Morgunblaðið - 18.11.2016, Page 4

Morgunblaðið - 18.11.2016, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 linisB Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Krónan, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó, Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin er komið aftur Vegna veðurs var ekki unnið við undirstöður mastra og reisingu á háspennulínunum út frá Þeista- reykjavirkjun í gær. Verktaki sem sér um samsetn- ingu og reisingu mastranna áætlaði að reisa möstur í gær. Það frestast þar til veður skánar en samkvæmt upplýsingum Landsnets nýtti verk- takinn daginn til að tæma gáma og undirbúa vinnuna framundan. Verktakar sem undirbúa og steypa undirstöður bíða einnig á meðan veðrið gengur yfir. Staðan verður metin eftir helgina og vinnu haldið áfram um leið og fært verður. Eins og fram hefur komið hafa framkvæmdir við Bakkalínur tafist um vikur eða mánuði vegna galla sem taldir voru á framkvæmdaleyf- um sveitarfélaganna. Óttaðist Landsnet að ekki næðist að ljúka lágmarks undirbúningi fyrir vet- urinn. Ný framkvæmdaleyfi voru gefin út og nú eru slík leyfi í gildi fyrir alla línuleiðina. helgi@mbl.is Ekkert unnið við Bakkalínur „Við þurftum að aflýsa nokkrum ferðum vegna veðurs, en um er að ræða leiðir sem að hluta til liggja upp á há- lendið,“ segir Einar Bárðarson, rekstrarstjóri Reykjavík Excursions, og vísar í máli sínu til ferða fyrirtæk- isins út á Snæfellsnes, að Reyn- isfjöru og upp á Langjökul. „Við leggjum mikla áherslu á ör- yggi og því ákváðum við heldur að aflýsa þessum vinsælu ferðum en að halda út í einhverja óvissu með far- þega okkar,“ segir Einar og bendir á að þeir farþegum sem bókað höfðu sæti í áðurnefndar ferðir hafi m.a. verið boðið í ferðir á aðra áfangastaði eða endurgreiðslu. „Það gekk vel að leysa úr þessu enda fylgjumst við grannt með veðri og erum vel undirbúnir þegar kemur að því að takast á við svona lagað.“ khj@mbl.is Urðu að aflýsa vin- sælum rútuferðum Rútur Veðrið hefur áhrif á ferðamenn Nokkuð var um að skólahald á Norðurlandi raskaðist í áhlaupinu í gær, svo sem í Stórutjarnaskóla í Ljósavatnsskarði í Suður- Þingeyjarsýslu. Sömu sögu er að segja um Húnavallaskóla í Austur- Húnavatnssýslu. Þá var skóla- akstur í Fjallabyggð felldur niður og höfðu foreldrar barna sjálfdæmi um hvort þau sendu börnin í skólana, sem eru í Ólafsfirði og á Siglufirði. sbs@mbl.is Skólahald raskaðist vegna veðurs nyrðra Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Björgunarsveitarmenn þurftu að aðstoða fjölda ökumanna á Norður- og Austurlandi í gær þegar fyrsta vetrarhretið gekk yfir. Víða á svæðinu frá Skagafirði og austur á land var stíf norðanátt með élja- gangi og hvassvirði. Því fylgdi að víða var skafrenningur og kóf svo að ekkert ferðaveður var á hæstu fjallvegum. Þurfti meðal annars að hjálpa ökumönnum í Vatnsskarði í Húnavatnssýslu og á Fjarðarheiði milli Héraðs og Seyðisfjarðar. Þá var vonskuveður á Möðrudals- öræfum og Háreksstaðaleið og fáir lögðu í ferðalög um þær slóðir. Fólk fylgdi veðurspánni Þorsteinn G. Gunnarsson, upp- lýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að þrátt fyrir þetta hafi útköllin verið heldur færri í