baldurssyni, sem
ráðinn var þjálfari Keflavíkur.
Ágúst fékk til
sín Guðmund
Guðmundur
Steinarsson
H. Hanna Þrastard. Selfossi 89
Ester Óskarsdóttir, ÍBV 73
Diana Satakuskaite, Val 72
Thea I. Sturludóttir, Fylki 57
Maria Ines, Haukum 56
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV 56
Ragnheiður Júlíusd., Fram 54
Lovísa Thompson, Gróttu 51
Steinunn Björnsdóttir, Fram 45
Helena Rut Örvarsd., Stjörn. 44
Þórey Anna Ásgeirsd. Gróttu 44
Hrafnhildur
Hanna efst
ÞESSAR SKORA MEST