Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2015, Side 2
Helgarblað 11.–14. desember 20152 Fréttir
Jón hættur í
stjórn álversins
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
hætti í stjórn Rio Tinto Alcan á Ís
landi, í nóvember síðastliðnum þar
sem hann hafði setið síðan í des
ember 2002. Samkvæmt tilkynn
ingu álversins í Straumsvík til fyr
irtækjaskrár Ríkisskattstjóra hætti
Jón þann 12. nóvember.
Fyrirspurn DV um ástæðu þess
af hverju Jón ákvað að segja sig úr
stjórninni hafði ekki verið svarað
af Margréti Láru Friðriksdóttur, að
stoðarkonu hans, þegar blaðið fór í
prentun. Ólafur Teitur Guðnason,
upplýsingafulltrúi álversins, hafði
ekki heyrt af brotthvarfi Jóns þegar
DV náði tali af honum og kunni
hann engar skýringar á því.
Pólitískur vandi
Hæstaréttarlögmaðurinn Jón
Magnússon gagnrýnir í blogg
færslu þá ráðstöfun að senda á
brott albönsku fjölskylduna, sem
rekin var úr landi í fyrrinótt. „Þú
rekur ekki veik börn í burtu, þú
leysir vandann,“ skrifar hann.
Í fjölskyldunni var þriggja ára
drengur með hjartagalla.
Jón segir vandann pólitísk
an og rifjar upp þegar Davíð
Oddsson ákvað að bjarga Bobby
Fischer. „Davíð sagði að þetta væri
mannúðarmál og gekk í málið,“
segir hann og ítrekar þannig að
ráðherrar hafi vald til að beita sér
þegar þeir vilja. „Þú hrekur ekki
veik börn í burtu, þannig [að] þau
séu á einhverjum vergangi.“
„Það er ekki
búandi við þetta“
n Langþreytt á rafmagnsleysi n Verður ekki leyst fyrr en línur verða lagðar í jörð
Þ
að er ekki búandi við þetta.
Þetta er algjör viðbjóður,“
segi Víðir Hólm Guðbjarts
son, bóndi á Grænuhlíð í
Bakkadal við Ketildali, sem
er langþreyttur á viðvarandi raf
magnsleysi á bænum. Eftir óveðr
ið á mánudag voru þau hjónin, Víð
ir og María Friðgerður Bjarnadóttir,
rafmagnslaus í 40 klukkustundir. Það
er stutt á þeirra mælikvarða, en þau
eru vön því að verða rafmagnslaus
dögum saman eftir óveður. Ástæðan
er sú að rafmagnsstaurar, en þau fá
rafmagn frá Tálknafirði, standa ekki
af sér slæm veður auk þess sem lín
ur fóru í sundur í óveðrinu í vikunni.
Þau Víðir og María eru langþreytt á
ástandinu, svo ekki sé meira sagt, en
samkvæmt upplýsingum frá Orku
búi Vestfjarða verða línur ekki lagðar
í jörðu á þessum slóðum fyrr en eftir
nokkur ár. Þau mega því búast við því
að lítið breytist þangað til.
38 klukkustundir af
rafmagnsleysi
Þegar blaðamaður náði tali af Víði var
hann að berja saman reykkofa sem
hafði farið í sundur í óveðrinu. Hann
átti von á því að fá til sín klippara sem
átti að rýja kindurnar, sem eru á átt
unda hundrað á bænum, og því var
mikilvægt að fá rafmagnið á sem fyrst.
Fjósið á bænum er að mestu sjálfvirkt
og þarf því rafmagn. „Það eru komn
ar 38 klukkustundir af rafmagnsleysi,“
sagði hann, en þess ber að geta að
rafmagnið kom á um einum og hálf
um tíma síðar, það er klukkan fimm
á miðvikudag. Þegar rafmagnið fer af
bænum fer að auki allur hiti af hús
inu. Víðir og María þekkja dæmi þess
að vera rafmagnslaus í langan tíma.
Fyrir nokkrum árum fóru þau í gegn
um tvær vikur án rafmagns. „Í fyrra
vorum við rafmagnslaus í sjö daga.
Það er ekkert óalgengt að vera raf
magnslaus í tvo til þrjá sólarhringa.
Það er nánast bara eðlilegt,“ segir Víð
ir. „Þetta er í rauninni ekki flóknara
en það að ef það spáir vondu veðri,
þá fer rafmagnið hjá okkur.“ Þau nota
gasofna og gashellur á meðan raf
magnsleysið gengur yfir, dúða sig vel
fyrir nóttina og reyna að koma í veg
fyrir skemmdir á bænum.
