Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ
Á
atvinnubílasýningunni í
Hannover í Þýskalandi í
lok október frumsýndu
Toyota og Arctic Trucks
sameiginlega nýjan Toyota Hilux
Double Cab-pallbíl með svokallaðri
AT35-breytingu. Í grundvall-
aratriðum felur hún í sér sömu að-
gerðir og gerðar eru á öðrum bílum
frá Arctic Trucks sem hannaðir eru
til notkunar á heimskautasvæðum.
Pallbíllinn gengur undir nafninu
Toyota Hilux AT35. Hann hefur ver-
ið boðinn til sölu í Rússlandi frá 2015
en er nú einnig fáanlegur hér á landi
og í Noregi. Um þessar mundir er
unnið að skráningu á breytingu bíls-
ins fyrir Evrópumarkað sem gert er
ráð fyrir að klárist fyrir árslok. Er
þess að vænta að frá og með árs-
byrjun 2017 verði Toyota Hilux AT35
því fáanlegur á öllum mörkuðum í
Evrópu.
Helstu kostir breytingarinnar á
Toyota Hilux AT35 eru stærri dekk,
endurhönnuð fjöðrun til að bæta
aksturseiginleika og hækkun undir
lægsta punkt til að auka drif- og
akstursgetu við erfiðar aðstæður, svo
sem í snjó og aur.
Auk nýrrar ásýndar og spennandi
útlits sem AT35 framkallar eru
helstu kostir breytingarinnar þeir að
bíllinn hentar við mun breiðari að-
stæður en óbreyttur. Það á við hvort
sem hann er notaður til daglegra
nota innanbæjar, í atvinnurekstri eða
sem þægilegur fjölskyldubíll sem
nota má við margbreytilegar að-
stæður á láglendi sem hálendi.
Toyota og Arctic Trucks hafa í
nærri tvo áratugi unnið náið saman
að breytingum og markaðssetningu á
breyttum Toyota Hilux og Land
Cruiser jeppum. Samstarfið má
rekja allt aftur til ársins 1987, þegar
hugmynd um að senda tvo mikið
breytta Land Cruiser 80-bíla ásamt
íslenskum ökumönnum með Sænsku
pólstofnuninni til Suðurskautslands-
ins varð að veruleika.
Þar voru bílarnir notaðir við afar
erfiðar aðstæður til flutninga og vís-
indarannsókna og var þetta jafn-
framt í fyrsta sinn sem bílar voru
notaðir á Suðurskautslandinu. Leið-
angurinn sýndi fram á að mun hag-
kvæmara er að notast við bíla en
snjóbeltabíla og er þessi samgöngu-
máti nú fyrsta val þeirra sem hyggja
á erfiða leiðangra, bæði á Suð-
urskautslandinu og norðurheims-
skautssvæðinu þar sem bílar frá Arc-
tic Trucks hafa einnig verið notaðir
við hinar erfiðustu og köldustu að-
stæður.
Bílum Arctic Trucks hefur verið
ekið á báða pólana, en á Suðurskauts-
landinu er nú að finna flota bíla frá
Arctic Trucks sem notaður er af vís-
indamönnum á svæði þar sem ríkja
einhverjar erfiðustu veðurfarslegu
aðstæður í heiminum. Þess má geta
að ökumenn á bílum Arctic Trucks
settu heimsmet árið 2010 er þeir óku
á Suðurpólinn hraðar en nokkuð far-
artæki hafði áður gert. Auk Íslands
starfrækir fyrirtækið starfsstöðvar í
Noregi, Bretlandi, Rússlandi, Pól-
landi, Finnlandi og Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum.
agas@mbl.is
Breytingafyrirtækið í landvinningum sem endranær
Arctic Trucks-bíll senn
á alla markaði í Evrópu
Vígalegur Toyota Hilux AT35 á atvinnubílasýningunni í Hannover.
Tilbúinn Á Toyota Hilux AT35 eru stærri dekk, endurhönnuð fjöðrun og
hækkun undir lægsta punkt til að auka drif- og akstursgetu.
meðal má nefna Volvo. Hangir þetta
saman við vaxandi kröfur um
minnkun losunar gróðurhúsalofts
frá umferðinni á svæðum eins og
Kína og Kaliforníu í Bandaríkj-
unum. Þá þykir ljóst, að enn munu
mörg ár líða áður en hægt verður að
bjóða upp á vetnisbíla í stórum stíl.
Toyota telur sig ekki geta staðið
lengur gegn straumnum en japanski
bílrisinn hefur dregið bílsmiða
lengst að skella sér í framleiðslu raf-
bíla. Nú ætlar hann að ráða bót þar
á og boðar rafbíl um og kringum
2020.
Fyrsti batterísrafbíll Toyota á að
vera tiltækur fyrir ólympíuleikina
sem fram fara í Tókýó 2020 en fyr-
irtækið verður aðalstyrktaraðili
þeirra. Hefur það heitið því að allar
samgöngur sem leikunum tengjast
verði lausar við losun gróðurhúsa-
lofts.
Hér er um að ræða stefnubreyt-
ingu af hálfu Toyota sem ætlar ekki
að einskorða vistvæna bíla sína við
vetnisbílinn Mirai, að sögn við-
skiptablaðsins Nikkei. Með þessu má
fastlega gera ráð fyrir að sviptingar
verði á rafbílamarkaði þegar
Toyota mætir þar til leiks.
