Morgunblaðið - 15.11.2016, Side 18
Í
dagbókum ungra efristétt-
armanna og skálda frá fyrri
öldum bregður stundum fyrir
frásögnum af eldheitum ást-
arsamböndum við íðilfagrar sígaun-
astúlkur. Það dregur ekkert úr ást-
arbálinu þótt þær séu erfiðar að
tjónka við, sjálfstæðar og jafnvel
hættulegar, og með öllu útilokað að
fara með þær aftur heim á óðalið til
að kynna fyrir fjölskyldunni. Hluti
af sjarmanum er að aðra stundina
eru þær blíðar og mjúkar og þá
næstu hamslausar og grimmar. Þær
eru yndislegar að eyða nokkrum
dögum, vikum og mánuðum með, en
verða seint lífsförunautar.
Mér varð hugsað til þessara
sígaunastúlkna fyrr í vetur þegar ég
fékk að verja nokkrum rigning-
ardögum með Alfa Romeo 4C Spi-
der suður í Mílanó. Þar áttum við í
stuttu en yndislegu ástarævintýri
sem ég er samt hálfpartinn feginn
að skuli vera að baki.
Lítill og léttur
Alfa Romeo 4C hefur verið kall-
aður ódýrasti ofursportbíllinn. Fjög-
urra strokka vélin framkallar að
vísu ekki nema 240 ítölsk hestöfl en
á móti kemur að allt hefur verið
reynt til að gera þennan litla bíl létt-
ari. Í coupé-útgáfunni, sem kom
fyrst á markað árið 2013, er 4C ekki
nema 895 kg að þyngd en spider-
útgáfan, sem kom á markað 2014, er
45 kílóum þyngri.
Meðal þess sem gerir bílinn svona
laufléttan er að uppistöðugrindin er
gerð úr koltrefjum, sem setur 4C í
hóp með ofurbílum eins og LaFerr-
ari og Aventador. Munurinn er sá að
4C myndi kosta í kringum 16 millj-
ónir kominn á götuna á Íslandi en
verðmiði LaFerrari og Aventador er
á við gott einbýlishús.
Þá ákváðu hönnuðir 4C að sleppa
aflstýrinu til að létta bílinn enn frek-
ar og um leið beintengja ökumann-
inn við hverja minnstu hreyfingu
framhjólanna og hverja dæld í mal-
bikinu. Þeir létu meira að segja vera
að koma fyrir pumpu til að halda
uppi skottlokinu. Þess í stað þarf að
halda lokinu uppi með því að skorða
það á sínum stað með málmstöng.
Svona er allt berstrípað til að skafa
af kíló hér og þar. Útkoman er að
bíllinn er innan við 4,5 sekúndur í
hundraðið, sem er n.v. á sama reiki
og Porsche 718 boxter.
Fagrar línur
Farþegarýmið er frekar fátæk-
legt en hefur samt sinn sportlega
sjarma. Sætin er ekki hægt að stilla
öðruvísi en með verkfærum, og
plastyfirbragð á mælaborði og tökk-
um. Í stað hanskahólfs er agn-
arsmár vasi til að geyma skrán-
ingar- og skoðunargögn og á milli
sætanna leynist box sem rúmar ekki
mikið meira en hanska og sólgler-
augu. Er útvarpstækið meira að
segja af gömlu sortinni, í stað þess
að vera hluti af innréttingunni.
En 4C bætir upp fyrir naum-
hyggjuna að innan með íburði að
utan. Útlínurnar eru með öllu ómót-
stæðilegar. 4C er pínkulítill en
hönnunin lætur hann líta út fyrir að
vera stærri. Að utan sver bíllinn sig
í ættina, og minnir um margt á 8C
sportbílinn sem Alfa Romeo fram-
leiddi frá 2007 til 2010.
Eins og vera ber með sportbíl var
framkvæmt gláp-próf á götum Mil-
anó, og þótt vegfarendur hafi ekki
snarstöðvað og gapað gáfu margir
bílnum auga.
Hrifnastur af öllum var þó ungi
starfsmaðurinn á bensínstöð suður
af Mílanó, þar sem tekið var stutt
stopp á meðan ljósmyndarinn
skaust á salernið. Þar sem ég beið
vissi ég ekki fyrr en andlit birtist á
glugganum farþegamegin. Þar var
bensíndælumaðurinn kominn að
Ljósmynd / Youssef Diop
Svo erfiður en svo yndislegur
Fallegur er hann frá öllum hliðum en fallegastur aftanfrá og vekur eftirtekt gangandi vegfarenda.
Bakpoki til viðmiðunar sýnir hvað skottið, við hlið vélarinnar, er smátt.
+
Hljóðið úr forþjöppunni
minnir á geimskip.
-
Krefjandi bíll sem
reynir á bæði andlega
og líkamlega
Alfa Romeo
4C Spider
Reynsluakstur
1.75 l fjögurra strokka
bensínvél m. túrbó
240 CV/ 350 Nm
6 gíra dual dry clutch
0-100 km/klst: 4,5 sek
Hámarkshr.: 258 km/klst
Afturhjóladrif
18” og 19”
Eigin þyngd: 940 kg
Mengunargildi: 157 g/km
Eyðsla: 6,8 l/100 í bl. akstri
Verð frá: Áætla má að
4C Spider kosti 16.000.000 kr.
kominn til Íslands.
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Vélin er staðsett nokurn veginn mitt á milli fram- og aft-
urhjóla og 4C næstum jafnstór á lengdina og breiddina. Er
bíllinn helst borinn saman við Porsche 718 Boxter og Lotus
Elise. Það hellirigndi dagana sem prófunin fór fram og
þurfti því að mynda undir skyggni.
18 | MORGUNBLAÐIÐ