gær en stund- um hefur gerst í álíka veðri. Fólk hafi almennt farið eftir veðurspá og ekki lagt í langferðir. Innanbæjar á Akureyri gekk allt skaplega fyrir sig. Þar snjóaði nokkuð í gær og fyrrinótt og sum- ar götur voru mokaðar í bítið. Veð- ur var þokkalegt í bænum og um- ferð gekk greiðlega. Raunar náði ruddinn í veðráttunni alveg suður á land, svo meðal annars þurfti að loka veginum um Skeiðarársand og í Öræfasveit, milli Núpsstaðar og Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi. Á suðvesturhorninu þurfti að loka vegunum um Kjósarskarð, Mos- fellsheiði og Lyngdalsheiði vegna veðurs. Þá var hálka og snjóþekja á vegum á Suðurlandi, svo sem í Þrengslum og á Hellisheiðinni þar sem skafrenningur bættist svo við. Þá var nokkuð um rafmagns- truflanir á Snæfellsnesi vegna óveðursins, en slíkt vill gerast þeg- ar krapi sest á háspennulínur. Lína við Vegamót á sunnanveðu Nesinu féll niður og hékk lágt yfir veg- inum. Þá fór rafmagn af Grund- arfirði, Stykkishólmi og á Skógar- strönd. Það varði þó aðeins skamma stund svo að auðvelt var að koma varaaflsstöð í gang. Í fyrrinótt voru einnig truflanir á Hegraneslínu í Skagafirði Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Vetrarveður Akureyringar fengu fyrst að kenna á veðrinu í gær, en þó sköpuðust engin vandræði innanbæjar. Ekkert ferðaveður í fyrsta hreti vetrarins  Stíf norðanátt og fjallvegir tepptir  Lokað í Öræfasveit Að morgni 16. nóvember sýndi kvikasilfurslágmarks- mælir í Reykjavík -0,3 stig. Það er fyrsta frostið á þessu hausti. Þetta segir Sigurður Þór Guðjónsson veður- sagnfræðingur á bloggi sínu í gær. Sigurður bætir við að aldrei hafi fyrsta frost að hausti komið jafn seint og nú. Gamla metið var 11. nóv- ember árið 1939. „Það ár skartar þó enn flestum frost- lausum dögum frá vori til hausts eða 202 dögum. En næst að því leyti er einmitt okkar ár með 200 daga,“ segir Sigurður. Meðaltal fyrsta frosts á þessari öld er 9. október en næstu 60 árin þar á undan 5.-6. október. Lengd frostlausa tímabilsins frá vori til hausts á okkar öld til 2015 er 149 dagar en frá 1920 til 2015 144 dagar. Á miðvikudag og fimmtudag var talin flekkótt jörð af snjó í Reykja- vík en þar hefur enn ekki orðið allhvít jörð. sisi@mbl.is Frostlaust var 200 daga í röð FYRSTA FROST HAUSTSINS KOM 16. NÓVEMBER Sigurður Þór Guðjónsson Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Ekkert hefur þokast í samkomulags- átt í kjaradeilu Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (FT) og sveitarfélaganna. Samningar þeirra hafa nú verið lausir frá 31. október í fyrra. Sáttafundur sem boðað var til í fyrradag skilaði ekki árangri en talsmenn félagsins binda þó vonir við að meiri hreyfing komist á málið eft- ir að ríkissáttasemjari tók deiluna að sér. ,,Við vonumst til þess að það verði marksvissari vinnubrögð og betur haldið á spilunum,“ segir Dag- rún Hjartardóttir, stjórnarmaður í FT. Ekki hefur verið boðað til nýs sáttafundar í deilunni. Tónlistarkennarar benda á að þeir hafi misst úr eina samningalotu í tengslum við efnahagshrunið 2008 og því verði að laga það misgengi launa sem þeir hafa mátt búa við miðað við sambærilega hópa. Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður Kennarasambands Ís- lands, segir í pistli á vefsíðu KÍ að himinhrópandi tómlæti ríki í garð tónlistarmenntunar þrátt fyrir fögur orð um gildi hennar. „Stefna sveitar- félaga er að sambærileg og jafnverð- mæt störf eigi að launa með sama hætti. Ekki er hægt að segja að það háttalag sem viðsemjandinn hefur sýnt af sér við samningaborðið svo mánuðum skiptir sé í samræmi við þessa stefnu,“ skrifar hún. Spurð hvort tónlistarkennarar séu farnir að ræða aðgerðir til að knýja á um gerð samninga segir Dagrún að fundir eigi sér nú stað um allt land og trúnaðarmenn séu að gera sveitar- stjórnum grein fyrir stöðunni. Hún segir að ekkert nýtt hafi komið frá sveitarfélögunum við samningaborðið. „Við erum ekki að fara fram á neitt í líkingu við hækk- anir kjararáðs. Við erum bara að biðja um að komast aftur á sama stað og við vorum á og það verði leiðrétt sem upp á vantar. Það eru engin haldbær rök fyrir þeim launamun sem er á milli sambærilegra hópa. Við eigum mjög erfitt með að kyngja því að við eigum að vera 15% neðar en sambærilegir hópar.“ Engin lausn í sjónmáli  Tónlistarkennarar ræða stöðuna á fundum um allt land  „Himinhrópandi tómlæti“ í garð tónlistarmenntunar „Viðræðurnar þokast áfram og við fundum áfram,“ segir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakenn- ara. Samninga- nefndir félagsins og Sambands ís- lenskra sveitarfé- laga sátu á löngum fundi hjá ríkissáttasemjara í gær, hvar farið var yfir stöðu mála í kjaraviðræðunum. Sem kunnugt er hafa kennarar við grunnskólana ver- ið samningslausir í hálft ár og hafa tvívegis fellt gerðan kjarasamning. Kraumandi óánægja er í stéttinni með launamál og margir kennarar hafa sagst munu róa á ný mið fáist ekki kjarabætur. Ólafur Loftsson segir að launamál og vinnutími hafi einkum og helst verið til umræðu á fundinum í gær. Á fyrri stigum hafi viðsemjendum borið mikið á milli í þeim efnis- þáttum sem aftur hafi ráðið því að deilunni var vísað til ríkissáttasemj- ara til úrlausnar. sbs@mbl.is Kennara- viðræður þokast  Laun og vinnutími Ólafur Loftsson Grunur er um að erlendur karl- maður hafi verið að verki í fjórum vopnuðum ránum að undanförnu. Fyrsta ránið var framið 26. sept- ember í Bílaapótekinu við Hæð- arsmára í Kópavogi þar sem maður kom þar inn vopnaður hníf og ógn- aði starfsfólki. Hinn 5. nóvember var sömu aðferð beitt í ráni í apó- teki í Suðurveri í Reykjavík og fáum dögum síðar þegar Apótek Ólafsvíkur var rænt. Þar var par að verki sem náðist svo á sunnanverðu Snæfellsnesi. Tveir menn voru svo handteknir á þriðjudagskvöld eftir rán í Apóteki Suðurnesja í Kefla- vík. Voru þeir enn í haldi síðast þegar mbl.is gat fengið upplýs- ingar. Málin eru í rannsókn Grunaður um fjögur rán í lyfjaverslunum Hagar, sem reka m.a. Bónus og Hagkaup, hafa samið við Lindar- hvol ehf. um kaup á Lyfju. Verð- miðinn er 6,7 milljarðar króna. Með kaupunum fylgja dótturfélögin Heilsa ehf. og Mengi ehf. en Lyfja rekur samtals 39 apótek, útibú og verslanir, auk lyfjaskömmtunar, um land allt undir merkjum Lyfju, Apóteksins og Heilsuhússins. Hagar kaupa Lyfju fyrir 6,7 milljarða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.