Heimildir blaðsins segja að verið
sé að þróa rafhlöður er bjóða upp á
verulega lengra drægi en rafbílar
búa við í dag. Ætlar Toyota að gefa
sér þrjú ár í að fullkomna þær. Fer
þróun bílsins á fulla ferð á miðju
næsta ári.
Aukin áhersla á rafbíla
Á stærstu bílasýningu heims, Par-
ísarsýningunni í byrjun október,
fókuseruðu nokkrir bílaframleið-
endur afar kröftuglega á rafbílinn.
Vart hafði Renault frumsýnt nýja og
tvöfalt langdrægari útgáfu af Zoe,
sem dregur 400 km, er Opel lét til
sín taka með nýjum Ampera-e sem
lofað er að dragi 500 km á fullri
hleðslu.
Hingað til hefur rafbílasala verið
afar lítið brot af heildarbílasölu víð-
ast hvar, nema í Noregi. Þetta gæti
átt eftir að breytast mjög á næstu
árum, meðal annars vegna hertari
regla um gegn bílmengun.
Tesla er eini framleiðandinn sem
smíðar eingöngu rafbíla með raf-
hlöðu. Af hefðbundnum bílsmiðum
hefur Renault/Nissan-samsteypan
framleitt hreina rafbíla, Nissan Leaf
og Renault Zoe, í nokkur ár. Nýlega
bættist Volkswagen við með e-Golf
en það hyggur á ennfrekari rafbí-
laþróun og -smíði á næstu árum.
Treg vetnisbílasala
Þá hafa fleiri bílaframleiðendur
ýmist hafist handa um þróun rafbíla
eða tilkynnt að þeir muni senn hefja
rafbílasmíði í stórum stíl, en þar á
Til marks um hversu stutt á veg
vetnisbílavæðingin er komin, svo og
þróun innviða fyrir vetnisbíla, hefur
Toyota aðeins selt 782 Mirai-
vetnisbíla um heim allan frá því
hann kom á markað í fyrra, að sögn
vefsetursins Electrec.
agas@mbl.is
Framtíðin er rafmögnuð hjá Toyota
Flopp Vetnisbíllinn Mirai hefur selst treglega.
Toyota hellir sér í rafbílasmíði
A
ustur í Kína kynnti Volvo í
síðustu viku nýjan lúx-
usbíl, S90 Excellence, í
tveimur útgáfum. Hann
er nokkurs konar boðberi nýrra
tíma fyrir vellauðuga sem hafa efni á
einkabílstjóra til að keyra sig um.
Bílarnir verða framleiddir í sam-
setningarsmiðjum Volvo í Daqing í
Kína og fluttir þaðan til annarra
markaðssvæða heims. Í raun er hér á
ferðinni betrumbætt útgáfa af Volvo
S90. Annars vegar er um að ræða of-
urlúxusbílinn S90 Excellence og S90
L sem er með lengra hjólhaf. Lúxus í
bílum þessum er ætlað að vera sá
mesti og besti í flokki lúxusbíla.
Nýi lúxusbíllinn er útfærður með
auðuga kínverska kaupendur í huga
sem vilja yfirleitt láta aka sér um
heldur en sitja sjálfir undir stýri. Í
stað farþegasætis í frambílnum er
komin upplýsingamiðstöð, niður-
fellanleg vinnuborð og stór tölvu-
skjár sem gerir að verkum að meira
rými er fyrir fætur aftursæt-
isfarþega.
Meðal annars hefur fremsta far-
þegasætið verið numið á brott, en
þannig gefst betra rými til að láta
fara vel um sig í aftursæti og eins til
að vinna í bílnum á ferð. Frágangur
bílþaksins býður upp á víðfeðmt út-
sýni.
Sem aflgjafa í S90 L-útgáfunni má
velja milli þriggja aflrása, 139kW
T4, 187kW T5 og 300kW T8
tengiltvinnaflrásar. Hins vegar
verður stórlúxusbíllinn S90 Excel-
lence aðeins fáanlegur með T8 ten-
giltvinn aflrás. Raðsmíði verður haf-
in á þeim fyrrnefnda núna í
nóvember en S90 Excellence mun
fyrst renna af færiböndunum á
næsta ári. Fylgir fregnum að hann
sé væntanlegur til Evrópu á næsta
ári, 2017.
Smíði þessara bíla er liður í vax-
andi samstarfi Volvo og dótt-
urfélagsins Geely, en útlit er fyrir að
sænski bílsmiðurinn verði fyrsti
vestræni bílaframleiðandinn sem
fjöldaframleiðir bíla í Kína til út-
flutnings á aðra markaði heimsins.
Volvo hóf í fyrra að selja til Banda-
ríkjanna Vovlo S60 Inscription sem
fjöldaframleiddur er nú í Daqing í
Kína.
agas@mbl.is
Hvað er ríkulegra en volvo S90? Jú, Volvo S90 Excellence.
Lúxus-Volvo án framsætis
Skóskáp mun ekki að finna í neinum lúxusbílum öðrum en Volvo S90 Ex-
cellence. Aukapar getur jú alltaf komið sér vel á viðskiptaferðalögum.
Volvo S90 Excellence býður upp á aukið rými fyrir farþega og vinnuað-
stöðu á ferðalögum, ef skrifa þyrfti undir eins og einn samning á ferð.