Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Listahátíðin Sequences fagnar 10 ára afmæli hátíðarinnar á morgun, laugardag, og býður alla velkomna til hátíðarhalda af því tilefni. „Sequences er tvíæringur haldinn á oddatöluárum en var haldinn ár- lega til að byrja með. Okkur fannst ómögulegt annað en að fagna tíu ára af- mæli. Sequences hefur orðið til með sam- takamætti ótrú- lega margra listamanna, stofnana og lista- mannarekinna rýma og hefur þess vegna náð að lifa svona lengi. Því ber að fagna,“ segir Edda Kristín Sigurjónsdóttir, einn skipuleggjenda. „Það er svo mikið sem hefur gerst í listasenunni hér á þessum árum og Sequences hefur átt drjúg- an þátt í því, með því að vera vett- vangur til þess að draga fram og sýna það sem er í gangi. Töluverð- ur fjöldi af listamönnum erlendis frá hefur komið hingað í tengslum við Sequences. Það er fólk sem hef- ur gjarnan komið aftur eða tengst ákveðnum listamönnum. Þegar maður er á svona afskekktri eyju norður í hafi þarf maður að vera vakandi og opinn fyrir alþjóðlegum straumum. Það er mikilvægt að vera í góðum tengslum við senuna í öðrum löndum. Sequences hefur verið mikilvægur hlekkur í því og við viljum passa upp á það og leggj- um áherslu á að þetta er alþjóðleg hátíð, ekki bara norræn eða íslensk. Þessi alþjóðlegi vinkill stækkar sen- una hér og maður sér að þessir angar leiða víða til útlanda,“ segir hún en Sequences er vettvangur fyrir framsækna og tilraunakennda myndlist. „Alþjóðlega listasenan er mjög stór og það er möguleiki á því að hingað komi sífellt fleira áhugafólk og fagfólk í myndlist,“ segir hún að- spurð hvort hátíðin trekki að. Liður í þessari tengingu við út- lönd er að sýningarstjóri síðustu hátíðar og þeirrar næstu eru er- lendir. Margot Norton verður sýn- ingarstjóri Sequences VIII, sem fer fram á tíu dögum í október 2017. „Hún er sýningarstjóri í New Museum í New York sem er eitt af framsæknari söfnunum. Hún er bú- in að vera að gera frábæra hluti þar og hefur unnið víða, meðal ann- ars við Whitney-tvíæringinn,“ segir Edda. Hún segir Sequences vera stað sem sýningarstjórarnir geti gert aðra hluti en á sínum föstu vinnu- stöðum. Keppt í myndlist „Þetta er öðruvísi vettvangur. Þetta er hátíð sem hefur skýrt hlut- verk og er vel skilgreind en rýmin eru ekki föst og dagskráin er ekki heldur. Hún er ekki alveg búin að fullmóta þann lista listamanna sem hún ætlar að bjóða en þessir sem kynntir eru til leiks nú eru nokkrir af þeim sem hún er nú þegar búin að bjóða.“ Opin skúlptúrkeppni í Mengi er á meðal þess sem fram fer á laug- ardaginn. „Þetta verður útslátt- arkeppni. Hún verður opin, það get- ur hver sem er tekið þátt en það er takmarkaður fjöldi þátttakenda. Það verður efniviður á staðnum, stjórnendur og dómarar. Myndlist er venjulega ekki bein keppn- isíþrótt en það var ákveðið að taka keppnisvinkil á þetta og hafa út- sláttarkeppni sem endar með ein- hverskonar einvígi. Ég held það verði mjög skemmtilegt,“ segir hún. Áhugavert bjölluverk eftir David Horvitz verður í Listasafni Íslands. „Sólin er hæst á lofti kl. 13.13 þennan dag. Það er reglan sem listamaðurinn hefur búið til við þetta ákveðna verk að það sé virkj- að þegar sólin sé hæst á lofti. Hann setti þetta verk meðal ann- ars upp í New Museum fyrir nokkru og okkur þótti tilvalið að setja það upp núna í tilefni af þessu afmæli,“ segir hún en listamaðurinn verður viðstaddur. Samhljómur og tónn ein- staklingsins „Þetta verk fjallar líka um sam- hljóminn og tón hvers og eins. Gjörningurinn byrjar þannig að all- ir þeir sem taka þátt í honum hringja bjöllunum og finna sam- hljóm og ganga svo hver sína leið út úr safninu og hringja sinni bjöllu þangað til þeir heyra bara í sinni bjöllu því þá hefur