Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.11.2016, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2016 Auður Ómarsdóttir myndlistarkona opnar sýningu í dag, föstudag, kl. 17 í Gallery Porti að Laugavegi 32b. Sýninguna kallar hún From the front to the beginning. Á sýningunni eru ný verk sem Auður hefur unnið í mismunandi miðla og eru þau innblásin af dvöl hennar í Þýskalandi undanfarna mánuði. Verkin fjalla um end- urtekningu upphafsins í ástum og sorgum, hið stöðuga fall og endur- uppbyggingu veraldarinnar frá sjónarhorni tvíhyggju. Auður segist velja sér efni að vinna með út frá því hvað tali til hennar hverju sinni. „Ný sýni ég aðallega tvívíð verk, málverk og teikningar, en þó eru líka þrívíðir skúlptúrar á sýningunni – og ljós- myndir hér og þar,“ segir hún. Er sýningin meiri innsetning en stök verk? „Ég myndi segja það. Þetta er mjög persónulegt, það er sjálfs- ævisöguleg nálgun í verkunum. Gestir sjá úrvinnslu síðustu mán- aða, í ýmsum myndum.“ Þegar spurt er hvort myndlistin virki vel til að takast á við sjálfa sig og persónulega reynslu svarar hún játandi. „Ég var í Berlín í sumar og fylltist miklum sköp- unarkrafti, og fór þá að takast á við að skrásetja augnablik og upp- lifanir í teikningum. Hjá mér kvikna verkin mikið út frá teikn- ingu og ég teikna líka mikið á striga. Nú í september vann ég síðan látlaust í tíu daga í eina 90 síðna skissubók og fyllti hana al- veg, það er áþreifanleg skráning á þeim tíma og allt tengist það við tímann á undan og eftir. Þessar teikningar eru á sýningunni og tengja saman hin verkin sem eru á henni.“ Auður útskrifaðist úr Listahá- skóla Íslands árið 2013. Þetta er þriðja einkasýning hennar eftir nám en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga. Morgunblaðið/Ófeigur Sköpunarkraftur Verk Auðar eru innblásin af Berlínardvöl. Sjálfsævisöguleg nálgun í verkunum  Auður Ómarsdóttir í Gallery Porti Fyrir fimmtán árum keypti gítarleik- arinn heimskunni Eric Clapton á upp- boði þrjú rúmlega tveggja metra há og tengd abstraktmálverk eftir Ger- hard Richter, einn þekktasta og eftir- sóttasta myndlistarmann Þýskalands í dag. Clapton greiddi fyrir verkin 3,4 milljónir Bandaríkjadala, um 385 milljónir króna. Málverkin eru talin meðal lykilverka Richters frá því um miðjan tíunda áratuginn. Fyrir fjórum árum seldi Clapton síðan fyrsta verkið af þessum þremur á uppboði fyrir 34,3 milljónir dala, ári síðar annað verkið fyrir 20,9 milljónir dala og nú í vikunni var þriðja verkið, Abstraktes Bild (809-2), síðan slegið hæstbjóðanda á uppboði hjá Sothe- by’s, fyrir 22,1 milljón dala. Listrýnar erlendra fjölmiðla segja ávöxtun Clap- ton af verkunum þremur vera með eindæmum góða, þau voru samtals seld fyrir hátt í 8,8 milljarða króna og er hagnaður gítarleikarans af fjárfest- ingunni því nær 8,4 milljarðar ís- lenskra króna, um 74 milljónir dala. Barist um verk Davids Bowie Clapton er ekki eini dægurtón- listarmaðurinn sem hefur notið þess að safna samtímamyndlist, og gert það af ástríðu, því þegar David Bowie lést fyrr á árinu skildi hann eftir sig myndarlegt safn af myndlist og list- gripum. Bowie var ekki bara safnari því um tíma var hann einnig virkur í ritstjórn Art Review-tímaritsins. Fyrir viku hélt Sotheby’s fyrsta upp- boðið af þremur á hundruðum fjöl- breytilegra verka úr eigu Bowie og vakti það mikla athygli – segja rýnar það hafa hækkað verð verkanna veru- lega að þau hafi verið í eigu tónlistar- mannsins vinsæla. Hart var boðið í mörg verkanna, með þeim afleiðingum að verðmet voru sett fyrir tólf listamannanna. Alls voru seld verk fyrir 277 milljónir Bandaríkjadala, 31 milljarð króna, sem er mun meira en verðmatið upp á 217 milljónir dala. Eitt málverk eftir Bowie sjálfan, kallað Beautiful, Hallo, Space-boy Pa- inting, sem hann vann með stjörnu- listamanninum Damien Hirst, var slegið hæstbjóðanda fyrir um 110 milljónir króna. Verðmætasta verkið á uppboðinu var þó málverk eftir Jean- Michel Basquiat frá 1984 sem var metið á 3,5 milljónir breskra punda en slegið hæstbjóðanda fyrir rúmar