Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ
V
ið erum að leggja voðalega
mikla áherslu á þessar
tegundir bifreiða og höf-
um mikinn áhuga á vist-
vænum samgöngum, enda með ein-
stakar aðstæður á Íslandi til þess.
Þá er ég bæði að hugsa um raf-
magnsbílana, tengiltvinnbílana og
metanið.“
Þannig mælir Friðbert Friðberts-
son, forstjóri Heklu, við bílablað
Morgunblaðsins. Um helgina lauk
svonefndum vistvænum dögum
fyrirtækisins þar sem vistvænir
bílar voru í fyrirrúmi auk margs
konar fróðleiks og fræðslu sem boð-
ið var upp á.
Friðbert segir aðstæður til að
nýta metan í samgöngum á Íslandi
mjög sérstakar. „Þetta er,eins og
rafmagnið, innlendur orkugjafi.
Metanið er unnið úr rusli svo það er
skemmtilegt að geta gert eitthvað
gagnlegt úr því. Mér hefur fundist
metanið gleymast svolítið í um-
ræðum um vistvænar samgöngur.
Allir hafa mikinn áhuga á rafmagn-
inu en metanbílarnir hafa reynst al-
veg svakalega vel. Og auðvitað er
þetta ódýrari orkugjafi en bensín og
dísil.
Ný gas- og jarðgerðarstöð
Það eru forréttindi Íslendinga að
geta boðið upp á innlenda endur-
nýjanlega og vistvæna orkugjafa
svo sem metan og rafmagn. Þeir
gætu tekið forystu í notkun vist-
vænna bíla. Íslendingar njóta þeirra
einstöku náttúrugæða að hér á landi
er mögulegt að byggja stóran hluta
samgöngukerfisins á innlendum,
endurnýjanlegum og umhverfis-
vænum orkugjöfum. Við gætum
nánast verið sjálfbær í samgöngum,
eða farið langt með það, með met-
ani og rafmagni,“ segir Friðbert.
Fram kom á vistvænum dögum
að Sorpa væri með áform um stór-
aukna metanvinnslu með endur-
vinnslu sorps næstu árin. Stefnt er
að opnun nýrrar gas- og
jarðgerðarstöðvar á árinu 2018. Er
þetta liður í því að Reykjavíkurborg
hefur sett sér markmið um kolefnis-
hlutleysi og aðlögun að loftslags-
breytingum ásamt aðgerðaáætlun
til ársins 2020. Metanið hefur hlut-
verk í því að ná þessu markmiði.
Hekla býður upp á metanbíla frá
bæði Skoda og Volkswagen. Að
sögn Friðberts hafa vinsældir met-
anbílsins stóraukist undanfarin ár
og notendur verið mjög ánægðir
með þá.
40 mismunandi vistvænir bílar
Hekla býður upp á mikið úrval
vistvænna bíla. Segir Friðbert alls
vera hægt að fá yfir 40 mismunandi
bíltegundir og útfærslur í vistvæn-
um flokki frá Volkswagen, Audi,
Mitsubishi og Skoda. Þessir bílar
flokkist sem visthæfir og því sé
hægt að leggja gjaldfrjálst í annars
gjaldskyld bílastæði hjá Reykjavík-
urborg.
Á vistvænum dögum kynnti
Hekla fjölbreytt úrval raf- og ten-
giltvinnbílum. Þar má nefna Audi
A3 e-tron og Q7 e-tron, VW Golf
GTE, Passat GTE, e-up!, e-Golf og
Mitsubishi Outlander PHEV. Við
þetta tækifæri voru frumsýndir hér
á landi metanbíllinn Volkswagen
Eco up! og tengiltvinnbíllinn Audi
A3 e-tron. Gestum var boðið upp á
að reynsluaka þessum bílum.
50% fleiri bílar seldir í ár
Í samtalinu við Friðbert kemur
fram að tveir af hverjum þremur
vistvænu bílum sem seldir hafa ver-
ið Íslandi í ár séu seldir hjá Heklu.
Sala umboðsins á vistvænum bílum
er 50% meiri í ár en í fyrra. Í októ-
ber höfðu 996 vistvænir bílar selst á
Íslandi frá síðustu áramótum og þar
af seldi Hekla 663, eða 66,5%. Frið-
bert segir þetta endurspegla
vitundarvakning hjá neytendum
sem sé annt um umhverfið og vilji
aka vistvænum bílum.
