Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2015, Síða 28
Helgarblað 11.–14. desember 20156 Reykjavíkurnætur - Kynningarblað
Spennandi tímar framundan
hjá Snóker- og poolstofunni
S
nóker- og poolstofan er rót-
gróið fyrirtæki og hefur verið
í Lágmúla 5 í Reykjavík síðan
1998. Miklar endurbætur og
útlitsbreytingar hafa átt sér
stað undanfarið og er Brynjar Valdi-
marsson eigandi staðarins að leggja
lokahönd á þær:
„Upphaflega langaði mig að
breyta staðnum og gera hann meira
fyrir konur, fannst hann aðeins of
mikill karlastaður en eftir að við mál-
uðum veggina appelsínugula hefur
andrúmsloft staðarins breyst og fólk
skemmtir sér betur. Mjög mikið hef-
ur verið að gera síðan við kláruðum
breytingarnar og vorum við til dæm-
is með methelgi um mánaðamótin
frá opnun staðarins.“
Hópaviðburðir vinsælir
Á staðnum eru átján poolborð og
fjögur snókerborð og er mikið um
að bæði einstaklingar og hópar sæki
staðinn.
„Starfsfólk mitt og ég reynum
að hafa staðinn þannig að fólk geti
komið og slappað af eftir erfiða daga
eða bara til að skemmta sér og öðr-
um. Við fáum mikið af fyrirtækja-
hópum og margir af þeim koma ár-
lega til okkar enda bjóðum við upp á
mjög góða en ódýra skemmtun fyrir
hópa,“ segir Brynjar.
Þeir sem hafa áhuga á slíkri
skemmtun geta sent e-mail á pool@
pool.is og fengið tilboð fyrir hópinn.
Jafnframt eru námskeið í boði bæði
í pool og snóker þar sem Brynjar
kennir undirstöðuatriði byrjendum
og þeim sem eru lengra komnir.
Hægt er að panta kennslu í síma
822-1471 hjá Brynjari eða senda
tölvupóst á fyrrnefnt tölvupóstfang.
Allir í hópnum eru síðan leystir út
með klúbbkorti að gjöf.
Hagstætt verð og klúbbakort
„Við erum með klúbbakort þar sem
félagsgjaldið er 500 krónur fyrir árið.
Kortið veitir bæði afslátt af leikjum
og veitingum,” segir Brynjar. Jafn-
framt er hægt að kaupa mánaðar-
kort.
„Við reynum að vera eins ódýr og
hægt er og því er verðið hjá okkur
mjög hagstætt, á bæði drykkjum og
mat,“ segir Brynjar.
Eins og áður segir er hægt að
kaupa veitingar á staðnum; drykki,
smárétti, hamborgara og pítsur.
„Við erum með hamborgara og
seljum mikið af þeim enda eru þeir
ansi góðir, einnig pítsur frá Italiano
sem er í Kópavogi. Þegar við erum
með hópa þá getum við pantað frá
þeim fyrir hópinn.“
Aðstaðan mjög góð
„Búið er að koma upp mjög góðri að-
stöðu til að horfa á boltann og aðra
viðburði. Uppi eru fjórtán flatskjá-
ir og tveir skjávarpar sem sjá um að
allir gestir geti fylgst með. Öll sjón-
vörpin eru í HD og hægt er að horfa
á í 3D,“ segir Brynjar, og nefnir mótin
sem hafa verið haldin á staðnum
fyrir Billiardsamband Íslands, bæði í
pool og snóker. Það er því alltaf eitt-
hvað að gerast á Snóker- og poolstof-
unni.
Hægt er að nálgast frekar upplýs-
ingar um Snóker- og poolstofuna á
heimasíðu fyrirtækisins www.pool.
is eða með því að senda tölvupóst á
pool@pool.is.
Opið er mánudaga til fimmtu-
daga frá kl. 11.00–01.00, föstudaga
og laugardaga frá kl. 11.00–03.00 og
sunnudaga frá kl. 15.00–01.00. n