Morgunblaðið - 15.11.2016, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.11.2016, Qupperneq 4
4 | MORGUNBLAÐIÐ V ið erum að leggja voðalega mikla áherslu á þessar tegundir bifreiða og höf- um mikinn áhuga á vist- vænum samgöngum, enda með ein- stakar aðstæður á Íslandi til þess. Þá er ég bæði að hugsa um raf- magnsbílana, tengiltvinnbílana og metanið.“ Þannig mælir Friðbert Friðberts- son, forstjóri Heklu, við bílablað Morgunblaðsins. Um helgina lauk svonefndum vistvænum dögum fyrirtækisins þar sem vistvænir bílar voru í fyrirrúmi auk margs konar fróðleiks og fræðslu sem boð- ið var upp á. Friðbert segir aðstæður til að nýta metan í samgöngum á Íslandi mjög sérstakar. „Þetta er,eins og rafmagnið, innlendur orkugjafi. Metanið er unnið úr rusli svo það er skemmtilegt að geta gert eitthvað gagnlegt úr því. Mér hefur fundist metanið gleymast svolítið í um- ræðum um vistvænar samgöngur. Allir hafa mikinn áhuga á rafmagn- inu en metanbílarnir hafa reynst al- veg svakalega vel. Og auðvitað er þetta ódýrari orkugjafi en bensín og dísil. Ný gas- og jarðgerðarstöð Það eru forréttindi Íslendinga að geta boðið upp á innlenda endur- nýjanlega og vistvæna orkugjafa svo sem metan og rafmagn. Þeir gætu tekið forystu í notkun vist- vænna bíla. Íslendingar njóta þeirra einstöku náttúrugæða að hér á landi er mögulegt að byggja stóran hluta samgöngukerfisins á innlendum, endurnýjanlegum og umhverfis- vænum orkugjöfum. Við gætum nánast verið sjálfbær í samgöngum, eða farið langt með það, með met- ani og rafmagni,“ segir Friðbert. Fram kom á vistvænum dögum að Sorpa væri með áform um stór- aukna metanvinnslu með endur- vinnslu sorps næstu árin. Stefnt er að opnun nýrrar gas- og jarðgerðarstöðvar á árinu 2018. Er þetta liður í því að Reykjavíkurborg hefur sett sér markmið um kolefnis- hlutleysi og aðlögun að loftslags- breytingum ásamt aðgerðaáætlun til ársins 2020. Metanið hefur hlut- verk í því að ná þessu markmiði. Hekla býður upp á metanbíla frá bæði Skoda og Volkswagen. Að sögn Friðberts hafa vinsældir met- anbílsins stóraukist undanfarin ár og notendur verið mjög ánægðir með þá. 40 mismunandi vistvænir bílar Hekla býður upp á mikið úrval vistvænna bíla. Segir Friðbert alls vera hægt að fá yfir 40 mismunandi bíltegundir og útfærslur í vistvæn- um flokki frá Volkswagen, Audi, Mitsubishi og Skoda. Þessir bílar flokkist sem visthæfir og því sé hægt að leggja gjaldfrjálst í annars gjaldskyld bílastæði hjá Reykjavík- urborg. Á vistvænum dögum kynnti Hekla fjölbreytt úrval raf- og ten- giltvinnbílum. Þar má nefna Audi A3 e-tron og Q7 e-tron, VW Golf GTE, Passat GTE, e-up!, e-Golf og Mitsubishi Outlander PHEV. Við þetta tækifæri voru frumsýndir hér á landi metanbíllinn Volkswagen Eco up! og tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron. Gestum var boðið upp á að reynsluaka þessum bílum. 