Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2016 6. UMFERÐ Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Stjörnumenn, með landsliðsfyrirlið- ann Hlyn Bæringsson í broddi fylk- ingar, hafa byrjað leiktíðina í Dom- inos-deildinni í körfuknattleik með látum, en eftir sex umferðir er Garðabæjarliðið í toppsæti deildar- innar, hefur unnið alla leiki sína. Hlynur ákvað að snúa heim í sumar eftir sex ára dvöl í atvinnumennsku í Svíþjóð og valdi að ganga í raðir Stjörnunnar. ,,Já, við getum ekki kvartað yfir byrjun okkar í deildinni. Það var hundfúlt að detta út úr bikarnum en þá getum við bara einbeitt okkur að deildinni. Fyrsta markmiðið er að vinna deildarmeistaratititilinn en það er langur vegur að honum. Nú verðum við bara að halda áfram á sömu braut,“ sagði Hlynur í samtali við Morgunblaðið. Hlynur og félagar hans unnu góð- an útisigur á Þór Þorlákshöfn um nýliðna helgi og líkt og í öðrum leikj- um Stjörnuliðsins á tímabilinu var miðherjinn atkvæðamikill. Hann skoraði 24 stig, tók 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Hlynur, sem er 34 ára, hefur skorað að meðaltali 16,8 stig á tímabilinu, tekið 11,7 fráköst og hefur átt 4,8 stoðsendingar og koma hans til Stjörnunnar og í Dom- inos-deildina var mikill hvalreki. Verðum við toppinn ,,Við erum ánægðir með spila- mennsku okkar í deildinni og þetta hefur bara verið virkilega gaman. Ég er nokkuð viss um að við verðum við toppinn og það verða ekki mörg lið, ef nokkurt, fyrir ofan okkur. Fram undan eru erfiðir leikir á móti Tindastóli og KR og eftir þá sjáum við kannski meira í hvað stefnir hjá okkur. Það eru mörg góð lið í deild- inni og fyrir utan KR, Tindastól og okkur get ég nefnt Keflavík, Grinda- vík og Þór Þorlákshöfn. KR-liðið er rosalega vel mannað og þegar Jón Arnór verður mættur til leiks verður það enn sterkara,“ sagði Hlynur, sem finnst sárt að sjá gamla liðið sitt, Snæfell, í þeirri stöðu sem það er í. ,,Það er eins og partíið sé búið í Hólminum karlamegin en kvennalið- ið er enn frábært. Það er ekki skemmtilegt að sjá Snæfell í þessari stöðu. Þetta kemur kannski ekkert á óvart en það er ekki gott að sjá liðið tapa leik eftir leik með miklum mun,“ segir Hlynur. Stemningin og umgjörðin breyst til batnaðar Hlynur yfirgaf Snæfell sem Ís- lands- og bikarmeistari árið 2010 og var útnefndur leikmaður ársins af leikmönnum úrvalsdeildarinnar. Spurður hvernig endurkoman í deildina hafi virkað á hann segir Hlynur: ,,Þetta hefur verið mjög ánægju- legt. Deildin er skemmtileg en auð- vitað eru þetta talsverð viðbrigði. Umhverfið hér heima er allt öðru vísi en að vera í atvinnumennsku en heilt yfir er ég mjög glaður að vera kominn heim. Það skiptir miklu máli að vera nálægt fjölskyldunni fyrir sálartetrið og það er gott að geta tal- að íslensku við liðsfélaganna fyrir utan Justin og Kanann. Mér finnst íslensku leikmennirnir betri nú en þegar ég spilaði í deildinni síðast. Vissulega veikir það hins vegar deildina að það eru færri útlend- ingar. Það eru kostir og gallar við það. Það vantar kannski aðeins upp á gæðin en stemningin og umgjörðin hefur breyst til batnaðar. Körfubolt- inn á Íslandi hefur mikinn meðbyr og það er virkilega ánægjulegt. Ár- angur landsliðsins á stóran þátt í því,“ segir Hlynur, en íslenska landsliðið tryggði sér á árinu farseðil í úrslitakeppni Evrópumótsins, Eurobasket, annað skipti í röð. Sænska deildin á niðurleið en sú íslenska á uppleið Um samanburðinn á íslensku og sænsku deildinni segir Hlynur: ,,Sænska deildin hefur að mínu mati verið á niðurleið síðustu árin en eins og hún var er töluverður munur á deildunum. Betri liðin eru hundrað prósent atvinnumannalið og það seg- ir sig sjálft að ef þú getur æft tvisvar sinnum á dag og einbeitt þér alfarið að körfuboltanum verður þú