„Sala vistvænna bíla hefur aukist
gríðarlega mikið frá í fyrra. Mark-
aðurinn er að stækka en þessum
bílum hefur líka verið rosalega vel
tekið. Svo hafa stjórnvöld sýnt
þessum málum áhuga. Rafbílarnir
eru með mjög hagstæð innflutn-
ingsgjöld og metanbílarnir líka.
Með þessu er stuðlað að frekari
markaðssetningu og þróun á vist-
vænum samgöngum, sem er til
bóta,“ segir Friðbert.
VW upptekið af
vistvænum bílum
Hann segir Volkswagen-
samsteypuna hafa verið mjög upp-
tekna af vistvænum bílum upp á
síðkastið og því sé hægt að bjóða
upp á margar gerðir bíla af því tagi.
Hið sama sé að segja um Skoda og
Audi. „Þetta mikla framboð og þessi
áhersla hefur virkað gríðarlega vel.
Við erum búin að bjóða upp á þessa
bíla frá 2013, byrjuðum með Mitsu-
bishi i-MiEV rafbílinn. Mig minnir
að hann hafi kostað einar 10 til 12
milljónir, en framboðið og mögu-
leikarnir hafa breyst alveg gríð-
arlega á fimm til sex árum.“
Eins og fyrr segir var boðið upp
á fyrirlestra og fróðleik á vistvæn-
um dögum Heklu auk kynningar á
bílum fyrirtækisins. Fulltrúar frá
fjölmörgum starfsgreinum sem
tengjast vistvænum samgöngum
kynntu starfsemi sína, vörur og
þjónustu. „Önnur fyrirtæki komu til
okkar og kynntu hvað þau eru að
gera á vettvangi vistvænna sam-
ganga. Það er auðvitað mikill áhugi
á þessu í samfélaginu.
Gasframleiðsla í Flóanum
Þarna sýndu fjölmargir aðilar
vörur, þjónustu og sérlausnir. Gest-
ir gátu kynnt sér rafbílaöpp,
hleðslulausnir, metantækni, orku-
dreifinet og vindmyllusmíði. Fyrir-
lestrar voru bæði í hádeginu og síð-
degis og fjölluðu sérfræðingar þar
meðal annars um framtíð vistvænna
bifreiða. Loks var fjallað um met-
anframleiðslu sem á sér stað í Fló-
anum, en í Hraungerði í Flóahreppi
framleiða kýrnar ekki bara mjólk
því mykjan er einnig virkjuð til
metaneldsneytis.
„Það var gaman að fá stúdenta úr
Háskólanum sem haft hafa það að
verkefni að smíða rafmagns kapp-
akstursbíl sem var til sýnis hjá
okkur. Það var mjög skemmtilegt
að kynnast því framtaki. Við hjá
Heklu erum annars voða spennt
fyrir framtíðinni. Fjöldi nýrra vist-
vænna bifreiða mun koma á mark-
aðinn á næstu árum og auka eftir-
spurn eftir innlendum orkugjöfum
og draga þannig ár frá ári úr nei-
kvæðum umhverfisáhrifum frá bif-
reiðum. Menn og konur hér í fyrir-
tækinu hafa sýnt því mikinn áhuga
að kynna möguleika á vistvænum
samgöngum,“ segir Friðbert Frið-
bertsson, forstjóri Heklu, að lokum.
agas@mbl.is
Vistvænir daga í Heklu í vikunni sem leið
Vistvænir bílar
eru í stórsókn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
„Sala vistvænna bíla hefur aukist gríðarlega mikið frá í fyrra. Markaðurinn er að stækka en þessum bílum hefur
líka verið rosalega vel tekið. Svo hafa stjórnvöld sýnt þessum málum áhuga,“ segir Friðbert Friðbertsson.
Önnur frumsýningarstjarnan á Vistvænum dögum Heklu. Metanbíllinn
Volkswagen eco up!
Gestir á vistvænum dögum Heklu fylgjast með fyrirlestri um metan-
framleiðslu.
Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron, sem frumsýndur er á Vistvænum dög-
um Heklu, á stalli sínum.
Nokkrir af liðsmönnum Team Spark, aðstandendur kappakstursbílsins
TS16, ásamt glöðum gesti undir stýri.
Rafbíllinn VW e-Golf sem erí eigu Landsvirkjunar rennir í hlað á Vistvæn-
um dögum Heklu.
Skoda Octavia G-Tec gengur fyrir metani og bensíni og átti því að sjálf-
sögðu heima á vistvænum dögum Heklu.