50% fleiri bílar seldir í ár Í samtalinu við Friðbert kemur fram að tveir af hverjum þremur vistvænu bílum sem seldir hafa ver- ið Íslandi í ár séu seldir hjá Heklu. Sala umboðsins á vistvænum bílum er 50% meiri í ár en í fyrra. Í októ- ber höfðu 996 vistvænir bílar selst á Íslandi frá síðustu áramótum og þar af seldi Hekla 663, eða 66,5%. Frið- bert segir þetta endurspegla vitundarvakning hjá neytendum sem sé annt um umhverfið og vilji aka vistvænum bílum. „Sala vistvænna bíla hefur aukist gríðarlega mikið frá í fyrra. Mark- aðurinn er að stækka en þessum bílum hefur líka verið rosalega vel tekið. Svo hafa stjórnvöld sýnt þessum málum áhuga. Rafbílarnir eru með mjög hagstæð innflutn- ingsgjöld og metanbílarnir líka. Með þessu er stuðlað að frekari markaðssetningu og þróun á vist- vænum samgöngum, sem er til bóta,“ segir Friðbert. VW upptekið af vistvænum bílum Hann segir Volkswagen- samsteypuna hafa verið mjög upp- tekna af vistvænum bílum upp á síðkastið og því sé hægt að bjóða upp á margar gerðir bíla af því tagi. Hið sama sé að segja um Skoda og Audi. „Þetta mikla framboð og þessi áhersla hefur virkað gríðarlega vel. Við erum búin að bjóða upp á þessa bíla frá 2013, byrjuðum með Mitsu- bishi i-MiEV rafbílinn. Mig minnir að hann hafi kostað einar 10 til 12 milljónir, en framboðið og mögu- leikarnir hafa breyst alveg gríð- arlega á fimm til sex árum.“ Eins og fyrr segir var boðið upp á fyrirlestra og fróðleik á vistvæn- um dögum Heklu auk kynningar á bílum fyrirtækisins. Fulltrúar frá fjölmörgum starfsgreinum sem tengjast vistvænum samgöngum kynntu starfsemi sína, vörur og þjónustu. „Önnur fyrirtæki komu til okkar og kynntu hvað þau eru að gera á vettvangi vistvænna sam- ganga. Það er auðvitað mikill áhugi á þessu í samfélaginu. Gasframleiðsla í Flóanum Þarna sýndu fjölmargir aðilar vörur, þjónustu og sérlausnir. Gest- ir gátu kynnt sér rafbílaöpp, hleðslulausnir, metantækni, orku- dreifinet og vindmyllusmíði. Fyrir- lestrar voru bæði í hádeginu og síð- degis og fjölluðu sérfræðingar þar meðal annars um framtíð vistvænna bifreiða. Loks var fjallað um met- anframleiðslu sem á sér stað í Fló- anum, en í Hraungerði í Flóahreppi framleiða kýrnar ekki bara mjólk því mykjan er einnig virkjuð til metaneldsneytis. „Það var gaman að fá stúdenta úr Háskólanum sem haft hafa það að verkefni að smíða rafmagns kapp- akstursbíl sem var til sýnis hjá okkur. Það var mjög skemmtilegt að kynnast því framtaki. Við hjá Heklu erum annars voða spennt fyrir framtíðinni. Fjöldi nýrra vist- vænna bifreiða mun koma á mark- aðinn á næstu árum og auka eftir- spurn eftir innlendum orkugjöfum og draga þannig ár frá ári úr nei- kvæðum umhverfisáhrifum frá bif- reiðum. Menn og konur hér í fyrir- tækinu hafa sýnt því mikinn áhuga að kynna möguleika á vistvænum samgöngum,“ segir Friðbert Frið- bertsson, forstjóri Heklu, að lokum. agas@mbl.is Vistvænir daga í Heklu í vikunni sem leið Vistvænir bílar eru í stórsókn Morgunblaðið/Styrmir Kári „Sala vistvænna bíla hefur aukist gríðarlega mikið frá í fyrra. Markaðurinn er að stækka en þessum bílum hefur líka verið rosalega vel tekið. Svo hafa stjórnvöld sýnt þessum málum áhuga,“ segir Friðbert Friðbertsson. Önnur frumsýningarstjarnan á Vistvænum dögum Heklu. Metanbíllinn Volkswagen eco up! Gestir á vistvænum dögum Heklu fylgjast með fyrirlestri um metan- framleiðslu. Tengiltvinnbíllinn Audi A3 e-tron, sem frumsýndur er á Vistvænum dög- um Heklu, á stalli sínum. Nokkrir af liðsmönnum Team Spark, aðstandendur kappakstursbílsins TS16, ásamt glöðum gesti undir stýri. Rafbíllinn VW e-Golf sem erí eigu Landsvirkjunar rennir í hlað á Vistvæn- um dögum Heklu. Skoda Octavia G-Tec gengur fyrir metani og bensíni og átti því að sjálf- sögðu heima á vistvænum dögum Heklu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.