„Það safnast upp saggi og svona
þegar þetta gerist,“ segir Víðir,
en systkini hans eiga hús í Feigs
dal og í fyrra, eftir rafmagnsleysi,
frostsprungu leiðslur á bænum með
tilheyrandi skemmdum sem ekki fást
bættar í gegnum tryggingar.
Setti upp rafal
Víðir hefur komið sér upp rafal og
hefur fengið rafvirkja til að laga raf
magnskerfi hússins þannig að ef raf
magnið fer þá verði hægt að tengja
yfir á hann. „Rafallinn er aftan á
dráttarvél sem við færum á milli húsa
þegar rafmagnið fer. Það hefur kostað
mjög mikið,“ segir hann. Hann hefur
óskað eftir því að Orkubú Vestfjarða
taki þátt í þeim kostnaði, en hefur
fengið neitun.
„Þeir fundu fjögur slit á línunni
í þetta skiptið auk þess sem staurar
brotnuðu,“ segir Víðir sem hefði sjálf
ur helst kosið að jarðstrengur yrði
lagður í jörðu frá Hvestu í Arnarfirði
að Ketildölum, en sem áður sagði
kemur rafmagnið núna frá Tálkna
firði, fer yfir Fífustaðadal og að Ketil
dölum. Víðir segir kaflann við Fífu
staðadal sérstaklega viðkvæman og
bilanir séu tíðar þar. Línan var sett
upp í upphafi níunda áratugarins og
er, samkvæmt upplýsingum frá Orku
búi Vestfjarða, ein nýjasta línan. n
Verra en
menn héldu
Kristján Haraldsson orkubússtjóri segir
að ástandið á Vestfjörðum eftir óveðrið á
mánudag hafi verið slæmt. Þegar blaða-
maður náði tali af honum var hann ný-
kominn frá Dýrafirði þar sem hann hafði
verið að skoða aðstæður og fylgjast með
viðgerðum. „Þetta var töluvert verra en
ég hélt,“ sagði hann og bjóst við því að
viðgerðir tækju marga daga og jafnvel
vikur. „Til þess að allir séu komnir með
rafmagn sem þurfa á því að halda erum
við að vona að rafmagnið verði komið á
á morgun [fimmtudaginn 10. desember,
innsk. blm]. En það er með bráðabirgða-
viðgerðum og slíku,“ segir hann.
Varðandi ástandið í Grænuhlíð bendir
Kristján á að línurnar séu með nýrri lín-
um á svæðinu, en til að eitthvað breytist
verði að leggja þær í jörðu. „Þetta liggur
fjarri alfaraleið, þetta eru langar línur
og dýr framkvæmd. Ketildalir voru ekki
rafvæddir fyrr en á árunum 1980–1990.
Þetta er því ein af nýrri línum sem við
höfum byggt. Nýjar línur sem eru settar
upp í dag fara í jörðu og það kemur að
því að það verði gert, en það verður ekki
á næstunni,“ segir hann. „Ketildalalínan
er útsett fyrir veðri. Þetta fer fyrir vikið
nokkuð oft. Á einhverjum tímapunkti
munu línurnar fara í jörð [verða jarð-
strengir] eins og önnur kerfi, en það eru
einhver ár í það,“ segir hann.
„Þetta er í
rauninni ekki
flóknara en það að ef það
spáir vondu veðri, þá fer
rafmagnið hjá okkur.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Rafmagnsleysi Ábúendur á Grænu-
hlíð eru langþreyttir á rafmagnsleysinu
og hafa lagt mikla peninga í að koma
upp rafall fyrir heimilið. Þessi mynd er úr
safni og tengist fréttinni ekki beint.
BURT MEÐ MÚSARÚLNLIÐ
Ei algengasta vandamálið meðal tölvunotenda – bæði barna og fullorðinna
Léir álagi af viðkvæmum
sinaskeiðum úlnliðsins
Minnkar og fyrirbyggir spennu í hendi,
handlegg, öxlum og hálsi
duopad.is
Náúruleg staða með DuoPadSlæm staða handleggs
Meðmæli sjúkraþjálfara
léur og þægilegur
ÚLNLIÐSPÚÐI
aðeins 4 gr.
Fæst á www.duopad.is – árfesting gegn músararmi
DuoPad fylgir hreyfingum
handleggsins í staðinn fyrir að
allur líkaminn þurfi að aðlagast
stuðningi sem liggur á borðinu.
1
2
3
4
EINKENNI MÚSARÚLNLIÐS
Aukinn stirðleiki í hálsi og axlasvæði,
síðar seiðingur út í handlegg.
Verkur upp handlegg að olnboga með
vanlíðan og sársauka.
Verkurinn verður ólíðandi og stöðugur
í olnboga, úlnliðum og öxlum. Stífleiki í
hálsi getur verið viðvarandi.
Fólk getur orðið ófært um að nota
tölvumús og jafnvel óvinnufært.