fólk dreifst um borgina. Þetta er ofboðslega fallegt verk,“ segir hún en það sam- anstendur af tæplega fimmtíu bjöll- um. Edda segir Sequences vera hátíð sem líðist að vera flæðandi og breytast. „Hún var síðast haldin í apríl 2015 en verður næst haldin í október. Þetta lýsir dálítið eðli hennar. Það er verið að næra ein- hvern frumkraft sem við viljum passa dálítið upp á,“ segir hún. Hátíðahöldin nú eru því nokkurs konar brú yfir í næstu hátíð og for- spil að stóru hátíðinni næsta haust. Samtakamætti listamanna fagnað  Listahátíðin Sequences heldur upp á 10 ára afmæli Edda Kristín Sigurjónsdóttir Á dögunum fór fram árviss samkeppni Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands og Listaháskólans þar sem valdir eru ung- ir tónlistarmenn sem fá að koma fram með hljómsveit- inni. Að þessu sinni kepptu tólf um heiðurinn, en allir stunda þeir söng- eða hljóðfæranám á bakkalárstigi. Fyrir valinu urðu þær Auður Edda Erlendsdóttir klarínettuleikari, Herdís Mjöll Guðmundsdóttir fiðluleik- ari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari og Jóna G. Kolbrúnardóttir söngkona. Sigurvegararnir munu koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborgarsal Hörpu 12. janúar næstkomandi. Petri Sakari stjórnar. Fjórar valdar til að koma fram með SÍ Ungir einleikarar Haldið verður upp á tíu ára afmæli Sequences á morg- un, laugardag. Hátíðarhöldin hefjast kl. 12.45 í Lista- safni Íslands. Margot Norton, sýningarstjóri næstu há- tíðar, kynnir áherslur næstu hátíðar og heiðurslistamann. Hún segir einnig frá verki Davids Horvitz, „Let Us Keep Our Own Noon“ sem verður til sýnis í Listasafni Íslands fram að vetrarsólstöðum 21. desember. Verkið samanstendur af 47 bjöllum sem steyptar voru upp úr franskri bronskirkjuklukku frá 1742. Þegar sólin er hæst á lofti, sem verður kl. 13.13 þennan dag, býðst áhorfendum að taka sér bjöllu, hringja henni og taka hana með sér á göngu út úr safninu og hringja inn sitt eigið hádegi áður en þeir skila bjöllunum aftur á sinn stað. Þaðan verður haldið í Mengi þar sem boðið verður upp á afmælistertu og fram fer opin skúlptúrkeppni. Rebecca Moran sýnir nýlegt verk og DJ Tilfinninganæmur (Ragnar Kjartansson) leikur létta stemningsmúsík. GIF-hreyfimyndir eftir hóp listamanna sem Hildigunnur Birgisdóttir hef- ur valið koma við sögu og dagskránni lýkur með opnun hljóðinnsetning- arinnar Dagrenning að eilífu eftir Ragnar Helga Ólafsson, sem standa mun fram að næstu hátíð. Upplýst verður um staðsetninguna á afmæl- isdaginn. Bjöllur, skúlptúr og tónlist HÁTÍÐARHÖLD Á LAUGARDAG Margot Norton Ráðgjöf og þjálfun nolta.is Þú sérð betur með sér framleiddum glerjum eftir þínum þörfum LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 ALLT Í FÓKUS NÆR OG FJÆR SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 Helstu kostir kerranna eru: • 7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun. • Stórar legur í hjólnáum og 6,50 x 16“ dekk. • Plast á fjaðraendum dregur úr hávaða. • Hraðlæsing á afturhlera. • Öryggislæsing á dráttarkúlu. • Hluti framhlera opnanlegur sem auðveldar upprekstur gripa á kerruna. • Heilsoðinn botnplata við hliðar einfaldar þrif og eykur styrk kerrana. Kr.1.390.000 Einnig sturtukerrur, flatvagnar og vélakerrur! + vs k Kr. 1.723.600 með vsk. Gripakerrur Höfum hafið innflutning á vönduðum breskum gripakerrum frá framleiðandanum Indespension. Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is Ve rð og bú na ðu rb irt ur m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur og /e ða m yn da br en gl . Ljósmyndir/New Museum-Benoit Pailley Gjörningur Bjölluverk Davids Horvitz var sett upp í New Museum í New York fyrir nokkru.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.