Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.11.2016, Blaðsíða 18
Í dagbókum ungra efristétt- armanna og skálda frá fyrri öldum bregður stundum fyrir frásögnum af eldheitum ást- arsamböndum við íðilfagrar sígaun- astúlkur. Það dregur ekkert úr ást- arbálinu þótt þær séu erfiðar að tjónka við, sjálfstæðar og jafnvel hættulegar, og með öllu útilokað að fara með þær aftur heim á óðalið til að kynna fyrir fjölskyldunni. Hluti af sjarmanum er að aðra stundina eru þær blíðar og mjúkar og þá næstu hamslausar og grimmar. Þær eru yndislegar að eyða nokkrum dögum, vikum og mánuðum með, en verða seint lífsförunautar. Mér varð hugsað til þessara sígaunastúlkna fyrr í vetur þegar ég fékk að verja nokkrum rigning- ardögum með Alfa Romeo 4C Spi- der suður í Mílanó. Þar áttum við í stuttu en yndislegu ástarævintýri sem ég er samt hálfpartinn feginn að skuli vera að baki. Lítill og léttur Alfa Romeo 4C hefur verið kall- aður ódýrasti ofursportbíllinn. Fjög- urra strokka vélin framkallar að vísu ekki nema 240 ítölsk hestöfl en á móti kemur að allt hefur verið reynt til að gera þennan litla bíl létt- ari. Í coupé-útgáfunni, sem kom fyrst á markað árið 2013, er 4C ekki nema 895 kg að þyngd en spider- útgáfan, sem kom á markað 2014, er 45 kílóum þyngri. Meðal þess sem gerir bílinn svona laufléttan er að uppistöðugrindin er gerð úr koltrefjum, sem setur 4C í hóp með ofurbílum eins og LaFerr- ari og Aventador. Munurinn er sá að 4C myndi kosta í kringum 16 millj- ónir kominn á götuna á Íslandi en verðmiði LaFerrari og Aventador er á við gott einbýlishús. Þá ákváðu hönnuðir 4C að sleppa aflstýrinu til að létta bílinn enn frek- ar og um leið beintengja ökumann- inn við hverja minnstu hreyfingu framhjólanna og hverja dæld í mal- bikinu. Þeir létu meira að segja vera að koma fyrir pumpu til að halda uppi skottlokinu. Þess í stað þarf að halda lokinu uppi með því að skorða það á sínum stað með málmstöng. Svona er allt berstrípað til að skafa af kíló hér og þar. Útkoman er að bíllinn er innan við 4,5 sekúndur í hundraðið, sem er n.v. á sama reiki og Porsche 718 boxter. Fagrar línur Farþegarýmið er frekar fátæk- legt en hefur samt sinn sportlega sjarma. Sætin er ekki hægt að stilla öðruvísi en með verkfærum, og plastyfirbragð á mælaborði og tökk- um. Í stað hanskahólfs er agn- arsmár vasi til að geyma skrán- ingar- og skoðunargögn og á milli sætanna leynist box sem rúmar ekki mikið meira en hanska og sólgler- augu. Er útvarpstækið meira að segja af gömlu sortinni, í stað þess að vera hluti af innréttingunni. En 4C bætir upp fyrir naum- hyggjuna að innan með íburði að utan. Útlínurnar eru með öllu ómót- stæðilegar. 4C er pínkulítill en hönnunin lætur hann líta út fyrir að vera stærri. Að utan sver bíllinn sig í ættina, og minnir um margt á 8C sportbílinn sem Alfa Romeo fram- leiddi frá 2007 til 2010. Eins og vera ber með sportbíl var framkvæmt gláp-próf á götum Mil- anó, og þótt vegfarendur hafi ekki snarstöðvað og gapað gáfu margir bílnum auga. Hrifnastur af öllum var þó ungi starfsmaðurinn á bensínstöð suður af Mílanó, þar sem tekið var stutt stopp á meðan ljósmyndarinn skaust á salernið. Þar sem ég beið vissi ég ekki fyrr en andlit birtist á glugganum farþegamegin. Þar var bensíndælumaðurinn kominn að Ljósmynd / Youssef Diop Svo erfiður en svo yndislegur Fallegur er hann frá öllum hliðum en fallegastur aftanfrá og vekur eftirtekt gangandi vegfarenda. Bakpoki til viðmiðunar sýnir hvað skottið, við hlið vélarinnar, er smátt. + Hljóðið úr forþjöppunni minnir á geimskip. - Krefjandi bíll sem reynir á bæði andlega og líkamlega Alfa Romeo 4C Spider Reynsluakstur 1.75 l fjögurra strokka bensínvél m. túrbó 240 CV/ 350 Nm 6 gíra dual dry clutch 0-100 km/klst: 4,5 sek Hámarkshr.: 258 km/klst Afturhjóladrif 18” og 19” Eigin þyngd: 940 kg Mengunargildi: 157 g/km Eyðsla: 6,8 l/100 í bl. akstri Verð frá: Áætla má að 4C Spider kosti 16.000.000 kr. kominn til Íslands. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Vélin er staðsett nokurn veginn mitt á milli fram- og aft- urhjóla og 4C næstum jafnstór á lengdina og breiddina. Er bíllinn helst borinn saman við Porsche 718 Boxter og Lotus Elise. Það hellirigndi dagana sem prófunin fór fram og þurfti því að mynda undir skyggni. 18 | MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.