sjö milljónir punda, um einn milljarð króna. Annað verk eftir Basquiat, mun minna, var síðan slegið fyrir um 100 milljónir króna. Næstverðmætasta verkið var port- rett eftir Frank Auerbach, sem Bowie mun hafa dáð mikið, en það var selt fyrir 3,8 milljónir punda – rúmlega hálfan milljarð króna – hátt yfir mats- verði. efi@mbl.is Hagnaður Clapton um 8,4 milljarðar Verðmætt Abstraktes Bild (809-2) eftir Gerhard Richter. Ævintýri Newt Scamander í leynilegu samfélagi norna og galdramanna í New York, sjötíu árum áður en Harry Potter les bók hans í skólanum. Bönnuð yngri en 9 ára. Metacritic 72/100 IMDb 8,5/10 Laugarásbíó 18.00, 21.00 Sambíóin Álfabakka 16.00, 17.00, 19.00, 20.00, 22.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.10, 19.00, 20.00, 22.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 17.00, 18.00, 20.00, 21.00, 22.45 Sambíóin Akureyri 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Keflavík 17.15, 20.00, 22.45 Fantastic Beasts and Where to Find Them Doctor Strange 12 Dr. Stephen Vincent Strange slasast illa á höndum. Til að leita sér lækninga heldur hann út í heim og hittir að lokum „hinn forna“. Metacritic 74/100 IMDb 8,2/10 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 23.45 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 17.30 The Accountant 16 Christian Wolff er stærð- fræðingur sem hefur meiri áhuga á tölum en fólki. Metacritic 51/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.40 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 22.45 Sambíóin Keflavík 22.45 The Light Between Oceans Vitavörður og eiginkona hans búa við ströndina í Vestur-Ástralíu, og ala upp skipreka barn sem þau finna í árabát Metacritic 60/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Egilshöll 17.10 Sambíóin Kringlunni 17.20, 20.00, 22.40 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Shut In Mary er ekkja sem starfar sem barnasálfræðingur. Þegar stórhættulegt fárviðri skellur á þarf hún að bjarga ungum dreng áður en hann hverfur að eilífu. Metacritic 22/100 IMDb 4,9/10 Smárabíó 19.50, 22.35 Arrival 12 Metacritic 80/100 IMDb 8,5/10 Smárabíó 16.50, 17.10, 19.30, 20.00, 22.10 Háskólabíó 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.20, 22.30 Jack Reacher: Never Go Back 12 Jack Reacher þarf að fletta ofan af stóru samsæri til þess að sanna sakleysi sitt IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 22.45 Grimmd 12 Morgunblaðið bbbnn IMDb 5,8/10 Smárabíó 20.00 Hacksaw Ridge 16 Metacritic 66/100 IMDb 8,7/10 Laugarásbíó 20.00, 22.45 Háskólabíó 21.10 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.30 Flöskuskeyti frá P 16 IMDb 7/10 Háskólabíó 18.10, 21.10 Eiðurinn 12 Morgunblaðið bbbbb IMDb 7,7/10 Háskólabíó 18.10 Bridget Jones’s Baby 12 Metacritic 59/100 IMDb 7,4/10 Laugarásbíó 17.00 Borgarbíó Akureyri 17.40 The Girl on the Train 16 Metacritic 47/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 20.00 Inferno 12 Smárabíó 22.20 Eight Days a Week - The Touring Years Háskólabíó 18.00 Max Steel 12 Metacritic 22/100 IMDb 4,9/10 Smárabíó 15.30, 17.50 Masterminds Metacritic 47/100 IMDb 5,8/10 Smárabíó 20.10, 22.20 Sjöundi dvergurinn Hin illa norn Dellamorta lagði bölvun á Rose prins- essu nema hún verði kysst af manni sem elskar hana af heilum hug. Sambíóin Álfabakka 16.00 Tröll Metacritic 45/100 IMDb 6,8/10 Laugarásbíó 16.00 Smárabíó 15.30, 17.45 Borgarbíó Akureyri 13.50, 17.50 Storkar Núna afhenda storkar pakka fyrir alþjóðlega netfirsann Cornerstone.com. Metacritic 55/100 IMDb 7,2/10 Sambíóin Álfabakka 18.00 Middle School Metacritic 51/100 IMDb 5,8/100 Smárabíó 15.30, 17.45 Innsæi Bíó Paradís 18.00 Child Eater Helen grunar ekki hversu hryllilegt kvöld hún á í vænd- um IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 22.15 Slack Bay Bíó Paradís 22.30 Svarta gengið Bíó Paradís 22.00 Baskavígin Bíó Paradís 18.00 Top Gun Bíó Paradís 20.00 Gimme Danger Bíó Paradís 20.00 Brotið Bíó Paradís 18.00 Edvard Munch: Exhibition On Screen Bíó Paradís 20.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.