betri. Þessar deildir eru núna á ólíkri átt. Sú sænska er á niðurleið en sú ís- lenska er á uppleið,“ segir Hlynur. ,,Mér finnst mjög ólíklegt að ég fari aftur út í atvinnumennskuna en maður á kannski að segja aldrei að segja aldrei. Ég kann vel við mig í Stjörnunni og eins og ég sagði áður er gott að vera kominn aftur heim. Ég er bara ánægður með eigin frammistöðu en ég get vonandi bætt mig þegar líður á tímabilið. Maður má ekkert slaka á enda er stórt ár fram undan með landsliðinu. Það verður geggjað að taka þátt í Euro- basket aftur. Maður átti ekki beint von á því en það verður gaman.“ Finn fyrir miklum meðbyr  Hlynur Bæringsson og samherjar hans í Stjörnunni ósigraðir eftir sex um- ferðir í Dominos-deildinni  Íslensku leikmennirnir orðnir betri, segir Hlynur Hlynur Bæringsson » Hann er 34 ára, fæddur 6. júlí 1982, og lék með Skalla- grími 1997 til 2002 en með Snæfelli 2002 til 2010. » Þá fór hann til Sundsvall Dragons í Svíþjóð, var þar í sex ár en kom til liðs við Stjörnuna í sumar. » Hlynur varð Íslandsmeistari með Snæfelli og sænskur meistari með Sundsvall. » Hann á 103 landsleiki að baki fyrir Íslands hönd. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Garðabær Hlynur Bæringsson á fullri ferð gegn Þór á Akureyri. Stjarnan hefur unnið alla sex leiki sína. Hversu mikla þýðingu hefur ósigurinn gegn Króötum í Zagreb varðandi möguleika karlalands- liðsins í fótbolta á að láta draum- inn um þátttöku á HM 2018 í Rússlandi rætast? Því verður sennilega ekki hægt að svara fyrr en langt verð- ur liðið á næsta ár. Það fer eftir því hvernig riðillinn þróast. Verða Króatar sér á báti og vinna þeir riðilinn með yfirburð- um? Þeir gætu það hæglega. Þá yrðu Ísland, Úkraína og Tyrkland væntanlega í hörðum slag um annað sætið sem gefur þátt- tökurétt í umspili. Með þeirri undantekningu að liðið með fæst stig í öðru sæti kemst ekki í um- spil. Eða munu Króatar tapa stig- um í næstu leikjum sínum, gegn Úkraínu og Íslandi? Þá yrði bar- áttan um efsta sætið heldur bet- ur galopin og hvert einasta stig og mark gæti haft úrslitaáhrif. Næsta umferð í riðlinum, sem er ekki leikin fyrr en 24. mars, mun gefa aðeins betri mynd af stöðunni, en eftir hana er riðlakeppnin hálfnuð. Þá leikur Ísland við Kósóvó á útivelli, Króatía tekur á móti Úkraínu og Tyrkir fá Finna í heim- sókn. Íslenskur sigur, jafntefli í Króatíu og tyrkneskur sigur: Kró- atía væri þá með 11 stig, Ísland 10, Úkraína 9 og Tyrkland 8. Fyrsti leikur í seinni umferð er svo Ísland – Króatía á Laugar- dalsvellinum í júní. Annar topp- slagur! Lykillinn að framhaldinu er samt alltaf næsti leikur og ís- lensku leikmennirnir mega ekki misstíga sig gegn Kósóvó. En það eru fjórir og hálfur mánuður til stefnu. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Stigahæstir, meðaltal: Amin K. Stevens, Keflavík 29,67 Tobin Carberry, Þór Þ. 26,33 Flen Whitfield, Skallagrími 26,33 Lewis Clinch, Grindavík 24,50 Brynjar Þór Björnsson, KR 22,50 Mamadou Samb, Tindastóli 22,00 Matthew Hunter, ÍR 21,17 Sefton Barrett, Snæfelli 19,67 Stoðsendingar, meðaltal: Pétur R. Birgisson, Tindastóli 7,17 Lewis Clinch, Grindavík 6,33 Emil Barja, Haukum 5,60 Justin Shouse, Stjörnunni 5,17 Hlynur Bæringsson, Stjörn. 4,83 Matthew Hunter, ÍR 4,83 Pavel Ermolinskij, KR 4,67 Sigtryggur Björnss., Skallag. 4,50 Tobin Carberry, Þór Þ. 4,50 Fráköst, meðaltal: Amin K. Stevens, Keflavík 15,83 Flen Whitfield, Skallagr. 14,33 Hlynur Bæringsson, Stjörn. 11,67 Sefton Barrett, Snæfelli 9,83 Mamadou Samb, Tindastóli 9,50 Ómar Örn Sævarsson, Grind. 9,33 Ólafur Ólafsson, Grindavík 9,17 Finnur A. Magnússon, Hauk. 8,83 Tobin Carberry, Þór Þ 8,33 Stevens og Pétur Rúnar efstir FREMSTIR Í HELSTU TÖLFRÆÐIÞÁTTUM Í DOMINOS-DEILD KA.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.